Heimili og skóli - 01.08.1971, Side 5
Heimili s i
og j |
skóli I :
TÍMARIT U M «
UPPELDISMÁL S
ÚTGEFANDI: KENNARAFÉLAG EYJAFJARÐAR
Ritið kemur út i 5 heftum á ári, minnst 24 síður hvert hefti,
og kostar úrgangurinn kr. 150.00, er greiðist fyrir 1. júlí. —
Útgófustjórn:
Indriði Úlfsson, skólastjóri, (óbyrgðarm.).
Kristín Aðalsteinsdóttir, kennari
Jóhann Sigvaldason, kennari
Afgreiðslu- og innheimtumaður:
Guðvin Gunnlaugsson, kennari.
Vanabyggð 9, Akureyri.
PRENTSMIÐJA BJCRNS JÓNSSONAR
fNDRIÐI ÚLFSSON :
„OPNIR SKÓLAR
Grein þessi fjallar um sfutta heimsókn í ,/opna skóla" í Banda-
ríkjunum, en þangað fór höfundur sl. vetur með Vilbergi
Júlíussyni skólastjóra í Hafnarfirði og Jóni H. Jónssyni skóla-
stjóra Hlíðardalsskóla, til þess að kynna sér skólamól.
Ferðin hafin.
*
Flugóhöfn
hjó
Loftleiðum.
heimili og skóli
íslendingurinn finnur gleggst hversu landið hans er lítið og þjóðin
iámenn, þegar hann lítur ljósadýrð New-York borgar og nágrennis í
fyrsta sinn, því að austurströnd Bandaríkjanna má heita samfellt ljósa-
liaf svo hundruðum kílómetra skiptir. Loftleiðaþotan renndi sér niður
á dökkan blett í ljósahafinu og hafði land Leifs heppna undir hjólum.
Hér verður ekki rakin ferðasaga okkar þremenninganna, þó að ef til
vill hefði mátt gera hana öllu skemmtilegri aflestrar, en það sem á eftir
fer, ekki sízt vegna þess, að á hótelunum þar sem Loftleiðir höfðu pant-
að fyrir okkur gistingu og aðbúnað vorum við skráðir sem flugáhöfn og
73