Reykjanes - 01.05.1943, Side 3

Reykjanes - 01.05.1943, Side 3
R E Y K J A N E S Skólamál Suðurnesja. Það hefir verið liaft á orði, að fáir sæktu æðri skólana héðan af Suðurnesjum. Sumum hefir kom- ið þetta undarlega fyrir og kennt um skorti á námfýsi og jafnvel litlum námshæfileikum. Eg full- yrði að hinu siðarnefnda sé að minnsta kosti ekki til að dreifa. Eftir þeim kynnum, sem eg hefi haft af fólki hér, þá er það ekki ogreindara en annarsstaðar. Til skamms tíma liafa mennta- menn okkar ekki átt við nein sér- stök sældarkjör að búa, og stöður þeirra því ekki verið eftirsólcnar- verðar af þeim ástæðum. En á- kvarðanir unglinganna og aðstand- enda þeirra, um hvað gera skuli i lífinu, markast meðal annars af því, hvaða störf muni skapa be'zta afkomu. Ýmsum finnst þetta nú lítilmótlegur hugsunarháttur, en hann er í rauninni ofur eðlilegur, og i beinu samræmi við löngun manna til þess að skapa sér sem öruggasta lífsafkomu. Vertíðin, frá 1. janúar til 11. maí, er hér aðal bjargræðistimi ársins. Athafnalífið dregur ung- lingana að sér um leið og þeir fara að geta eitthvart gert. Þeir venjast því snemma öllum sjávarstörfum, og una þeim síðan, ekki sízt fyrir það, að það er okkar óvissasti og áhættusamasti atvinnuvegur, sem oft getur þó gefið mikið i aðra bönd. Vertíðin hér svarar fyllilega til heyannatímans í sveitunum, og ef skólarnir störfuðu á þeim tíma, þá er ekki ósennilegt að þeir yrðu minna sóttir úr strjálbýlinu. Ungt fólk héðan hefir sótt tölu- vert lægri skólana í sveiunum, og ýsma skóla í Reykjavík, en þó einkum Flensborgarskólann í Hafnarfirði. Með fjölgun íbúanna i Reykjavík og Hafnarfirði er nú svo komið, að skólar þessir full- nægja tæpast þörf þessara bæja, auk þess sem það verður æ erfið- ara, vegna húsnæðisvandræðanna, að fá þar inni, og kostnaðurinn litt viðráðanlegur, að kaupa alla að- búð sitt í hverju lagi. Þegar Flensborgarskólinn var byggður, þá samþykkti sýslunefnd Gullbringusýslu að veita honum kr. 10.000,00 til byggingarinnar, gegn því, að heimavist yrði í skól- anum. Sldlmálum þessum var full- nægt og heimavistin strafrækt þangað til í haust, að hún var lögð niður. Var þetta mjög bagalegt, þar sem heimavistin veitti bæði fæði og húsnæði mun ódýrara en annarsstaðar var fáanlegt. Sé hér um að ræða framtíðarráðstöfun, þá hefir það aukið mjög á erfið- Á annan dag páska komu flest- ir húseigendur úr Keflavilv, aust- an Skólavegar og sunnan Fram- nesvegar, sam,an á fund. Rætt var um hið mikla vandamál kaup- túnsins, livað frárennsli frá hús- um snerti. Á fundinum var mætt Vatns- og skolpveitunefnd Ivefla- víkur, sem skýrði nokkuð frá störfum sínum í þessum málum að undanförnu. Þegar að mál þessi höfðu verið rædd um nokk- urn tíma lagði ,ÓIafur E. iEnars- son fram svohljóðandi tillögu: „Við undirritaðir húseigendur í austanverðu kauptúninu, austan Skólavegar og sunnan Framnes- vegar, saman komnir á fundi i dag, ákveðum að hefjast handa um skolpveitulögn í hverfinu aust- an Skólavegar og Framnesvegar, með eftirtöldum skilyrðum: Að hreppurinn leggi til verk- stjóra, sem sjái um verkið, einn- ig verkfæri og sprengiefni. Að hreppurinn leggi til öll rör til veitunnar. Hinsvegar lofa húseigendur í nefndu hverfi, að leggja fram kr. 750.00 lil 1000.00 á hvert hús til lagnarinnar, sem lán er hreppur- inn greiði síðar, þegar ástæður leyfa, með þeim skilyrðum sem áður liafa verið samþykkt. Nægi ekki framlagt fé til greiðslu vinnulauna, bæti brepps- nefndin því við, sem á vantar.“ íeika Suðurnesjamanna að koma unglingum sinum lil náms. Þó að nú hafi hér, i flestum sjáv- arplássum, verið Iialdið uppi ung- Jingaskólum undanfarin ár, sem hvað Keflavík við kemur að minnsta kosti hefir verið að þakka sérstökum áhuga og' ósérplægni sóknarprests oklcar, síra Eiríks Brynjólfssonar, þá virðist, af framangreindum ástæðum, tíma- bært að fara að vinna að því, að koma hér upp gagnfræðaskóla. Og þar sem Keflavík er fjölmennust, hefir hún hans mest þörf, og vegna legu hennar er hann bezt settur l^ar. G. G. Var tillaga þessi samþykkt með öllum greiddum atkvæðum. Leitað var nú undirskrifta liús- eigenda á nefndu svæði og skrif- uðu svo að segja allir undir til- Jöguna. Hafa þannig um 60 hús- eigendur Ijoðið fram kr. 750—1000 hver, nú þegar, svo hægt sé að hefjast handa urn lagningu þessa hið fyrsta. Á fundi hreppsnefndar, sem haldinn var 2. maí s. 1. var svo íillaga þessi lögð fyrir hrepps- nefnd. Eftir nokkrar umræður lagði Valdimar Björnsson fram svohljóðandi tillögu, sem sam- þykkt var með öllum greiddum atkvæðum: „Fundurinn samþykkir að mæla með ofangreindri tillögu húseig- enda og sé þá miðað við 1000 ki'. framlag frá liverjum húseigenda, og ennfremur, að hreppurinn leggi til, viðkomandi' húseigendum að kostnaðarlausu, verkstjóra, aðal- verkfæri og sprengiefni, og svo aðalútrásina, eixis og t. d. frá Hafn- ai’götu niður heppilegustu leið til sjávar. Framlag húseigenda verður end- urgreitt samkvæmt því, sem ln-eppsnefndin hefir áður sam- þykkt á fundi sínum 25. okt 1942.“ Húseigendur i nefndu hverfi hafa með þessu sýnt mikinn þegn- skap og ve'rið öðrum kauptúns- búum til cftirbreytni.. Hol ræsi í götur Keflavíkur.

x

Reykjanes

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Reykjanes
https://timarit.is/publication/1890

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.