Heimili og skóli - 01.08.1971, Síða 6

Heimili og skóli - 01.08.1971, Síða 6
nutum alls konar fríðinda, er við þáðum með þökkum, en gerðum í okkar hópi gaman að. Þessi Bandaríkjaferð var byggð á boði nokkurra Islendinga í Utah ríki, um að kynnast skólamálum þar, svo og Fullbrigth styrk, er til far- ar var veittur og gekk til greiðslu á hluta af fargjöldum. í Bandaríkjunum geta erlendir ferðamenn fengið 50% afslátt á öll- um flugfargjöldum innanlands, ef þeir heimsækja minnst þrjár stór- borgir í landinu. Við sáum því fram á, að ólíkt lærdómsríkara yrði og litlu dýrara, að ferðast um landið þvert og endilangt. Lögðum við því fyrst leið okkar suður á Miami á Florida og þaðan til Los Angeles á Kyrrahafsströndinni. Þessar tvær flugleiðir eru samtals álíka langar og frá íslandi og suður í Mið-Afríku. Af því geta menn séð víðáttu Banda- ríkjanna. Leið okkar lá síðan til San Francisco og þaðan til Utah ríkis, sem talið er eitt fegursta ríki Bandaríkjanna og er austanvert í Kletta- fjöllunum. Þar dvöldumst við lengst og mun ég einskorða frásögnina við kynni okkar af skólunum þar. Talið jrá vinstri: Mr. Waldo Jakobsen skólastjóri í Springville, Jón H. Jónsson skólastjóri Hlíðardalsskóla, Vilbergur Júlíusson skólastjóri Hafnarjirði og höfundur. 74 HEIMILI OG SKOLI

x

Heimili og skóli

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.