Heimili og skóli - 01.08.1971, Side 28

Heimili og skóli - 01.08.1971, Side 28
það mark að komast í þá skemmtilegu aðstöðu að geta valið um ýmsa „lífskosti“. Börn eru bara einn þeirra, enda þótt þau séu dásamleg. Við skulum líta á hina kostina: Fullt starf eða starf, sem krefst aðeins brots úr vinnudegi. Þátttaka í atvinnulífinu getur komið að notum bæði andlega og fjárhagslega. Hvaða áhrif mundi eitt barn í viðbót hafa á möguleika þína, ef þú vildir eða þyrftir að leita þér að at- vinnu í náinni framtíð? Og sértu þegar í starfi, hefur fjölskylda þín þá efni á þeim tekjumissi, sem hún yrði fyrir, ef þú yrðir að hætta störfum til þess að eignast harn? Áhugamál og áhugastörf. Hafir þú hvorki áhuga á starfi utan heimilisins né þarfnist þess, hvernig litist þér þá á þá hugmynd að „taka frá“ hluta af ævi þinni til þess að fullnægja listhneigð þinni og taka þátt í einhverju, sem veitir sköpun- argleði þinni útrás, og til þess að verða athyglis- verð kona, sem börnin geta verið hreykin af? Framhaldsnám. Frekari menntun mun auka víðfeðmi lífs þíns og gera þér fært að halda áfram að „verða samferða“ börnunum þínum, hvort sem þú ferð aftur í skóla til þess að halda áfram námi, sem þú hættir áður við, eða til þess að afla þér starfsmenntunar og þj álfunar eða til þess eins að vaxa sem persóna. Sjálfboðaliðsstörf. Þau störf, sem þarfnast starfskrafta, eru eins margbreytileg og konurnar, sem vinna þau. Ef ástæðan fyrir því, að þú hefur verið að hugsa um að eignast barn í viðbót, er sú, að þú elskir 'börn, gæti sjálfboðaliðsstarf á dag- heimili orðið mjög innihaldsrík uppbót. Það getur aldrei orðið um að ræða eitthvert fastákveðið svar við spurningunni um, hve mörg börn þú ættir að eignast. Við vitum, að ást sú, sem börnin vekja, veitir geysimikla fullnægingu, og að margir skynsamir eiginmenn og eiginkon- ur munu alltaf meta slíkt ofar öllu öðru. En öll hugsandi hjón ættu að íhuga kostina og gallana og hinn nakta ranveruleika, sem er því samfara að vera foreldri. Svarið verður að koma frá heil- anum ekki síður en hjartanu, þegar það kemur. Family Health. TIL GAMANS — Segið mér, fröken, trúið þér á ást við fyrstu sýn? — Nei, ættum við ekki að hittast aftur á morg- — Jæja, hvernig lízt þér á hann litla bróður minn? — Iss, mér lízt ekkert á ’ann. Þú ihefðir heldur átt að góma storkinn í staðinn. ★ Gamli maðurinn: — Það var rétt hjá ykkur, drengir mínir, að tína þetta pappírsrusl upp af götunni. Hvað gerið þið svo við það? Strákamir: — Við stingum því ofan í póstkassana. ★ Pétur: — Heyrðu, pábbi. Kennarinn sagði í dag, að dýr fengi nýjan loðfeld á hverjum vetri. Faðirinn: — Hafðu ekki svona ’hátt, drengur. Hún mamma þín er inni í stofu. ★ — Farðu ekki of langt út í sjóinn, Siggi minn. — Já, en pabbi er langtum lengra úti. — Já, hann er líka vátryggður. 96 HEIMILI OG SKÓLI

x

Heimili og skóli

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Heimili og skóli
https://timarit.is/publication/1878

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.