Heimili og skóli - 01.10.1968, Síða 5
*
Heimili
og
VI
vO
o\
00
skóli •«
>■
50
TÍMARIT U M
UPPELDISMÁL
•
:
:
:
:
:
:
:
ÚTGEFANDI: KENNARAFÉLAG EYJAFJARÐAR
Ritið kemur út i 6 heftum á ári, minnst 24 síður hvert hefti,
og kostar órgongurinn kr. 100.00, er greiðist fyrir 1. júlí. —
Útgófustjórn:
Indriði Úlfsson, skólostjóri.
Edda Eiriksdóttir, skólastjóri.
Jónas Jónsson, kennari.
Afgreiðslu- og innheimtumaður:
Guðvin Gunnlaugsson, kennari,
Vanabyggð 9, Akureyri.
Ritstjóri:
Hannes J. Magnússon, rithöfundur,
Hóaleitisbraut 117, Reykjavik.
PRENTSMIÐJA BJÖRNS JÓNSSONAR
HEIMILIÐ - FJÖLSKYLDÁN
Þetta tvennt á saman og er í senn innsti
'kjarni þjóðfélagsins og hornsteinn þess.
Heimilið er elzta stofnun mannlegs sam-
félags og hefur lagt grundvöllinn að öllum
öðrum stofnunum samfélagsins. Það er því
eins konar móðurstofnun stærri og smærri
samfélagsheilda. Þegar karl og kona tóku
ákvörðun um að búa saman og lifa saman,
var lagður grundvöllur að þjóðfélagi.
Heimilin hafa verið ákaflega ólík á ýms-
um tímum og með ýmsum þjóðum. En eitt
hefur verið þeim öllum sameiginlegt: Þau
hafa alltaf verið skjólgarður ungu mann-
lífi og uppeldisstofnun, eftir efnum og
ástæðum á hverjum tíma fyrir það unga
líf, sem þar var að alast upp. Oft í veik-
leika, en oft með góðum árangri.
Þó að hlutverk og hlutskipti konunnar
hafi verið ákaflega breytilegt eftir löndum
og þjóðum, hefur þó enginn ágreiningur
verið um það, að hlutskipti hennar og
hlutverk hafi fyrst og fremst verið það að
ala upp börnin. A síðari áratugum hefur
það verið upp tekið í ýmsum þjóðlönd-
um, að láta þjóðfélagið sem slíkt annast
uppeldi barnanna. Það hefur þá verið rek-
ið sem eins konar stóriðnaður. Hefur sá
háttur einkum verið tekinn upp í hinum
sósíalísku ríkjum, þar sem börnin eru ekki
fyrst og fremst alin upp sem einstaklingar,
heldur sem hjól í vél, mannsafl á vinnu-
markaðinum eða atkvæði stórra flokks-
véla.
Þá hefur nokkuð borið á því á síðustu
áratugum, að mæðrunum hefur þótt þröngt
um sig á heimilunum, og um lítið frelsi að
ræða við barnauppeldi og heimilisstörf.
Með tilkomu nýtízku heimilisvéla, sem
létta mjög störf húsmóðurinnar, hefur
þetta frelsi þó nokkuð aukizt, en eigi að
rækja barnauppeldi vel, er ekki hægt að
hafa það í hjáverkum með öðrum störfum
HEIMILI OG SKOLI 97