Heimili og skóli - 01.10.1968, Side 24
PÁLMI
KRISTJÁNSSON,
kennari
— ÖRFÁ MINNINGARORÐ —
Hann þynnist nú óðum kennarahópur-
inn, sem ég kynntist, þegar ég fluttist til
Akureyrar árið 1930. Og nú er öðlingur-
inn, Pálmi Kristjánsson, kennari í Saur-
hæjarhreppi í Eyjafirði, kominn yfir á
ströndina hinumegin. Hann andaðist að
heimili sínu á Akureyri 10. september síð-
astliðinn 83 ára að aldri. Pálmi er Eyfirð-
ingur í húð og hár og bjó í Saurbæjar-
hreppi alla sína ævi nema nokkur síðustu
ár ævinnar, og þar vann hann sitt ævistarf.
Hann er gagnfræðingur að mennt. Tók
gagnfræðapróf vorið 1906, en hafði áður
verið í unglingaskóla, sem Ingimar Eydal
hélt þá í Eyjafirðinum.
Með þetta veganesti gerðist hann kenn-
ari í Saurbæjarhreppi. Hann var kennari í
fæðingarsveit sinni í 45 ár og fékk að
reyna flesta erfiðleika farskólans og þau
frumstæðu skilyrði, sem hann hefur löng-
um átt við að búa. En Pálmi lét það aldrei
smækka sig. Hann stóð alltaf jafn trúr á
verðinum og skaraði að glæðum menning-
arinnar í heimasveit sinni eftir því sem að-
116 HEIMILI OG SKÓLI
stæður leyfðu. Hann var vinsæll kennari
og víðlesinn. í tómstundum sínum stund-
aði hann ýmiss konar fræðimennsku, t. d.
söfnun örnefna í sveit sinni og gaf út bók
um það efni. Kvæntur var Pálmi Frímanníu
Margréti Jóhannsdóttur, en hún er látin
fyrir nokkrum árum. Tvo syni eignuðust
þau hjón. Annar þeirra lézt tveggja mán-
aða gamall, en hinn komst upp, en lézt úr
herklum á unga aldri. Sá hét Tryggvi Gest-
ur. Varð hann foreldrum sínum mjög
harmdauði.
Pálmi var áhugasamur kennari. Hann
var félagi í Kennarafélagi Eyjafjarðar frá
stofnun þess 1932 og sótti jafnan fundi
þess og námskeið. Það var alltaf notalegt
að vera með Pálma og ég minnist þess
ekki sízt eftir að hann hætti kennslu. En
við höfðum jafnan nokkur samskipti eftir
það. Hann var hlýr og góðviljaður maður
og efa ég ekki að nemendur hans hafi not-
ið þessa.... Han nvar hinn mesti heiðurs-
maður og ég sakna samfylgdar hans nú að
leiðarlokum. Hann var vammlaus maður.
H. J. M.