Heimili og skóli - 01.10.1942, Side 15

Heimili og skóli - 01.10.1942, Side 15
HEIMILI OG SKÓLI 77 halda áfram, þyrftu nú færri að hafa áhyggjur af uppeldi sona sinna og dætra, en raun er á. Því miður hafa ný og óboðin öfl truflað þessa þróun, og oft reynzt sterkari okkar ungu og óreyndu skól- um. Og þegar svo ber við, að á sama tíma bresta fleiri og fleiri stoðir í þeim stofnunum, sem í meir en þús- und ár höfðu verið einar um uppefdi þjóðarinnar, en það eru heimilin, þá er ekki að furða þótt eittlivað beri af leið í þessum efnum. II. Böndin losna. Það, sem einkum einkennir hina síðustu áratugi, og þó sérstaklega eftir heimsstyrjöldina, er krafan um aukið frelsi á öllum sviðum. Þessi djarfa og frjálsmannlega krafa 20. aldarinnar hefir verið hennar mesti styrkleiki og veikleiki í senn. í krafti frelsisins hafa unnir verið hinir stærstu menningar- sigrar afdarinnar. í skjóli þess hefir allt það glæsilegasta, sem 20. öfdin á, vaxið og dafnað. í skjóli frelsisins hefir karlssonurinn kornizt til mann- virðinga og kolbíturinn úr óskustónni orðið manndóms- og atgervismaður. En í nafni þess hefir einnig verið iif- að lífi, sem leiðir til úrkynjunar og menningarsjúkdóma. Frelsið hefir ekki aðeins verið notað til að byggja upp verðmæti, heldur einnig tif að rífa niður. Það hefir verið lifað við nokkurs konar ofnautn frelsis, og sér- staklega kemur það greinilega fram í uppeldi æskunnar hina síðustu ára- tugi. Það hefir verið unnið að því sleitu- laust undanfarna áratugi, að höggva o 7 oo á gamla fjötra, vega að gömlum hleypi- dómum, sem máttu og áttu að hverfa. En því miður hafa sumar hinar grænu greinar orðið kafkvistunum samferða. Það hefir losnað um öll bönd, jafnt þau, sem mátti leysa, og hin, sem ekki mátti leysa. Atthaga- böndin hafa rofnað. Aflur þorri manna hefir slitnað úr sambandi við kirkjuna, og stundum, að því er virð- ist, kristindóminn sjálfan, þótt slíkt þurfi ekki ætíð að fylgjast að. Bönd þau,sembinda menn við heimilið, eru nú slitrur einar. Jafnvef þau bönd, sem binda saman karf og konu eru nú miklu ótraustari en áður, en því meir aftur mælt með hinum frjáfsu ástum. Svona mætti lengi telja, til þess að sýna fram á, hvers konar andrúmsloft það er, sem æska nútímans elst upp við. Þegar þessar frelsishreyfingar ruddu sér til rúms fyrst, vöktu þær að von- um mikla hrifningu, einkum meðaf æskunnar, því að frelsi til að vaxa, eins og hverjum er áskapað, er ein hin mesta náðargjöf lífsins, en það er tví- eggjað vopn, og í óvita höndum er það hættulegt eggjárn, ef ekki er jafnframt stundað að rækta mannvit, mannkosti og viljaþrek. Þessi bless- aða náðargjöf 20. aldarinnar, sent orð- ið hefir menningu hennar bæði sól og dögg, hefir, því miður, einnig orðið til að blanda galli í þann bikar, sem synir okkar og dætur eiga að teyga af hin næstu ár. Það er því óhjákvæmileg nauðsyn fyrir alla uppalendur að endurskoða afstöðu sína til þess frelsis, sem ríkt hefir undanfarna áratugi. Gera sér grein fyrir hvað er frelsi og hvað er

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.