Heimili og skóli - 01.08.1971, Page 22

Heimili og skóli - 01.08.1971, Page 22
sennilega aldrei úr því skorið með fullri vissu. En þarna við enda Aðalstrætis var skólinn tvö fyrstu árin. En kennslustörfin voru ekki það eina, sem Jóhannes vann fyrir Akureyrarbæ. Hann var í bæjarstjórn í 21 ár og þar af oddviti hennar í 19 ár. Og ber það vott um traust það, er hann naut í bæjarstjórninni. Á sumrum fékkst hann oft við verzlunar- störf, og í mörg ár var hann annar endur- skoðandi reikninga Gránufélagsins. Jóhannes var tvíkvæntur. Fyrri kona hans var Ragnheiður Ólafsdóttir, læknis að Hofi í Hörgárdal Thorarensen. En hana missti hann eftir 8 ára sambúð. Þau áttu eina dóttur barna, sem hét Margrét Anna, en hún dó ógift á Akureyri 1951 í hárri elli. Síðari kona Jóhannesar var Ragnheiður Maren Þórarinsdóttir frá Skjaldarvík, Thor- arensen. Þau eignuðust tvær dætur, Hall- dóru og Katrínu Kristínu, sem báðar dóu í æsku. Venjulega voru 5—6 manns í heimili hjá Jóhannesi og var þar alltaf ein vinnu- kona í vist. Jóhannes mun hafa verið slitinn eftir kennslu og störf í þágu bæjarins, er hann lét af skólastjórn. Það var ekki alltaf létt verk né vinsælt að ná inn hæjargjöldunnm. Þó mun hafa verið enn erfiðara fyrir Jó- hannes, að heimta inn skólagjöldin. Enda var hann ekki upphafsmaður þess, að bær- inn hæfi rekstur barnaskóla, hvort sem það hefur komið af því, að hann vildi ekki það liti út fyrir, að hann væri að vinna fyrir sjálfan sig, eða hann hefur viljað hlífa bæj- arsjóðnum við útgjöldum af skólanum. Hvort sem er sýnir það heiðarleika Jó- hannesar. Jóhannes andaðist 30. marz 1904. Minn- ast Akureyrarblöðin hans hlýlega. I „Norð- 90 urlandi“ stendur eftirfarandi: „Jóhannes var hinn mesti merkis- og sæmdarmaður. Hann var ólíkur því, er al- mennt gerist, svo var hann samvizkusamur, vandur að virðingu sinni og vandvirkur á öllu því, sem hann tókst á hendur.“ Þessu sama víkur séra Matthías að í fögru erfiljóði um Jóhannes, sem birtist í „Norðurlandi“. Þar segir: „er aldregi um ævidaga vitandi veik af vegi réttum.“ Einkunnarorð þessarar greinar eru úr sama kvæði séra Matthíasar. Um hvernig honum voru launuð trúverðug störf hans, segir skáldið: „Lág eru laun er lýðir færa fræðiföður frómhjörtuðum.“ Og mun það satt vera, að ekki hafi hann borið það úr býtum, sem verðugt var fyrir trúverðug störf sín. En hann kaus sér hljóð- lát störf við kennslu í samvistum við lítil börn í stað þess að sækja um prestsembætti, sem hann hafði menntun til. Þó mun hann eitt sinn hafa sótt um prestakall nokkru eftir að hann lauk embættisprófi. Hér hefur með fáum orðum verið minnzt þessa „fræðaföður“ barnaskólans hér. En sökum ókunnugleika verða þessi orð ekki fleiri. Eiríkur Sigurðsson. HEIMILI OG SKÓLI

x

Heimili og skóli

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.