Heimili og skóli - 01.08.1971, Side 13

Heimili og skóli - 01.08.1971, Side 13
Uppeldi eða áfengi VIÐ FENGUM nýlega, í sjónvarpi, kynnt ólík viðhorf í sambandi við „unglinga- vandamálin“. En kynning sú varð mér lítils virði: ekki skörulega stjórnað og viðhorf viðmælenda ekki nógu ljós eða ákveðin, nema þá prestsins helzt. M. a. var rætt um „hátíðina“ í Saltvík. Það kom í Ijós, að „Saltvík 1971“ var tilraun, gerð af sumum í gróðaskyni, en öðrum til að bæta úr — en mistókst að verulegu leyti. Forsvarsmaður- inn (H. Bj.), sem virðist hafa viljað hjálpa unglingunum til að lifa þessa hátíðisdaga sér til ánægju og sæmilega, lét þarna at- hyglisverð orð falla í sambandi við skemmtiskrána í Saltvík (hljómsveitirnar): „Það er beðið um þetta.“ I þeim orðum virt- ist liggja, að þá væri sjálfsagt að verða við bæninni! I slíku viðhorfi virðist mér koma fram það, sem mesta unglingavandamálinu veldur hjá íslenzkri þjóð. Og við athugun kemur í Ijós, að um foreldra- eða uppal- endavandamál er að ræða engu síður: Börn- in biðja — og foreldrarnir eru oft fljótir að játa, stundum af misskilinni góðsemi. Börnin vaxa og bænin breytist í heimtu- frekju. Foreldrarnir fjarlægjast, gefast upp, og uppeldið er farið út um þúfur, — hafi það eitthvað verið. Yissulega er ekki svona að farið í hverri fjölskyldu — lof sé guði —, en hættulega víða. Eða hvert stefnir, þegar 8—12 ára barnið fær 500 og jafnvel 1000 krónur 17. júní — eins og gjarnan sást hér á Akureyri núna — til þess að „kaupa gott“ fyrir, að sjúga, bryðja, súpa á þjóðhátíðinni? Hvað munu þau vilja fá 17. júní 1974? Börn og unglingar okkar tíma þroskast snemma, þ. e. a. s. líkamlega. Andlegi þroskinn fylgir ekki, og í því liggur mikil hætta, og hlutverk foreldra eða forráða- manna verður því stærra og þýðingarmeira. Þessi frísku, glæsilegu ungmenni, 12—15 ára, búa yfir fjöri og þreki, sem þarf að fá viðfangsefni. En þau gera sér oft ekki grein fyrir því, hvert straumurinn ber þau. Þeim er sannarlega þörf á umhyggjusömum, skilningsríkum leiðbeinendum, helzt föður og móður. Hvers virði er slíkum ungmenn- um að koma heim, þar sem faðir og móðir sitja við reyk og skál með gestum sínum og viðbrögð foreldranna verða aðeins þam að faðirinn sýnir og gefur „þúsundkall“, svo að unga stúlkan, ungi maðurinn, barnið þeirra, hverfi burt og gleðji sig með sínum félögum? Hvern þarf að furða, þótt ung- mennin leiti þá á gleðifund, þar sem hljóm- sveitin er hávær, reykur fyrir hvern sem vill, áfengi ekki torfengið og jafnvel sterkari eit- urlyf á boðstólum? Eitthvað þarf í tómið, þar sem heimilið, pabbi, mamma og trún- aðartraustið átti að vera. Og hljómsveitin, enn sterkasti áhrifavaldurinn, nú, tekur til með orgum og villimannlegum tilburðum og fær þannig — stundum — með hjálp HEIMILI OG SKOLI 81

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.