Vesturbæjarblaðið - nov. 2023, Side 6
6 Vesturbæjarblaðið NÓVEMBER 2023
Hótel Holt Hausta hefur lagt fram fyrirspurn um uppbyggingu á
lóðinni við það. Hún stendur skáhallt á móti Hótel Holti.
Fram kemur í greinargerð með fyrirspurninni að lóðin hafi
undanfarið verið leigð út sem bílastæði fyrir nágranna. Áður fyrr
var hún nýtt sem bílastæði fyrir gesti Hótel Holts. Lóðin er 267
fermetrar að stærð. Á lóðinni stendur lítið rautt timburhús, byggt 1906
og því friðað.
Reiturinn er samkvæmt aðalskipulagi Reykjavíkur 2040
skilgreindur sem íbúðabyggð. Hvorki er í gildi hverfisskipulag né
deiliskipulag fyrir reitinn.
Fram kemur í greinargerð arkitekts Att Ark ehf. að nýbygging á
reitnum verði endanlega hönnuð samkvæmt áskilnaði um að nýjar
byggingar í eldri hverfum verði lagaðar að einkennum byggðarinnar
og verði aðeins heimilaðar sé sýnt fram á að þær séu til bóta fyrir
heildarsvip byggðarinnar.
Verður byggt á
Berg staðastræti 32A?
Grenndarstöðvar
fá nýtt hlutverk
Nú er unnið að því að breyta
grenndarstöðvum í Reykjavík
fyrir nýtt hlutverk. Byrjað verður
að taka á móti glerum og málum
í staðinn fyrir plast og pappír.
Ástæður breytinganna má rekja
til þess að nýtt og samræmt
flokkunar kerfi fyrir heimilissorp
hefur verið innleitt á höfuðborgar
svæðinu. Breytingarnar verða
innleiddar í áföngum og er fjölgun
málmagáma stærsta breytingin.
Eftir að byrjað var að sækja pappír
og plast við öll heimili hefur þörfin
minnkað fyrir grenndargáma þar
sem tekið er við þeim flokkum.
Samhliða þessum breytingum sé
skylt að flokka gler og málma og
því verður gámum sem taka við
þessum flokkum fjölgað um meira
en helming, eða úr 13 í 29 fyrir
áramót. Málmar mega ekki lengur
fara lausir í gráu tunnuna eins og
áður var leyfilegt. Merkingakerfi
fyrir grenndargáma verður á næsta
ári samræmt við nýjar merkingar
á heimilisflokkun og verður
merkingin eins og límmiðarnir á
tunnunum við heimili fólks. Á sama
tíma verða settir upp skynjarar í alla
grenndargáma, sem segja til um
hvenær gámarnir eru fullir.
- tekið verður við málmum og glerjum í stað pappírs og plasts
Sýnishorn af því hvernig grenndarstöðvarnar munu líta út í framtíðinni.
Þessi er við Laugalæk.
Lóðin við Bergstaðastræti 32 er nýtt sem bílastæði.
Elín Sigrún Jónsdóttir, lögmaður | Tryggvagötu 11, 2. hæð
Sími 783 8600 | elin@buumvel.is | www.buumvel.is
Vantar þig þjónustu
við dánarbússkipti,
sölu og ráðstöfun eigna?
SÉRHÆFÐ
LÖGFRÆÐIÞJÓNUSTA
VEGNA BÚSETUSKIPTA
MEÐ ÁHERSLU Á 60+
Fyrsta október sl. voru 2.810
íbúðir í byggingu í Reykjavík.
Alls voru 2.565 íbúðir í byggingu
á byggingarhæfum lóðum.
2.884 íbúðir voru samþykktar í
deiliskipulagi og 9.400 íbúðir voru
í skipulagsferli. Á skilgreindum
þróunarsvæðum var síðan gert
ráð fyrir 5.230 íbúðum. Þetta
kom m.a. fram á kynningar
fundi um uppbyggingu íbúða í
Reykjavík nýverið.
Á kynningarfundinum kom
fram áhersla borgarinnar á að
skapa skilyrði til að á hverjum
tíma séu nægilega margar lóðir
byggingarhæfar og hún getur
einkum haft áhrif á fyrri stigum
skipulagsferilsins, en á síðari stigum
eru það einkum lóðarhafar sem
ráða hraða uppbyggingarinnar.
Í Kortasjá er hægt að sjá nýrri tölur
um stöðu mála niður á hverja lóð
eða uppbyggingarreit.
Nær þrjú þúsund
íbúðir í byggingu
Mikla byggingaframkvæmdir standa yfir við Snorrabraut og er
götumyndin við vestanverða götuna gerbreytt.
hreinsum
fyrir þig
við
Ægisíðu 115 - Sími 552 4900
hradi@fatahreinsun.is
HRAÐI fatahreinsun
www.fatahreinsun.is
Alhliða fatahreinsun og þvottahús síðan 1966
Hugmyndir eru um að neðsti
hluti Bergstaðastrætis á milli
Skóla vörðustígs og Laugavegar
verði gerð að vistgötu. Málið
má rekja til óskar húseigenda
og rekstrar aðila við neðsta
hluta Berg staðastrætis að þessi
hluti götunnar yrði gerður
að göngugötu.
Ósk þessi var tekin til afgreiðslu á
fundi skipulagsfulltrúa Reykjavíkur
nýlega. Í umsögn verkefnastjóra
skipulagsfulltrúa kemur fram að
ekki sé hægt að breyta Bergstaða
stræti, milli Skólavörðustígs
og Laugavegar, í göngugötu.
Samgöngu stjóri borgarinnar hyggist
hins vegar taka þetta til skoðu
nar og telur raunhæfari kost að
skilgreina þennan kafla af götunni
sem vistgötu. Séð upp Bergstaðastræti frá Laugavegi að Skólavörðustíg.
Vistgata en ekki göngugata