Heimili og skóli - 01.10.1968, Side 26
Sumar telpur setja það fyrir sig, að þœr
séu of holdugar — aðrar að þœr séu of
grannar.
lífið að nýju lífi með nýjum tilgangi og
nýrri fyllingu. En hinar neikvæðu tilfinn-
ingar geta einnig að sama skapi orðið
sterkar, bæði sorg og vonbrigði, óánægja
og lífsleiði geta orðið nálega óbærileg
byrði. Örvæntingin, forsmáð ást, beiskja
vegna óréttlætis af einhverju tagi, ná há-
marki sínu á þessum aldri.
Einsemd og hugarvíl fylgja einnig þessu
aldursskeiði. Þörfin á að „finna sjálfan
sig“, leitin eftir að hafa fast land undir
fótum, finna siðferðilegan, trúarlegan og
heimspekilegan grundvöll undir líf sitt,
fyllir hug margra táninga.
Viss, en óljós, þörf til að laðast til dul-
rænna heilábrota, verður oft til þess, að
unglingar á þessum aldri hneigjast til bók-
menntalegrar, heimspekilegrar og trúar-
118 HEIMILI OG SKÓLI
legrar afstöðu til lífsins. Óljós þrá eftir
samræmi og öryggi í öllum margbreytileik
lífsins fyllir hugi þessara unglinga með
sterkri, óljósri löngun. Tilfinningarnar
eiga ríkan þátt í öllum hinum andlega
þroska og hafa þar miklu hlutverki að
gegna. Skilningurinn greiðir fyrir lausn
vandamálanna og skerpir hæfileikann til
að hugsa óhlutstætt og nota til hins ýtrasta
orðaforðann. Það gerir tilfinningalífið
auðugra að temja sér fagurt málfar. Marg-
ir unglingar byrja oft að tjá hugsanir sín-
ar og tilfinningar á torskilinn hátt í dag-
bókum, skáldskap, teikningum og hljóm-
list. Tilfinningalífið leikur alltaf sterkan
leik í lífi unga fólksins, og hinar jákvæðu
og neikvæðu tilfinningar ráða oft úrslitum
í samlifi við foreldra og félaga og móta
allan persónuþroskann. Stúlka að nafni
Elísabet var á margan hátt tengd foreldr-
um sínum á æskilegan hátt, en hún hafði
óljósa hugmynd um, að þau með takmarka-
lausri umhyggju, legðu steina í götu henn-
ar til eðlilegs þroska og til þess að verða
sjálfstæð og þroskuð kona.
Elísabet, sem er 15 ára, hefur aðlaðandi
og sakleysislega framkomu. Hún er eigin-
lega ekki fríð, en hin vingjarnlega og hlý-
lega framkoma hennar verður til þess, að
öllum geðjast vel að henni. Hún er í 1.
bekk framhaldsskólans og stendur sig þar
ágætlega. Henni geðjast að kennurunum
og henni líðru vel í bekknum. Hún ætlar
að verða hárgreiðslukona og hefur hug á
að komast í iðnskólann, þegar hún hefur
lokið tveggja ára námi í gagnfræðaskólan-
um. Foreldrar hennar segja, að hún skuli
velja sér það starf, sem hún kjósi sjálf og
þau hlusta alltaf með áhuga á allar henn-
ar fyrirætlanir og hvað eina, sem hún seg-
ir um áform sín í framtíðinni.