Heimili og skóli - 01.08.1971, Side 24

Heimili og skóli - 01.08.1971, Side 24
Sparifjársöfnun skólabarna EINS OG undanfarandi ór, er öllum 7 ára börnum sendar 50 króna óvísanir fró Seðlabankanum og ó þeffa að verða sfofnfé í sparisjóðsbókum þessara ungu einsfaklinga. í meðfylgjandi bréfi fil forróðamanna barnanna segir: Ávísunina mó leggja inn í hvaða innlóns- sfofnun, sem vera skal. Vasapeningar gefa verið goff kennslufæki. Ávísun þessa má leggja inn í hvaða innlánsstofnun sem vera skal, og er um nokkrar tegundir sparisjóðsreikninga að velja, eins og ávísunin ber með sér. Ávísun, sem lögð er inn í banka eða Sparisjóð Reykjavíkur og nágrennis, innleysir hlutaðeigandi stofnun sjálf, en Seðlabankinn end- urkaupir ávísanir af öðrum innlánsstofnunum. Nú á dögum þykir sjálfsagt, að börn læri að nota peninga og njóta þeirra. Mistök hljóta vissulega stundum að eiga sér stað, en með tíman- legri hægfara byrjun verða þau minni en ella. Bæði hver einstaklingur og þjóðin í heild á mikið undir farsælu uppeldi á þessu sviði sem öðr- um. Sparisjóðsbókin er eitt kennslutækjanna — og þegar barn á í hlut, ber fyrst og fremst að skoða hana sem kennslutæki, en ekki tæ'ki til að mynda sjóð, þótt hún geti að sjálfsögðu verið það líka. Annað kennslutæki er skotsilfur — vasapeningar. Um þá segir dr. Haim Ginott, prófessor í sálarfræði og sállækningum við háskólann í New York, einn virtasti fræðimaður heims á sínu sviði: Á nútímaheimili þykir sjálfsagt að barn fái vasapeninga —- ekki síður en fæði og klæði — vegna þess að það er einn af meðlimum fjölskyld- unnar. Vasapeningar eru ekki verðlaun fyrir góða hegðun eða kaup fyrir veitta aðstoð. Þeir eru uppeldistæki með ákveðnum tilgangi, að veita einstaklingum reynslu í meðferð peninga með því að velja og hafna og bera ábyrgð í eigin höndum. Af þessu leiðir, að of strangt eftirlit með notkun vasapeninga mundi gera tilgang þeirra að engu. í stað þess þurfa að vera ákveðnar reglur, sem taka skýrt fram hvaða kostnaðarliðir eiga 92 HEIMILI OG SKOLI

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.