Vesturbæjarblaðið - Nov 2023, Page 4
Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi hefur
reifað nýju máli á vettvangi borgarstjórnar. Málið snýst
um könnun á stuðningi við uppbyggingu sólarsella á
reyk vískum heimilum. Ragnhildur Alda lagði fram tillögu þess
efnis að borgarstjórn beini því til stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur
að skoða fýsileika þess að styðja við uppsetningu sólarsella á
heimilum og var tillagan samþykkt. Ragnhildur segir að nú
sé rétti tíminn fyrir þetta mál. Búið sé að innleiða snjallmæla
á öll heimili og ekkert því til fyrirstöðu að hvert heimili gerist
sín eigin orkuveita. Hún segir kveikjuna að hugmyndinni
þá að þessi tegund orkuöflunar sé mikið að færast í aukana.
Norðmenn séu farnir að vinna að þessu. Þeir hafi áttað sig á því
að eftirspurnin eftir orku vaxi á stigveldishraða. Til þess að anna
þeirri þörf og ná orku skiptunum þurfi allar hendur á plóg. Sá
sé kjarninn í tillögunni. Hún tók sæti í borgarstjórn að loknum
síðustu sveitarstjórnar kosningum en hafði áður starfað sem
varaborgarfulltrúi. Ragnhildur Alda spjallar við Vesturbæjarblaðið
að þessu sinni.
Eftir bolla af americano á
kaffi húsinu Hygge í vesturenda
Hé ð i n s hú s s i n s v i ð S e l jav e g
barst talið að borgarmálum sem
Ragn hildur Alda hefur helgað
líf sitt og starf að undanförnu.
Hún segir málefni borgarinnar
alls staðar. Borgir taki við fólki
þegar dyrum heimilisins sleppi.
Þá blasi afrakstur borgarmálanna
við. „Hvort sem við horfum á
götur eða á gangstéttir, gatna mót
eða umferðarljós blasir borgin
við. Á sama hátt er borgin sýnileg
í skólastarfinu. Í leik skólunum og
grunnskólunum. Borgarpólitíkinn
snertir alla litlu og stóru hlutina í
lífi okkar. Þess vegna skiptir máli
hvernig stefna borgarinnar er.“
Stjórnmálamaðurinn
er alltaf að
„Þetta er góð spurning,“ segir
Ragnhildur Alda þegar hún er innt
eftir hvernig henni hafi hugkvæmst
að gefa kost á sér í borgarmálin.
„Ég ætlaði mér aldrei að fara út í
pólitík. Ég held að þeir sem alast
upp með stjórnmálamönnum
reyni eftir fremsta megni að fara
aðrar leiðir. Faðir minn Vilhjálmur
Egilsson sat á þingi um árabil og ég
var fljót að átta mig á að stjórnmálin
eru lífsstíll eða jafnvel árátta en
ekki hefðbundin vinna frá klukkan
níu til fimm. Stjórnmálamaðurinn
stjórnast ekki af klukku. Hann er
alltaf að. Ég verð að segja að eitt
leiddi af öðru til að ég fór inn á þessa
braut og að lokum fannst mér ég
ekki eiga neina undankomuleið. Ég
álpaðist inn í stúdentapólitíkina.
Var einnig í Heimdalli þar sem ég
ætlaði að láta staðar numið. En
svo tók ég sæti á framboðslista
og varð varaborgarfulltrúi fyrir
Sjálfstæðisflokkinn. Fyrst í stað
var ég aðeins kölluð af og til
vegna vinnu í borgarmálunum.
Ég var í námi á sama tíma. Var að
ljúka sálfræðinámi og bætti síðan
þjónustustjórnun við. Þegar ég
var að stúdera hana sá ég með
nýjum hætti hvað betur mætti
fara borginni. Þá fór ég að íhuga
st jórnmálaþátttöku af meir i
alvöru. Um svipað leyti varð ég
að taka við fleiri verkefnum og
skyldum sem varaborgarfulltrúi.
Egill Þór Jónsson borgarfulltrúi
veiktist og þurfti að leita sér
lækninga erlendis og Jórunn Pála
Jónasdóttir sem var næst honum
í röðinni fór í barneignarleyfi. Þar
með var ég kölluð upp og varð
að sökkva mér ofan í málin sem
fyrsti varaborgarfulltrúi.“
Að láta gott af sér leiða
Ragnhildur Alda segir að þetta
hafi stangast á við fyrirætlanir um
að fara erlendis til framhaldsnáms.
„Einar maðurinn minn var að
ljúka við læknisfræðina. Hann var
farinn að þreifa fyrir sér um sérnám
sem þá þurfti að sækja út fyrir
landsteinana. Þrátt fyrir að ég væri
komin á kaf í borgarmálin vorum
við enn að íhuga að fara erlendis.
