Sumardagurinn fyrsti - 01.06.1978, Blaðsíða 3
STJÓRN OG STARFSFÓLK SUMARGJAFAR 1977»
Stjórn felagsins er nú þannig skipuð:
Bragi Kristjánsson forstjóri, formaður
Jón Freyr Þórarinsson skólastjóri,varaformaður
Þórunn Einarsdóttir umsjónarfóstra, ritari
Meðstj órnendur:
Guðrún Guðjónsdóttir forstöðukona
Guðrún Jónsdóttir félagsráðgjafi
Hulda Björnsdóttir skrifstofumaður
Þórunn Friðriksdóttir félagsfræðingur
Varastjórn:
Elín Jóna Þórsdóttir fóstra
María Finnsdóttir fóstra og
Sigurjón ísaksson.
Framkvæmdastjóri er Bergur Felixson.
Á árinu gengu úr stjórn Bragi Kristjánsson og Þórunn Einarsdóttir og
voru þau bæði endurkjörin.
Á skrifstofunni starfa nú Elín Helgadóttir, Jónas Jósteinsson, Margrét
Gísladóttir, Kristín Bjarnadóttir og Ragnhildur Bogadóttir.
Við innritun og vistun barna starfa Lára Gunnarsdóttir og Hólmfríður
Jónsdóttir sem tekur við starfi 1. júní 1978 af Kristínu Ólafsdóttur.
Þórunn Einarsdóttir er umsjónarfóstra.
Finnur árnason garðyrkjumeistari sér um viðhald lóða.
Um áramót hætti Þorsteinn Ólafsson húsasmíðameistari störfum, en á
verkstæði í Laugaborg starfa þeir áfram Björgvin Hermannsson húsgagna-
smiður og Björn Högnason.
í desember 1977 fengu þ2o starfsmenn greidd laun hjá félaginu.
VÖLUSKRÍN.
í maí 1977 festi félagið kaup á leikfangaversluninni Völuskrín. Hefur
rekstur verslunarinnar gengið vel. í aprílmánuði 1978 flutti Völuskrín
í rúmgott og vistlegt verslunarhúsnæði að Klapparstíg 26.
Margrét Pálsdóttir fóstra er verslunarstjóri ög sér jafnframt um
innflutningsverslunina.
SUMARDAGURINN FYRSTI.
Hátíðarhöldin sumardaginn fyrsta voru í samvinnu við skátafélögin í
Reykjavík.
Tvær skrúðgöngur voru farnar og skátar sáu um útiskemmtun í miðbænum
í Reykjavík.
Að venju var fána- og merkjasala á vegum Sumargjafar þennan dag.
REKSTUR DAGVISTARSTOFNANA í EIGU REYKJAVÍKURBORGAR.
1. janúar 1978 urðu tímamót í sögu Barnavinafélagsins Sumargjafar.
Þann dag tók Reykjavíkurborg við rekstri dagvistarstofnana, sem
Sumargjöf hafði áður séð um rekstur á.
Var eftirfarandi samkomulag undirritað af borgarstjóranum í Reykjavík
og formanni Barnavinafélagsins Sumargjafar við hátíðlega athöfn að
Höfða 28. desember 1977:
3