Heimili og skóli - 01.10.1968, Síða 23

Heimili og skóli - 01.10.1968, Síða 23
í vatnskrana. Á næsta andartaki getur það svo orðið hlutverk hans að tala hughreyst- andi orðum við nýkominn dreng. Hann ákveður umræður um háttatíma, sjónvarp og skólavinnu. Hann tekur einnig ákvörð- un um refsingar fyrir þetta og hitt, allt frá illri umgengni í leikstofum og til mis- notkunar á sjónvarpi, spilum og útiverum á ólöglegum tíma — alveg eins og hver annar góður faðir. „Hlutverk okkar er að elska þessi börn, hjálpa þeim eins vel og við getum og búa þeim sem allra bezt heimili, þar sem þau finna að þau eiga heima,“ segir hann. En hann er aðeins einn af þeim mörgu körlum og konum, sem líta á starfið í þess- ari stofnun sem köllun, þótt því fylgi geysi- leg ábyrgð, án þess að fá nokkra sérstaka greiðslu fyrir það. Á margvíslegan hátt leggur hann og kona hans grundvöllinn að trausti barn- anna til þessa starfs og þessarar stofnunar, barnanna sem búa ekki yfir því öryggi, sem önnur börn fá af sjálfsdáðum. Þau hafa þarna æskulýðsklúbb og þángað méga börnin bjóða vinum sínum. Og á hverjum mánuði fá þau peninga, sem þau mega verja til að vera sem bezt klædd. Þetta mega þau sjálf kaupa niðri í bænum. Þau mega fara á dansleiki, smíða sér seglbáta og hafa yfirleitt sama frelsi og önnur börn, svo sem að fara í tjaldferðir í sum- arleyfinu eða fá sér atvinnu á einhverju bændabýlinu til að vinna sér inn meiri vasapeninga. „Flest þessi börn þekkja helzt til ósigra og sneypufara að heiman,“ segir Brampton. „En hver smásigur, sem þau vinna hér af eigin ramleik, veitir þeirn ómétanlegt sjálfstraust.“ Leslie Thomas, fyrrverandi Barnardo- drengur, segir í nýlegri skáldsögu, seín náð hefur miklum vinsældum í Englandi og er þar einna efst á vinsældalista. „The Virgin Soldiers“ heitir hún: „Heim er undarlegt orð. Ef maður aðeins segir orðið heim hljómar það sem eitthvert fegursta orðið í tungunni. En segi maður heimili eru stund- um allir töfrar frá því horfnir.“ ÞeSsi barna- og æskufj ölskýlda í Abing- ton, er heimili í þess víðtækustu og beztu merkingu. Eins og títt er um unglinga, syni og dætur, sem horfnir eru að heiman, er þarna alltaf margmennt af þessu fólki um helgar. Liðþjálfi einn kom eitt sinn með kærustuna og kynnti hana fyrir frú Bramp- ton eins og hún væri móðir hans. Og þegar komin var te-tími mætti hún þar með allri „fjölskyldunni" 30 drengjum og stúlkum á aldrinum frá 3—17 ára. Framhald. H. I. M. þýddi. Kennaraimiiiskeið Framhald af bls. 11 L hafði Stefán 01. Jónsson umsjón með öll- um námskeiðunum néma námskeiði fyrir íþróttakennara, sem Þorsteinn Einarsson íþróttafulltrúi annaðist. Frœðslufundir. Fræðslufundir eru ákveðnir á Búðum í Fáskrúðsfirði, Leirárskóla, Akureyri og Siglufirði. Þar sem fundum þessum er ekki öllum lokið, þegar þetta er skrifað, er ekki unnt að gera grein fyrir þeim. En þegar er sýnt að námskeið og fræðslufundi sækja um sex hundruð kenn- arar í barna- og gagnfræðastigsskólum. Kennar.ar verða því eigi sakaðir um sinnu- leysi um starf sitt og margir taka á sig mik- inn kostnað til þess að halda við og auka menntun sína og er það sannarlega lofsvert. Stefán Olafur Jónsson. HEIMILI OG SKÓLI 115

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.