En úr því rættist því að mikill hluti
af sérnámi í læknisfræði var tekin
til kennslu hér. Ástæða þess var sú
að margir læknar sem fóru utan til
sérnáms komu ekki aftur en tóku til
starfa erlendis jafnvel við sjúkrahús
eða stofnanir þar sem þeir höfðu
stafað á námstíma sínum. Þótt ég
væri með þennan glugga opinn
að fara erlendis þá ákvað ég að
stökkva á borgarmálin. Mér fannst
að ég gæti gert margt sem komið
gæti að gagni. Minn tími væri komin
og svo yrði ég bara að sjá til með
hversu lengi ég myndi endast.
En ég legg áherslu á mína sýn í
borgarmálunum. Að láta gott af mér
leiða. Annað kemur á eftir.“
Áhersla á meiri breidd
Hvernig lagðist kosningabaráttan
í Ragnhildi Öldu. „Hún lagðist vel í
mig. Ég lagði seint af stað í prófkjör
og hafði um einn mánuð til stefnu.
Þetta var sprettur þar sem ég varð að
hlaupa rosaleg hratt þennan stutta
tíma. En ég upplifði mig umvafna
góðu fólki. Nú er ég farinn að læra
betur á þetta.“ Ragnhildur Alda
kveðst búinn að stilla áhugamálum
sínum upp og farin að kynna
áherslur á meðal borgarfulltrúa
flestra flokka. Hún kveðst vilja
leggja áherslu á meiri breidd en
verið hafi. Á síðasta kjörtímabili hafi
verið ákveðin stefna meirihlutans
í borgarstjórn að hafna öllum
hugmyndum og tillögum sem komu
frá borgarfulltrúum þeirra flokka
sem utan hans stóðu. Samfylkingin
og Sjálfstæðisflokkurinn hafi verið
ákveðnir pólar í borgarpólitíkinni
og Viðreisn klofningsflokkur úr
Sjálfstæðisflokknum sem gengið
hafi til liðs við meirihlutann.
Þetta hafi aðeins breyst með
tilkomu Framsóknarflokksins
eftir síðustu kosningar.
Dagvistunin á fleiri
hendur
Ragnhildur Alda kveðst hafa
verið að skoða rannsókn á þróun
stjórnmálaflokka undanfarin ár. Þar
komi fram að Píratar séu til vinstri
við Samfylkinguna sem sé nær
miðju líkt og Viðreisn en þeir flokkar
falli saman um margt. Framsókn sé
líka meira á miðjunni og með þeim
hafi komið nýir vindar sem blási á
þann veg að meirihlutinn sé hættur
að fella bókstaflega allt sem lagt er
til. „Ef maður hugsar um hvernig
lýðræðið á að virka þá er þetta
mjög klókt hjá þeim. Ekki er aðeins
verið að hugsa um meirihluta og
minnihluta þeirra vegna heldur
að ákvarðanir sem eru teknar séu
af hinu góða fyrir samfélagið.“
Sú spurning veltur upp hvort
sveitarstjórnarmál séu eðli sínu
eins flokkspólitík og landsmálin.
Hún vill meina að landsmálin
séu í fastari flokksskorðum en í
sumum málum séu þessi mörk
þó alveg skýr í borgarmálunum.
„Dagvistarmálin eru dæmi um
málaflokk sem ákveðin ágreiningur
er um. Núverandi meirihlutaflokkar
og þar á ég einkum við Pírata
og Samfylkinguna vilja hafa öll
dagvistarmál á hendi borgarinnar
á meðan við í Sjálfstæðisflokknum
teljum rétt að nýta fleiri kosti. Þar
á ég við að hleypa einkareknum
skólum að. Dagvistarmálin eru
erfiður málaflokkur þar sem stöðugt
er kallað eftir meiri þjónustu. Fólki
fjölgar og kröfur um að börn geti
fegið pláss í leikskólum þegar
fæðingarorlofi lýkur eru nánast
án undantekninga. Við þessu þarf
að bregðast. Með því að fá fleiri
að borðinu tel ég að auðveldara
verði að leysa úr málunum.
Ég tel að fé eigi að fylgja haus í
leikskólunum rétt eins og gert er í
heilbrigðisþjónustunni. Borgin
eigi að hafa eftirlit með öllu kerfinu
en síðan geti aðrir aðilar annast
um reksturinn. Alla vega að hluta.
