Heimili og skóli - 01.10.1968, Page 18
KENNARÁNÁMSKEIÐ 1968
Eins og undanfarin ár, hafa verið haldin
námskeið fyrir kennara í sumar og haust
á vegum fræðslumálastjórnar, kennarafé-
laga og fræðsluhéraða.
Það má segja, að námskeið þessi séu orð-
in fastur liður í viðhalds- og endurmennt-
un kennara, því að nýjar og breyttar
kennsluaðferðir krefjast þjálfunar kennar-
anna.
Námskeiðin hófust 27. maí og þeim lauk
20. september, öðrum en þeim, sem hald-
in eru út um land á vegum kennarsam-
bandanna þar. Eftirtalin námskeið hafa
verið haldin:
1. Námskeið fyrir handavinnukennara
stúlkna, í jurtalitun og ullarvinnslu. Nám-
skeið þetta var haldið að frumkvæði Fé-
lags handavinnukennara, en Heimilisiðn-
aðarfélag Islands sá um kennsluna í húsa-
kynnurn sínum. Kennsludagar voru 14 og
þátttakendur 16 ýmist í annarri eða báð-
um greinunum.
2. Námskeið í fínmálmsmíði og smelt-
vinnu var haldið í Gagnfræðaskóla verk-
náms í Reykjavík 15.—20. júlí á vegum
Fræðslumálastjórnar og Fræðsluskrifstofu
Reykjavíkur. Kennsludagur voru 6 og þátt-
takendur 56. Umsjón og undirbúning hafði
Bjarni Olafsson eftirlitskennari, en kennslu
önnuðust auk Bjarna Alrik Myrhed frá
Stokkhólmi og Gunnar Klængsson.
3. Dönskukennaranámskeið 15.—30.
ágúst. Námskeið þetta var haldið á veg-
um Kennaraháskólans í Kaupmananhöfn.
Frk. Ragna Lorentzen annaðist kennsluna,
sem voru 4 kennslustundir daglega. Þátt-
110 HEIMILI OG SKÓLI
takendur voru 27 frá barna- og gagnfræða-
skólum.
4. Stærðfræðinámskeið. Vegna þess að
víða hefur nýja stærðfræðin verið tekin
upp í yngstu deildum barnaskóla, hefur
þurft að veita kennurum leiðbeiningar með
þessa kennslu, þess vegna voru haldin þrjú
stærðfræðinámskeið í haust.
I Reykjavík var námskeið fyrir kennara
7 ára barna frá 28. ágúst til 6. september
og framhaldsnámskeið fyrir þá, sem sóttu
námskeiðið í stærðfræði í fyrra, 29. ágúst
til 3. sept. Þá var haldið námskeið að
Laugalandi á Þelamörk í byrjendakennslu
í nýjustærðfræðinni dagana 5.—14. sept-
ember. Umsjón með námskeiðunum í
Reykjavík hafði Kristinn Gíslason kennari
og Valgarður Haraldsson námstjóri fyrir
norðan. Þátttakendur í Reykjavík urðu 132
og á Akureyri 25. Aðalkennarar á öllum
þessum námskeiðum voru frk. Agneta
Bundgárd frá Kaupmannahöfn, Guðmund-
ur Arnlaugsson rektor og Björn Bjarnason
dósent.
5. Námskeið fyrir íþróttakennara var
haldið dagana 26.—30. ágúst að frum-
kvæði Iþróttakennaraskóla íslands. Nám-
skeiðið fór fram í húsakynnum barna- og
gagnfræðaskóla Austurbæjar í Reykjavík
og sóttu það 92 kennarar.
Aðalkennararnir voru frá íþróttakenn-
araskólum Svíþjóðar í Stokkhólmi og Öre-
bro. Þau Ulla-Britt Agren og Andres Erik-
sen.
Á námskeiðinu voru flutt ýmis erindi og
sýndar fræðslumyndir um íþróttir.