Heimili og skóli - 01.10.1968, Side 25

Heimili og skóli - 01.10.1968, Side 25
TÁNINGAR Á VORUM DÖGUM EFTIR CATO HAMBRO — Stuttur kafli úr samnefndri bók — T ilfinningalífið. Það merkilegasta, sem gerist á þessum árum er seinnilega hinn mikli ofvöxtur til- finningalífsins. Einstöku sálfræðingar segja, að hver maður fæðist tvisvar sinn- um. Fyrsta fæðing á sér stað þegar lífið hefst og gerir einstaklinginn líffræðilega óháðan, en seinni fæðingin gerist á tán- ingaaldrinum, þegar tilfinningalífið brýzt til sjálfræðis og gerir einstaklinginn óháð- an, tilfinningalega séð. Þessi seinni fæðing getur engu síður verið örlagarík og stundum þj áningafull, bæði fyrir börn og foreldra. Breytingin á rætur sínar að rekja til líkamsþroskans, en honum eru samfara mikil umbrot hið innra. Þessi kreppa verð- ur meiri og erfiðari vegna þess, að á sama tíma verður mikil breyting á viðhorfi hinna ungu til umhverfisins. Kröfurnar frá umhverfinu breytast. Viðhorf foreldranna er ekki hið sama og áður. Skólinn gerir nýjar kröfur og hinn ungi sjálfur gerir nýjar kröfur til síns sjálfs og umhverfisins. „Seinni fæðingin“ verður vegna byltingar hið innra með einstaklingnum og í afstöðu umhverfisins til hins unga verðandi borg- ara. Tilfinningar hinna ungu verða dýpri, sterkari og nýstárlegri. Þegar foreldrarnir segja stöku sinnum: „Eg þekki þig ekki fyrir sama unglinginn,“ er það að vissu leyti rétt. Því miður segja foreldrarnir þetta aðeins, þegar eitthvað hefur gengið illa. En þetta á einnig við, þegar um já- kvæðar tilfinningar er að ræða, Því að einnig þær bera annan svip og annað eðli en í bamæsku. Unga fólkið lifir tilfinningar sínar oft á svo ofsafullan hátt, að það þekkir sig held- ur oft ekki sjálft. Tilfinningarnar eru svo sterkar að unglingurinn lifir öðru hvoru í tveimur heimum. Hinum ytri heimi vem- leikans með skólanum, skyldunum og við- burðarásinni heima, sem verður þá óraun- veruleg og skiptir ekki öllu máli, og svo hinsvegar hinn innri heimur tilfinning- anna með sínum dagdraumum, sem verður þá hið raunverulega og heillandi líf. Það er hægt að lifa gleðina á svo ofsa- fullan hátt á þessum aldri, að það nálgast hrifningarástand. Aldrei fyrr á ævinni, og ekki heldur síðar, nær gleðin slíku há- marki, slíkri hamingju og fögnuði. Bæði vegna áhrifa frá náttúrunni og þeim fögn- uði, sem hún getur veitt, frá því að njóta listar, en ekki sízt trúarleg reynsla, getur veitt tilfinningunum slíkan styrk, sem gerir HEIMILI OG SKÓLI 117

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.