Reykjanes - 01.05.1966, Page 7
Maí 1966
REYKJANES
7
Lóðamál
Sjálfstæðisflokkurinn telur, að ijúka beri sem fyrst lóðamati
því, sem þegar er hafið og er nauðsynlegur undanfari vænt-
anlegs eignarnáms og eignarnámið verði síðan framkvæmt
svo fljótt sem þess er kostur.
Við veitingu byggingarlóða verði Keflvíkingar að öðru
jöfnu látnir ganga fyrir og sérstaklega verði að því keppt,
að ungum bæjarbúum verði á hverjum tíma gefinn kostur á
nægilegum byggingarlóðum.
Fræðslumál
Sjálfstæðisflokkurinn í Keflavík leggur þunga áherzlu á, að
börnum og unglingum í Keflavík verði sköpuð aðstaða til
þeirrar menntunar, sem bezt gerist annarstaðar. Til þess, að
svo megi verða, þarf að leggja ríkt kapp á byggingu skóla-
húsnæðis. Nú á næstunni verða boðnar út viðbótarbygging
við Barnaskólann og bygging 2. áfanga Gagnfræðaskólans
og munu framkvæmdir hef jast nú þegar á þessu sumri. Hins-
vegar telur Sjálfstæðisflokkurinn, að í ört vaxandi bæjarfél-
agi eins og Keflavík, verði skólabyggingum í rauninni aldrei
lokið og mun beita sér fyrir því, að framkvæmdum verði
haldið áfram við byggingar skólahúsnæðis í bænum þegar að
þessum endurbótum loknum.
Sjálfstæðisflokkurinn telur, að stuðla beri að því, að skólar
bæjarins verði ávalt búnir fullkomnum kennslutækjum og að
þeir fylgjist með nýjungum í kennslumálum. Ennfremur, að
sérskólar verði studdir eftir föngum og ástæðum.
Menningarmál
Sjálfstæðisflokkurinn telur, að bæjarfélaginu beri að styðja
almenna félagsmálastarfsemi bæjarbúa, fylgjast með þeirri
starfsemi og örva hana á hverjum tíma.
Iþróttamál
Starfsemi íþróttasamtakanna í bænum verði studd og efld
og haldið verði áfram með uppbygginug íþróttavallarins og
aðstaða sköpuð til iðkunar frjálsíþrótta.
Unnið verði markvisst að því, að bygging fyrirhugaðs
íþróttahúss verði hafin. Æskulýðs- og íþróttafulltrúi verði
ráðinn í fullt starf.
Heilbrigðismál
Sjálfstæðisflokkurinn telur, að óþarfa dráttur hafi orðið á
því að koma stofnun Heilsuverndarstöðvarinnar í fyrirhug-
uguðu húsnæði hennar að Túngötu 11 í framkvæmd og legg-
ur þunga áherzlu á, að Heilsuverndarstöðin taki ekki síðar
til starfa en í haust. En þar sem telja verður, að Heilsuvernd-
arstöðinni sé bezt fyrir komið í sjúkrahúsinu og húsnæði
það, sem henni er nú ætlað sé ekki til langrar frambúðar
miðað við það hlutverk, sem henni er ætlað í framtíðinni,
vill Sjálfstæðisflokkurinn að unnið verði að því í samráði við
þau sveitarfélög, sem að sjúkrahúsinu standa, að það verði
stækkað í þessu skyni og einnig verði þar komið fyrir sjúkra-
deild fyrir vistmenn elliheimilisins Hlévangur. Sjúkrahúsið
verði að öllu leyti þannig úr garði gert, að það fullnægi
þörfum læknishéraðsins og kröfum tímans hvað útbúnað
snertir.
Husnæðismál
Sjálfstæðisflokkurinn í Keflavík lítur svo á, að leggja beri
höfuðkapp á, að bæjarbúar séu sjálfum sér nógir hvað snertir
íbúðarhúsnæði og að stefna bæjarfélagsins eigi að miðast við
að uðvelda þá til sjálfsbjargar, sem við sérstök vandamál
eiga að glíma. Byggingarlánasjóður bæjarins verði efldur að
mun í þessu skyni.
Æskulýðsmál
Sjálfstæðisflokkurinn telur, að hin nauðsynlega starfsemi
Æskulýðsráðs Keflavíkur verði aukin og efld á hverjum tíma
einkum meðal nemenda gagnfræðastigsins og annars æsku-
fólks í bænum. Samvinna verði höfð við aðra, sem vinna að
æskulýðsmálum í bænum, t. d. kirkjuna og íþróttasamtökin.
Samstarfs verði leitað við kennara skólaxma um sköpun tóm-
stundaiðju fyrir æskufólk tengdri bókmenntum og bókleg-
um fræðum. í samvinnu við Æskulýðsráð og væntanlega
verknámsdeild gagnfræðaskólans verði efnt til starfsþjálf-
unar unglinga með námskeiðum undir leiðsögn hæfra leið-
beinenda í þeim starfsgreinum, sem völ er á og henta. Hent-
ug og örugg leiksvæði fyrir yngstu kynslóð bæjarbúa verði
byggð upp og þeim f jölgað.
Hraðað verði byggingu dagheimilisins á lóð Kvenfélags
Keflavíkur og keppt verði að því, að dagheimili verði starf-
rækt allt árið. Athugaðir verði möguleikar á stækkun Æsku-
lýðshússins við Austurgötu til aukinnar starfsemi.
Styðja ber að sumardvöl barna eftir föngum. Báðin verði
kona til að annast heimilishjálp við mæður, þegar veikindi
eða aðrir erfiðleikar bera að. Barnaverndarfulltrúi verði
ráðinn.
Öryggismál
Sjálfstæðisflokkurinn telur, að hraða beri samningum um
sameiginlegar brunavarnir sveitarfélaganna á Suðurnesjum
og kapp verði lagt á, að byggingu Slökkviliðsstöðvarinnar
verði Iokið svo fljótt, sem kostur er á. Ennfremur, að bún-
aður slökkviliðsins verði bættur.
Unnið verði að auknu umferðaröryggi í bænum, bifreiða-
stæðum verði f jölgað svo sem unnt er, götuvitar settir við
f jölförnustu gatnamót í bænum og gangstéttalagningu hrað-
að. Umferðarkennsla verði tekin upp í skólunum.
Fegrun bæjarins
Fagurt og heilbrigt umhverfi hefur holl uppeldisáhrif og ber
því að leggja aukna áherzlu á fegrun bæjarins og þrifalega
umgengni um bæinn í hvívetna.
Telur Sjálfstæðisflokkurinn eðlilegt, að bæjarstjórn hafi
áfram forystu um fegrun bæjarins og styðji þá einstaklinga
og félög, sem leggja hönd á plóginn. Þess verði ætíð gætt, að
bærinn og fyrirtæki hans gengi jafnan á undan með góðu
fordæmi um að hafa mannvirki sín og umráðasvæði snyrti-
leg.
Framhald á bls. 8