Heimili og skóli - 01.08.1971, Page 20
Starfslið skólans (talið frá vinstri) aftari röð: Stefán Aðalsteinsson, Guðrún Sveinbjörnsdóttir, Svandís Hannesdóttir
ráðskona, María Sveinbjörnsdóttir, Sœunn Jónsdóttir Laxdal og Gunnar Jónsson. Fremri röð: Angantýr Hjörvar Hjálm-
arsson, Hanna Salómonsdóttir og Sigurður Aðalgeirsson skólastjóri.
Kvöldmatur.
Kl. 20.00—21.30 Félagsstarfsemi. í þess-
um tímum er ýmislegt
gert sér til skemmtunar
svo sem: Kvöldvökur,
félagsvist, sjónvarp,
dans, farið í leiki, kvik-
myndasýningar o. fl.
Kvöldhressing.
Að lokinni kvöldhressingu fara nemend-
ur til herbergja sinna.
Kl. 22.00 skulu nemendur vera komnir
hver á sitt vistarherhergi.
Kl. 22.15 er kvöldbæn og síðan er geng-
ið á hvert vistarherbergi og gefið fyrir um-
gengni og boðið góða nótt.
Nemendur mega ekki hafa ljós á her-
bergjum sínum lengur en til kl. 22.45.
Svefn.
Eyfirðingar vænta sér mikils af nýja skól-
anum að Hrafnagili, enda hefur til hans val-
izt traust fólk, sem flest hefur starfsreynslu
að baki, og mun nýta hana til þess, að leggja
öruggan grundvöll að námi og aga nemend-
anna.
Við óskum því heilla í störfum og nem-
endum skólans þeirrar gæfu að eignast stór-
an þátt í að skapa skólanum álit og virð-
ingu.
Á miklu veltur, að vel sé af stað farið, og
vafalaust munu eyfirzkir foreldrar ekki láta
sitt eftir liggja, til þess að styðja skólann,
börnum sínum til heilla.
I. ú.
83
HEIMILI OG SKOLI