Heimili og skóli - 01.10.1968, Blaðsíða 7

Heimili og skóli - 01.10.1968, Blaðsíða 7
til umhverfisins. Þetta er styrkleiki heimil- anna. Jafnvel heimila upp og ofan. Nú er það svo, að heimilin eiga ekki saman nema nafniS. Þau geta veriS eins ólík og einstaklingarnir, sem mynda þau. ÞaS geta veriS góS og vond heimili og allt þar á milli. Kannski þó ekki vond, en ófull- komin og frumstæS. Þegar samfélagiS verSur fyrir því óláni aS eignast heimili, sem ekki valda hlutverki sínu, fleiri eSa færri léleg heimili, jafnvel svo léleg, aS þaS getur sýnzt ábyrgSarhluti aS láta börn alast þar upp, kemur til kasta samfélagsins aS ráSa fram úr því á ein- hvern hátt og kemur þá fleira en eitt úr- ræSi til mála. Þessi vandkvæSi heimilisins geta átt sér ýmsar orsakir t. d. drykkju- skaparóregla, sem er einhver algengasta or- sök heimilisvandræSa. Þá getur þaS veriS vanheilsa föSur eSa móSur, fátækt, árekstr- ar viS landslög og þaS, sem þeim fylgir og margt fleira. Þegar taka þarf fram fyrir hendur for- eldra eSa þau geta ekki sjálf ráSiS fram úr vandkvæSum sínum, kemur þarna margt til greina svo aS heimiliS verSi aftur hæft til aS gegna skyldum sínum, ekki sízt upp- eldisskyldum sínum. ÞaS er leitaS til barnaverndarnefndar, skólastj óra, sóknar- prests, bæjarstjórnar o. fl., eftir því hvers eSlis vandræSin eru. Þegar sjúklingur er lagSur inn á sjúkra- hús, er venjulega um tvær aSgerSir aS ræSa: uppskurS eSa einhverskonar lækn- ing. Þegar heimili lenda í vandræSum meS börn sín, eSa foreldrana sjálfa, má segja eitthvaS svipaS: UppskurS eSa lækn- ingu.... MeS uppskurSi á ég viS svo rót- tæka aSgerS, sem aS leysa heimiliS upp, taka börnin frá foreldrunum og reyna aS fá þeim aSra framfærendur. MeS lækn- ingu á ég viS ýmsar félagslegar aSgerSir til hjálpar heimilunum, sem fái eftir sem áSur aS halda sjálfstæSi sínu. Fyrri aS- gerSin verSur aS teljast algjört neySarúr- ræSi og fullkomin uppgjöf viS aS leysa vandann. AS vísu geta þær aSstæSur mynd- azt, aS þaS virSist óhjákvæmilegt. Til dæmis þegar báSir foreldrarnir verSa, meS einhverjum hætti, ófærir aS halda heimilinu uppi. En ég held, aS þaS verSi aS teljast til undantekninga, sem betur fer. Eg legg ríka áherzlu á, aS heimili sé aldrei sundrað, ef þar er um einhvern börn aS ræSa, nema þaS sé aS dómi viturra manna óumflýjanlegt. ÞaS ber aS leggja allt kapp á aS halda heimilinu saman, svo aS sem minnst röskun verSi á lífi barn- anna. Til dæmis ef þau verSa aS sjá af öSru hvoru foreldri sínu eSa báSum. ÞaS er ekki aSeins kostnaSarminna fyrir sam- félagiS, sem er þó aukaatriSi, heldur er þetta mannúSarskylda, siSferSisleg skylda gagnvart börnunum. Þeim er fyrir öllu aS fá aS vera saman og fá aS vera meS for- eldrum sínum og halda áfram aS lifa sínu fjölskyldulífi. Því eSlilegra sem þaS er því betra aS sjálfsögSu. ViS höfum svo mörg átakanleg dæmi um sundraSar fjölskyldur, aS slíkt skyldi forS- ast í lengstu lög. ÞaS má vera lélegt for- eldraheimili ef þaS er ekki betra en önnur úrræSi, sem til greina geta komiS. AuSvitaS ber aS reyna af öllum mætti aS koma í veg fyrir, aS nokkurt heimili komist í þessa aSstöSu, en reyndin er nú samt sú, aS í okkar tiltölulega margslungna þjóSfélagi er alltaf nokkur hætta á aS ein- staka heimili verSi þarna utanveltu viS samfélagiS, og missi fótfestuna. Hér er einkum um einn skaSvald aS ræSa, sem er einhver versti óvinur heimilis- og fjölskyldulífsins, en þaS er áfengiS, sem alltaf leikur lausum hala. HEIMILI OG SKÓLI 99

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.