Heimili og skóli - 01.08.1971, Page 11

Heimili og skóli - 01.08.1971, Page 11
Daglega er lokið áfanga á námsbrautinni. Tölvunotkun í skólum. Börnin geta fremur valið sér leiðbeinendur. er möguleiki á að 10 ára börn hafi lokið námsefni í barnaskóla. Er þeim þá ætlað ákveðið hliðarnám í námsgreinunum, sem er nokkru þyngra, en að því loknu byrja þau á námsefni neðstu bekkja í ungl- ingaskóla (léttari námskeiðum), en þau útskrifast ekki úr barnaskól- anum fyrr en þau hafa aldur til. Þegar þau svo koma í unglingaskól- ann geta þau tekið fyrir þyngstu námsleiðir, sem þar eru kenndar. Með hliðstæðu áframhaldi eru þau mjög vel undir háskólanám búin og fær um að taka fyrir erfiðustu námsefni. Aðspurðir um aga í „opnum skólum“, fengum við alls staðar þau svör, að með þessu kennsluformi hefðu agaspursmálum sífellt farið fækkandi. Ef til vill má rekja það til þess, að nemendur fá meiri ábyrgð gagnvart náminu, ná daglega ákveðnum áfanga, en það hefur sitt að segja til að viðhalda kappi og áhuga. „Opnu skólarnir“ ryðja sér mjög til rúms í Bandaríkjunum. Víða rísa nýir skólar, er teiknaðir hafa verið með hliðsjón af þessn kennslu- formi. í Salt Lake City komum við í nokkra slíka, er allir voru innan við fimm ára gamlir. Einn sá fullkomnasti var byggður af Westinghaus- verksmiðjunum og var rekinn sem tilraunaskóli. Sá skóli var að mestu leyti einn salur í nokkrum álmum, en í miðju hans var hókasafnið, er myndaði kjarna skólans og sá þaðan inn í allar álmumar. Lýsing var óbein og hvergi mjög sterk, en þó það mikil, að þarna var hægt að taka myndir inni eins og úti væri. Námseiningaprófin í þessum skóla voru gerð með útfyllingu á gatna- spjöldum, er daglega voru send í tölvu. Hún skilaði niðurstöðum sam- dægurs og setti nemendum fyrir næsta dag. Gekk þá hver að sínu korti með árituðum verkefnum. Með þessu var fyrir tekið að benda á mögu- leika færibandafræðslu og vafalaust getur tölvan gert sitt gagn, en persónulegt samband kennara og nemenda verður þó alltaf að sitja í fyrirrúmi. Það sýndist mér líka vera í „opna skólanum“. Kennararnir voru alls staðar til leiðbeiningar og viðræðu við nemendurna. Þannig sköpuðust persónuleg tengsl, og þar sem margir kennarar starfa saman á kennslusvæði, er möguleiki á nokkru úrvali í kynnum. Nemendurn- ir geta því leitað til þess kennara, er þeim fellur bezt. Um slíkt er ekki að ræða í bekkjarkennslu og það eitt getur haft vandamál í för með sér. Sum börn elska þann kennara* er önnur hata, og samkomulag innan bekkjarins getur farið eftir því. Það sem telja mætti löst við „opnu skólana“ er, að erfitt er að koma fyrir þeim tímum, er í daglegu tali eru nefndir sérgreinatímar. Börnin færast oft milli deilda á skólaárinu og það eitt skapar mikinn vanda varðandi stundaskrá. Mér sýndist því söngur, handavinna og lei'kfimi HEIMILI OG SKOLI 79

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.