Heimili og skóli - 01.03.1948, Qupperneq 22

Heimili og skóli - 01.03.1948, Qupperneq 22
18 HEIMILI OG SKÓLI Kvöldvökur barnanna Ekki hafði ég lengi fengizt við kennslu, þegar ég fann, að börnin vantaði tilfinnanlega einhverja dægra- dvöl í frístundum sínum, sem hefði góð þroskaáhrif, jafnframt því, sem hún væri til skemmtunar. Þetta varð mér nokkurt íhugunar- efni. Að lokum datt mér í hug að koma á ktöldvökum og láta börnin sjálf annast þær að öllu leyti. Skipti ég nú skólabörnunum, sem voru 15 alls, í 3 hópa og hylltist til, að þeir yrðu sem jafnastir að starfskröftum. Síðan kaus hver hópur sér formann. Honum bar að hafa umsjón með æfingum, semja dagskrá og skipuleggja kvöldvökuna, einnig skyldi hann vera leiðbeinandi við efnisval, flutning o. fl. Formenn- irnir drógu um röð. Sá, sem dró nr. 1, mátti nú hefjast handa, kalla saman lið sitt og leggja því lífsreglurnar. Einn átti t. d. að lesa skemmtilega smásögu, annar ættjarðarkvæði, þriðji var kjör- inn til að leika á munnhörpu o. s. frv. Oftast var æft þrisvar til fjórum sinn- um fyrir luktum dyrum. Áður en vik- an var liðin, varð kvöldvökunefndin að hafa lokið æfingum. Svo var kvöld- vakan auglýst með tilhlýðilegum fyrir- vara, á tilteknum stað og stundu; auð- vitað voru allir velkomnir. (Svo háttar til, að fjórbýli er hér á kennslustaðn- um og samtals um 14 manns í heimili, auk barna á skólaskyldualdri). Næstu viku æfði hópur nr. 2 og svo koll af kolli. Nú eru fjögur ár síðan við hófum kvöldvökurnar, og er ekki annað hægt að segja en þær hafi lánast framar von- um. Ég vil sérstaklega taka fram, að ekki er um neitt úrval að ræða; í þess- um einstæða leik eru allir með, — að- eins lagt minna á þá, sem illa eru les- andi. Þetta hefur reynzt okkur heilla- drjúgt viðfangsefni, og fátt mun betur fallið til að kenna einstaklingunum að vinna saman og starfa sem ein heild, en jafnframt þroskast dómgreind þeirra og ábyrgðartilfinning. Ég vil því eindregið hvetja kennara til að taka þennan þátt inn í skólalífið, telji þeir sig hafa aðstöðu til þess. Torfi Guðbrandsson. (Ég er höfundi þakklátur fyrir þessa stuttu frásögn og vil eindregið mælast til, að fleiri kennarar sendi mér slíkar fréttir frá skólastarfi sínu. — Ritstj.). V O R I Ð Jólahefti Vorsins flytur margar skemmtileg- ar sögur, ævintýri og frásagnir. Heftið hefst á Jólahugleiðingu, eða öllu heldur sögu, eftir hinn kunna norska biskup, Johan Lunde, í þýðingu Valdimars V. Snævarr. Þá er jóla- saga eftir Hannes J. Magnússon, er nefnist Jólaskuggar. Móti straumnum eftir Jóhannes Ó. Sæmundsson, skólastjóra. Þá eru margar þýddar sögur, leikrit, þátturinn Úr heimi barnanna og m. m. fleira. Vorið kemur út í 4 heftum á ári, og mun hvert hefti verða 40 síður næsta ár. Útgefendur geta þess, að nýir kaupendur fái síðasta árgang ókeypis á meðan upplagið endist. Ennfremur aug- lýsa þeir eftir nýjum útsölumönnum, eirik- um í sveitum landsins. Ritið kostar aðeins 8.00 krónur.

x

Heimili og skóli

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.