Heimili og skóli - 01.08.1971, Side 9

Heimili og skóli - 01.08.1971, Side 9
Námsefninu er skipf einingar. Tilhögun kennslunnar. Leiðandi kennarar í hinum ýmsu námsgreinum. HEIMILI OG SKÓLI Við upphaf skólagöngu 7 ára barna í „opnum skóla“5 hefur náms- efninu verið skipt í einingar, sem raðað er í töluröð (t. d. 1—40 fyrir fyrsta skólaár). Þau hefja nám í hverri námsgrein á verkefni eitt og halda áfram með þeim hraða, er hæfileikar þeirra leyfa. Hvert barn á sitt ákveðna spjald með námsgreinunum og einingum þeirra. Að lokinni hverri einingu er merkt á spjald þess, hvort það hefur skilað henni á viðeigandi átt, ef svo er ekki verður það að endurtaka eining- una. Þegar kemur upp í eldri aldursflokka er oft um að ræða próf í hverri einingu og stundum kemur fyrir, að ef byggja þarf á námsefni, er nemandinn hefur gleymt, verður hann að endurtaka þá einingu, til þess að fá að halda áfram. Því verður að hafa mörg könnunarp'róf fyrir hverja einingu námsefnisins, annars er sú hætta fyrir hendi, að læra megi prófin og svörin við þeim, án þess að skilja það nám, er á bak við þarf að búa. Um áramót má reikna með að sum börnin hafi lokið því námsefni, er þeim var ætlað að hafa allan veturinn, en önnur eru skammt á veg kom- in. Þá halda þau duglegu áfram og byrja á námsefni næstu árdeildar á undan. Dæmi veit ég um, að 7 ára barn, héðan frá Akureyri, er sækir opinn skóla í Kanada, hafi lokið tveggja ára námsefni eftir hálfs árs skólagöngu. Þess skal þó getið, að barn þetta átti kennara að foreldri og vafalaust hlotið tilsögn með heimanáminu. Þá komum við að kennslutilhöguninni. í opnurn skólum vinna kenn- arar saman og hafa til leiðsagnar í sömu stofu eða svæði sem svarar 25—30 börnum á kennara. Oft eru fleiri árdeildir saman. Algengast virtist mér að saman væru höfð 7—8 ára, 9—10 ára og 11—12 ára. Er því ekki óalgengt, að 3—6 kennarar vinni á sama svæði. Þegar svo er, reyna þeir að sérhæfa sig á ákveðnum sviðum kennslunnar og verða leiðandi í þeim fögum. Samvinna sem þessi krefst góðrar aðlöngunar- hæfni kennaranna og getur gefið þeim aukinn styrk til sameiginlegra átaka. Þegar tala þarf við öll börnin, getur leiðandi kennari í námsgrein- inni notað hátalarakerfið og þannig náð til allra barnanna, en þess á milli vinna þau í hópum, þ. e. a. s. borðum, er raðað er saman og 3—6 börn mynda námshópinn. Kennararnir ganga síðan á milli og leið- beina, en duglegur nemandi er stundum fenginn til að leiðbeina í sín- um hópi, ef mikið er að gera. Hóparnr eru síðan básaðir af með létt- um, færanlegum skilveggjum og í sumum hópunum eru einstaklingarn- ir eða vinnusvæði þeirra á borðunum einnig afmörkuð með U laga spjöldum (t. d. pappaspjöldum reistum á röð). Þessi tilhögun er gerð, 77

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.