Heimili og skóli - 01.08.1971, Qupperneq 21
Jóhannes Halldórsson.
Faðir
barnafræðslnnnar
á Aknreyri
„Kenndir þú ungum
ævi langa
ráðvant líf
og rétta götu.“
(Matth. Joch.)
Á ÞESSU ári er aldarafmæli almennrar
barnafræðslu á Akureyri. Fyrsti skólastjóri
harnaskóla hér var cand. theol. Jóhannes
Halldórsson og er því ekki óviðeigandi að
hans sé eitthvað minnzt á þessum tíma-
mótum.
Jóhannes Halldórsson var fæddur að
Melstað í Miðfirði 5. des. 1822. Foreldrar
hans voru séra Halldór Ámundason, prest-
ur þar, og síðari kona hans Margrét Egils-
dóttir.
Jóhannes hóf nám í Bessastaðaskóla 19
ára að aldri, en tók stúdentspróf úr Reykja-
víkurskóla 1850. Guðfræðipróf tók hann
þrem árum síðar, eða 1953. Sama ár mun
hann hafa flutzt til Akureyrar og gerðist þar
barnakennari. Talið er, að hann hafi kom-
ið hér fyrst á vegum Jóhanns Gottfred Hav-
steens kaupmanns til að kenna börnum
hans. Mun hann hafa verið heimiliskennari
þar hin næstu ár. Er þetta skiljanlegt því að
J. G. Havsteen átti 11 börn á lífi 1860, og
hafa 5 þeirra verið á skólaaldri 1853,
8—11 ára, tvær stúlkur eldri, 16 og 17 ára,
og fjögur börn yngri, sem bætzt hafa í nem-
endahóp Jóhannesar næstu árin.
Þá mun hann hafa verið heimiliskennari
hjá fleiri kaupmönnum og efnaðri borgur-
um, og einnig mun hann hafa haft einka-
skóla heima.
Hefur þetta verið þreytandi starf, því að
sennilega hefur hann verið við kennslustörf
mest allan daginn frá morgni til kvölds.
En þegar bæjarstjórn samþykkir að
stofna hér barnaskóla 1871, var Jóhannes,
þessi vinsæli kennari, sjálfkjörinn kennari
við hann og síðar skólastjóri, þegar fleiri
kennarar bættust við. Því starfi gegndi hann
til 1884, en lét þá af því vegna heilsubrests
rúmlega sextugur að aldri.
Jóhannes byggði sér hús í Aðalstræti 2
og bjó þar síðan. Ekki er með öllu ljóst,
hvort barnaskólinn 1871 byrjaði í húsi Jó-
hannesar eða næsta húsi við, og verður
HEIMILI OG SKOLI
89