Heimili og skóli - 01.10.1968, Blaðsíða 9

Heimili og skóli - 01.10.1968, Blaðsíða 9
getum átt úrvals foreldra, þótt þeir séu ekki skólagengnir. En ekki ætti það að spilla fyrir, að nokkur skólaganga hafi sett mót sitt á heimilið. Það hlýtur því að vera von okkar allra, að með aukinni skólagöngu eignumst við um leið betri heimili, svo mikla heimilismenningu, að vandaræða- heimili verði óþekkt og þar með vandræða- börn. Það er takmarkið, sem ber að keppa að. Heimilin skilja alltaf eftir eitthvað af svipmóti sínu, siðum og háttum í hverj- um einstakling, sem fylgir honum ævi- langt. Endurminningarnar frá heimilinu eru meðal þeirra minninga, sem síðast gleymast. Þessar endurminningar geta' ver- ið svo sterkar og áhrifamiklar, að fjöldi manna blessar heimili sín og minninguna um þau. En því miður eru þeir einnig til, sem hafa tilhneigingu til að bölva heimil- um sínum. Vill nokkur láta börnum sínum í té slíkan arf? Fyrir nokkrum árum kynntist ég manni, sem sagði eitthvað á þessa leið: „Bernsku- heimili mitt og foreldrar eiga sök á allri ógæfu minni og auðnuleysi á langri ævi. Faðir minn gerði mig það, sem ég er“ Vilja nokkrir foreldrar og nokkurt heimili fá slíkan dóm? Aðrir hafa aftur, og þeir eru miklu fleiri, guði sé lof, þakk- að foreldrum sínum og heimili gæfu sína í lífinu, og þá ekki sízt móður sinni. „Heimili mitt er kastali minn“, segja Englendingar. Þeir eiga líka traust og fast- mótuð heimili, mótuð af þúsund ára göml- um erfðavenjum. Það hefur verið styrkur þeirra á örlagastundum. Og þegar allt kem- ur til alls, er heimilið sá klettur, sem allar öldur lífsins skella á. Það er húsið, sem Kristur talar um í Fjallræðunni, og örlög þess fara eftir því hvort það er byggt á sandi eða bjargi. H. J. M. HANDLEIÐSLA - VALD Þetta eru tvær gjörólíkar uppeldisað- ferðir, sem hlandast þó saman í öllu upp- eldi. Það verður ekki hjá því komizt að beita að einhverju leyti valdi í uppeldinu, sérstaklega á fyrstu árunum á meðan börn- in kunna ekki að beita skynsemi sinni. En því minna sem valdi þarf að beita, því hetra. Það er óskaplega vandfarið með valdið í uppeldinu nema til komi jafnframt handleiðsla. Valdið getur í uppeldinu orð- ið að valdi hins sterka. Það er ekkert upp- eldi fólgið í því að taka það í þjónustu sína. Handleiðsluna má byrja á börnum þegar í fyrstu bernsku. Hún er fólgin í því að laða og sveigja vilja barnsins, en það á aldrei að gerast með valdi. Því minna, sem barnið finnur til valdsins því betra. Það gerir þó ekkert til þótt barnið viti af því að valdið er til, en það á bara ekki að nota það í uppeldinu nema af ítrustu nauðsyn. Þegar valdi er beitt vekur það vanmáttar- kennd hjá barninu. Það er niðurlægjandi að lúta því og það skilur eftir sárindi, sem eru lengi að gróa. H. J. M. HEIMILI OG SKÓLI 101

x

Heimili og skóli

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.