Nesfréttir - 01.06.2023, Page 8
8 Nesfrétt ir
Það vantaði ekki þátttökuna, gleðina og
gamanið á 17. júní á Seltjarnarnesi. Frábær
mæting var í skrúðgönguna þar sem mann-
fjöldinn marseraði undir fánahyllingu og
lúðrablæstri. Bakkagarður iðaði af lífi og fjöri
og allir sem fram komu vöktu mikla lukku.
Þjóðhátíðarstemning
á Seltjarnarnesi
Það var svo sannarlega þjóðhátíðarstemning
og nóg um að vera á 17. júní á Seltjarnarnesi
þegar að þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga
var fagnað með pompi og prakt. Fánar blöktu
um allan bæ og fjöldi fólks nýtti sér gott boð
um bátasiglingu frá smábátahöfninni á vegum
björgunarsveitarinnar Ársæls og siglingafélag
sins Sigurfara. Afar fjölmenn skrúðganga gekk
samstillt í takt við trommuslátt og lúðrablástur
lúðrasveitar tónlistarskólans, frá leikskólanum
að Bakkagarði, með fánabera frá ungliðadeildinni
Árnýju fremsta í flokki. Nokkur þúsund manns
komu saman í Bakkagarði þar sem boðið var
upp á mikinn ævintýraheim fyrir börnin með
leiktækjum hvert sem litið var. Þau voru óspart
nýtt allan tímann auk þess sem fjöldi barna skellti
sér á hestbak. Kandífloss, 17. júní nammi, kaffi,
vöfflur og grillaðar pylsur runnu út eins og heitar
lummur enda líka þannig dagur.
Dagskráin á sviðinu var fjölbreytt og
skemmtileg og gestir tóku vel undir
Jóhann Örn, betur þekktur sem Jói dans
stýrði dagskránni á sviðinu og kom öllum í
góðan gír strax í upphafi. Þórdís Sigurðardóttir
formaður menningarnefndar Seltjarnarness
flutti hátíðarávarp og Elma Lísa Gunnarsdóttir
leikkona var fjallkonan 2023. Með glæsibrag
frumflutti hún nýtt ljóð eftir Auði Jónsdóttur,
Sólin úti á Nesi, sem samið var sérstaklega af
þessu tilefni. Íþróttaálfurinn og Solla stirða úr
Latabæ voru hoppandi hress á sviðinu og fengu
stóra sem smáa með sér að hreyfa sig. Júlí Heiðar
og Kristmundur Axel sungu nokkur af sínum
vinsælustu lögum en þeir hafa verið í ofarlega
á vinsældarlistum þjóðarinnar undanfarnar
vikur. Sylvía Erla og Árni Beinteinn tóku svo við
keflinu og sungu og dönsuðu með börnum lög
sem allir þekkja og tóku börnin vel undir með
þeim. Hljómsveitin Karma Brigade sem á svo
sannarlega framtíðina fyrir sér, sló svo botninn
í hátíðardagskránna og flutti nokkur frumsamin
lög sveitarinnar. Smátt og smátt tíndist fólk úr
Bakkagarði og átti vonandi áframhaldandi ljúfan
þjóðhátíðardag eftir góða fjölskylduskemmtun
á Seltjarnarnesinu.
Velheppnuð hátíðarhöld á 17. júní
Þórdís Sigurðardóttir formaður menningarnefndar Seltjarnarness,
Elma Lísa Gunnarsdóttir leikkona og Þór Sigurgeirsson bæjarstjóri.
Afar fjölmenn skrúðganga gekk samstillt frá leikskólanum að
Bakkagarði.
Bátasigling.Gleði í Bakkagarði.