Heimili og skóli - 01.03.1948, Síða 25

Heimili og skóli - 01.03.1948, Síða 25
HEIMILI OG SKÖLl 21 Ritst jóraspjal I Vitið þér það, foreldrar? Svo bar við á öndverðum þessum vetri, að við skóla einn komst það upp, að allmörg börn, eða nánar tiltekið 12 börn, öll úr sania bæjarhverfinu, voru farin að reykja og höfðu þá gert það nokkrum sinnum. Börn Jtessi voru á aldrinum 7—12 ára. Aðspurð kváðust þau hafa fengið vindlingana með ýmsu móti. Sum höfðu verið kvött til reykinganna af pilt- um a milli fermingar og tvítugs, og höfðu þau fengið tóbakið hjá þeim. Önnur höfðu tekið vindlingana heima hjá sér, einstaka höfðu tekið þá í búðum, og kváðust vera send í búðir til að kaupa fyrir fullorðna fólk- ið. Svo mörg eru Jtau orð. Væntanlega verður ekki meira af reyking- um þessara barna í bili, eftir að skóli og heim- ili hafa tekið þarna fast í strenginn. En hve lengi verður það? Þetta þykja nú væntanlega ekki mikil tíð- indi og naumast eyðandi á þau hinni dýr- mætu prentsvertu, en fyrir uppeldi og fram- tíðarheill litlu barnanna okkar eru Jjetta mikil tíðindi og ill, því að hér er um það að ræða, að reykingatízkan, reykingahættan er alltaf að færast neðar og neðar í aldursstiga þjóðfélagsins. Eg veit ekki, hvort nokkur verður til þess að hrökkva við gagnvart þessari staðreynd, en vel mætti þetta verða alvarlegt íhugunar- efni öllum þeim, sem ábyrgð bera á upp- eldi barna og unglinga, og þá ekki sízt þeim, sem þyngsta ábyrgðina bera, foreldrunum. En hvers er að vænta, þegar börnin fæðast í tóbaksreyk og alast upp í tóbaksreyk? Hvers er að vænta, þegar bæði feður og mæður reykja. Já, hvers er að vænta, þegar reykinga- tízkan er svo sterk, að sá þykir varla maður með mönnum, sem ekki þjónar þessari tízku. Og hvernig ætla slíkir uppalendur að fara að því að fræða börn sín um skaðsemi þess- arar eiturnautnar? Verður ekki úr því blá- köld hræsni og tilgangsleysi? Hér verður ekki rædd sú hætta, sem böru- um og unglingum stafar af tóbaksreykingum, en kennarar eru fljótir að koma auga á þá drengi í skólum sínum, sem farnir eru að reykja. Áhrif tóbaksnautnarinnar á siðferði þeirra og námsgetu leynir sér aldrei lengi. Hér er því sannarlega á ferðinni hætta, sem boðar úrkynjun. Foreldrar! Eruð þér allir viðbúnir að mæta þeirri hættu? ' Sunnudagaskóli. Það er vissulega ástæða til að fagna hverri nýrri aðstoð, sem lieimili og skólar fá við trúar- og siðgæðisuppeldi þeirra barna, sem þessar stofnanir eiga að móta, því að svo mjög veltur gifta vor í framtíðinni á því, að þessir þættir uppeldisins takist vel. Það fer heldur ekki illa á því, að þessi aðstoð komi frá kirkjunni, sem hefur lagt ómetanlegan skerf til þessa uppeldisþáttar á liðnum öld- um, þótt mörgum vinum hennar þyki það framlag, er hún nú leggur til mótunar æsk- unnar, minna en æskilegt væri. En því geri ég þetta að umtalsefni hér, að hinn ungi og áhugasami prestur, séra Pétur Sigurgeirsson á Akureyri, hefur sýnt alveg óvenjulegan dugnað og áhuga við að koma á fót sunnu- dagaskóla og orðið ágengt eftir því. Síðan þessi starfsemi hófst á öndverðum vetri, hefur hann fyllt hina stóru kirkju af börnum 7—14 ára, nálega hvern sunnudag. Auk þess hefur hann haft sérstaka deild fyrir 5—7 ára börn annars staðar. Það er ekki heiglum hent að láta svo stórar samkomur ná tilgangi sínum, að hafa trúarleg áhrif á börnin, en þar virð- ist hann, með ágætu skipulagi og lipurð, vera að sigrast á hinum óhjákvæmilegu byrjunar- örðugleikum. Og eitt er víst: Öllum börnum þykir vænt um þennan unga og elskulega prest. Hann er einn af þeim, sem sigrar hjörtu hinna ungu. Erfiðast er að skapa kyrrð og lotningu meðal þessa fjölda á óliku þroskastigi, en ég hef ástæðu til að vona, að þetta takist smátt og smátt, ef hann fær að sinna þessu starfi áfram. Þarna hefur hann farið þá skynsamlegu og „pædagogisku“ leið að nota sér lijálp liinna eldri barna, en um leið vinnur hann þau til fylgis við starfið.

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.