Heimili og skóli - 01.08.1971, Síða 16
Nýi_
skólinn
að
Hraínagili
AÐ HRAFNAGILI í Eyjafirði er risinn nýr
skóli, sem tók til starfa í október sl. Fyrir-
hugað er að nemendur hans verði á aldrin-
um 12—16 ára. Mjög mikill skortur hefur
verið á skólum sem þessum í dreifbýlinu,
og því fagnaðarefni að sjá þennan glæsilega
skóla rísa og vera tekinn í notkun.
Skólastjóri þessa nýja skóla að Hrafna-
gili, er Sigurður Aðalgeirsson. Hann er
fæddur í Neskaupstað 1945. Foreldrar eru
Aðalgeir Sigurgeirsson og Bergþóra Bjarna-
dóttir, en þau eru nú búsett á Húsavík. Hann
lauk kennaraprófi frá Kennaraskóla Is-
-lands 1966. Hóf sama ár kennslu við Mýr-
arhúsaskóla á Seltjarnarnesi og var þar til
ársins 1968, en gerðist þá kennari við
Varmalandsskóla í Borgarfirði og þaðan
kemur hann til starfa að nýja skólanum.
Kona hans, sem einnig er kennari við skól-
ann, heitir Sigurlaug Salómonsdóttir og er
ættuð frá Húsavík. Ég hitti Sigurð að máli
og lagði fyrir hann nokkrar spurningar
varðandi skólann og skólastarfið.
Hefur formlega verið gengið frá nafni
skólans?
Á skólanefndarfundi í október síðastliðn-
um var samþykkt, að nafn skólans skyldi
vera Hrafnagilsskóli, en ekki hefur enn bor-
izt samþykki ráðuneytis vegna þessarar
nafngiftar.
Hvaða sveitarfélög standa að skólanum?
Hrafnagilshreppur, Saurbæjarhreppur,
Ongulsstaðahreppur og Svalbarðsstrandar-
hreppur.
Hverjir skipa skólanefndina?
Formaður er Jón Heiðar Kristinsson
Ytra-Felli. Aðrir í skólanefnd eru: Harald-
ur Hannesson Víðigerði, fyrir Hrafnagils-
hrepp. Fyrir Saurbæjarhrepp er Eiríkur
Björnsson Arnarfelli. Fyrir Öngulsstaða-
hrepp er séra Bjartmar Kristjánsson Lauga-
landi. Fyrir Svalbarðsstrandarhrepp er
Stefán Júlíusson Breiðabóli.
Er skólinn fullbyggður?
Nei. Nokkuð vantar enn á að svo sé. I
I. áfanga byggingarinnar er heimavistarhús-
84
HEIMILI OG SKOLI