Heimili og skóli - 01.10.1968, Síða 17

Heimili og skóli - 01.10.1968, Síða 17
Pétur Sigurðsson ritstjóri t. h. fallið fyrir þeirri freistingu að dekra við lesendurna, hvorki með skemmtiefni né æsandi frásögum. Ef lesendurnir kunna ekki að meta tilganginn, ja, þá verður að hafa það. En Einingin hefur alltaf verið vandað rit að öllum frágangi. Það er skrif- að á góðu máli, prentað á vandaðan pappír, flutt vandað efni og auk þess mik- ið myndskreytt. Þetta hefur fólkið kunn- að að meta. Þótt nú sé komin meiri rósemi yfir rit- stjórann en á þeim árum, sem hann ferð- aðist um landið og herskarar spruttu upp úr jörðinni, þegar þessi hægláti og yfir- lætislausi maður steig í ræðustólinn, er eldurinn og áhuginn enn hinn sami og þá, og boðskapurinn alltaf jafn siðsterkur. Eg óska Pétri til hamingju með Einingu 25 ára og þakka ég honum þetta fórnfúsa og óeigingjarna starf í meira en aldar- fjórðung, því að menningarstarf Péturs nær miklu lengra aftur í tímann — og vonandi einnig langt fram í tímann. Merk- ifr stendur, þótt maðurinn falli. H. J. M. Ung stúlka var að leggja af stað í sína fyrstu sjóferð. Hún var mjög hrifin af öllu því, sem hún sá innanborðs á hinu stóra skipi, jafnvel þótt hún yrði að sitja til borðs með eintómum konum. Þegar hún á öðrum degi ferðarinnar var á göngu um skipið rakst hún á skipstjórann og sagði brosandi við hann: „Þér megið vera vissir um, að ég nýt þess að ferðast með skipi yðar, en mér þykir það dálítill galli, að þurfa að sitja til borðs með eintómum konum. Þér gætuð nú ekki gert svo vel og holað mér niður við borð, þar sem sætu t. d. eingöngu piparsveinar?" „Auðvitað, frú,“ sagði skipstjórinn vingjarn- lega. Þegar hún þetta sama kvöld gekk inn í borð- salinn í sínu fínasta skarti, varð hún að viður- kenna, að skipstjórinn hafði staðið við loforð sitt. Við þetta nýja borð, þar sem hún var boðin velkomin, sátu sjö elskulegir, brosandi, kaþólsk- ir prestar....! HEIMILI OG SKÓLI 109

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.