Þegar einn aðili í þessu tilviki
borgin er með allan reksturinn
eins og er í leikskólamálunum þá
grípur hvaða vandi sem kemur upp
inn í allt kerfið.“
Kunningjatengsl koma
við sögu
Ragnhildur Alda l í tur yf ir
borgarmálin og segir að þegar
flokkar eða samtök séu búin að
vera lengi við völd þá verði oft
áberandi ákveðin kunningja- og
jafnvel ættmennatengsl í hóp
embættismanna og starfsfólks. Þetta
eigi sér stað hjá Reykjavíkurborg og
geti valdið erfiðleikum. Fólk tengist
eftir öðrum leiðum en í gegnum
hlutverk sín í starfi. Sama hvort
um pólitísk störf eða önnur sé að
ræða. „Ég þekki ekki nægilega vel
inn til ríkisins í þessum efnum en
þetta kom mér óvart þegar ég kom
í borgina. Ég hélt að þetta væri barn
síns tíma en virðist lifa góðu lífi í
samfélagi fámennis, ættartengsla og
kunningsskapar. En þetta er engum
hollt og ég get ímyndað mér að
erfitt geti verið fyrir Framsókn að
koma inn með sínar áherslur sem
nýr aðili í samstarfi að aðra sem
setið hafa lengi.“ Ragnhildur Alda
dregur skemmtilega samlíkingu
fram. „Þetta er svipað aðstæðum
konu sem er að byrja með nýjum
manni en þarf að flytja inn í hús sem
hann bjó með fyrri konu og hann
vill engu breyta.“ Talið berst að Degi
B. Eggertssyni borgarstjóra sem
hefur verið pólitískur andstæðingur
Ragnhildar Öldu frá því hún hóf
þátttöku í borgarmálum. Hún segir
Dag mjög klókan stjórnmálamann
og hann hafi náð ótrúlegum árangri
með að halda meirihlutanum
saman. Spurningin sé hins vegar
hvort þessi klókindi hafi verið
nægileg góð fyrir borgina. Hún
bendir á að þótt tekjur borgarinnar
hafi aukist hafi þjónusta ekki vaxið
umfram það sem eru lögboðin
verkefni sveitarfélaga.“
Þurfum að varðveita
gömlu hverfin
Reykjavík hefur breyst mikið á
undanförnum árum. Ragnhildur
Alda tekur undir það og bætir við að
þegar hún horfi á borgarmyndina
komi íhaldsmaðurinn upp sér.
„Þrátt fyrir alla uppbyggingu þá
finnst mér að sum borgarsvæði þurfi
að fá að halda sér. Þá er ég einkum
að tala um gamla Vesturbæinn og
Þingholtin. Þar eigum við ákveðinn
byggingaarf. Þessi gömlu hús.
Timburhúsin meðal annars. Þegar
kemur að þeim verð ég mikil
íhaldskona. Mér finnst skylda okkar
að gæta þess að þessi hús haldi sér
fyrir næstu kynslóðir. Mér finnst
dýrmætt að geta haldi á mynd sem
var tekin fyrir hundrað árum og
sagt „sjáðu hér er húsið.“ Með þessu
getum við rakið söguna frá liðinni
tíð. Mér finnst ekki hægt að setja
verðmiða á þetta.“ Ragnhildur Alda
tekur undir að ekki finnist endalaust
pláss í Reykjavík umlukinni sjó
á þrjá vegu og fjöllum á þá fjórðu.
Þó finnist enn svæði þar sem
byggja megi yfir fólk. Hún nefnir
Kjalarnes sem dæmi þar sem hægt
væri að koma upp byggðakjarna.
Miðborgin og Vesturbærinn séu þó
nánast full byggð.
Deilibílar ekki náð
augum hér
Umferðarmálin ber á góma.
Ragnhildur Alda segir þá stefnu
hafa verið ríkjandi að undanförnu
að vilja stýra því hvernig fólk
ferðast. Verið sé að færa fólk
úr einkabílnum með góðu eða
illu. Hún segir Íslendinga nota
almenningssamgöngur erlendis
en lítið hér heima. Hún tekur
dæmi af vinkonu sinni sem nýlega
flutti heim eftir að hafa búið í
Danmörku. Hún vandist því að nota
strætó og þá einkum venjulegan
strætó eins og við þekkum en ekki
neðanjarðarlest að borgalínu.
Hún sagðist hafa orðið fyrir sjokki
vegna þess hversu mikill munur
er á strætó í Kaupmannahöfn og
Reykjavík. „Annað sem Danir hafa
lagt áherslu á en tæpast náð eyrum
hér eru svokallaðir deilibílar. Þetta
kerfi hefur verið að vaxa og dafna
í Danmörku. Ekki þarf að greiða
Vesturbæjarblaðið NÓVEMBER 2023
Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi.
4
„Dagvistarmálin eru erfiður málaflokkur þar
sem stöðugt er kallað eftir meiri þjónustu. Fólki
fjölgar og kröfur um að börn geti fengið pláss
í leikskólum þegar fæðingarorlofi lýkur eru
nánast án undantekninga. Við þessu þarf að
bregðast. Með því að fá fleiri að borðinu tel ég
að auðveldara verði að leysa úr málunum. Ég
tel að fé eigi að fylgja haus í leikskólunum rétt
eins og gert er í heilbrigðisþjónustunni.“
Viðhorfsbreytingu vantar
- segir Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir borgarfulltrúi