Vesturbæjarblaðið - nov. 2023, Síða 14
14 Vesturbæjarblaðið NÓVEMBER 2023
Kalt febrúarmiðdegi á Drafnarborg veturinn 1984.
Faðir hafði fylgt fjögurra ára syni sínum í leikskólann.
Á þeim tíma áttu ekki öll börn vist í leikskóla. Börn
einstæðra foreldra og námsfólks sátu fyrir. Á fyrri hluta
níunda áratugsins var þó farið að taka við börnum í
hálfsdagspláss. Helst ef foreldrar þekktu einhvern í
kerfinu sem gat liðkað fyrir. Bryndís leikskólastjóri
tók vel á móti drengnum eins og ætíð. Á eftir spurði
hún föðurinn hvort hann væri að flýta sér. Hvort hann
hefði tíma til að eiga við sig orð. Komdu með mér inn
á skrifstofu. Ég ætla að kynna þig fyrir vinkonu minni,
sagði Bryndís.
Í dyrunum á litlu skrifstofunni hennar mætti
komumaður vinkonunni. Þar var Auður Laxness.
Hádegishléi föðurins lengdist óvænt því þarna varð til
gott spjall og óvænt kynni við ekkju nóbelsskáldsins.
Þannig var Bryndís. En hún var annað og meira. Fóstra
eins og leikskólakonur hétu þá. Frumkvöðull á sínu sviði.
Minnisstæð fyrir sérstætt útlit og sértaka persónuleika.
Það halda sumir að ég sé finnsk, sagði hún eitt sinni þegar
hún mætti og átti tal við vegfaranda á Kaplaskjólsveginum.
Myndarlega var hennar minnst í minningarorðum. Orðlag
sem henni fannst frekar niðrandi þegar hún var sjálf
til umræðu því hún hafði alist upp við að tvíburasystur
hennar sem lést á 16. aldursári væri sögð falleg
en Bryndís myndarleg.
Fyrsti sérmenntaði leikskólakennarinn
Bryndís var fyrsti sérmenntaði leikskólakennarinn á
Íslandi. Hún lauk leikskólakennaraprófi frá Fröbel Hojskole
í Kaupmannahöfn vorið 1939. Hún rak leikskóla í Reykjavík
1941 til 1942 og veitti forstöðu sumardvalarheimili Rauða
krossins í Stykkishólmi tvö sumur á stríðsárunum. Hún rak
sitt eigið barnaheimili við Amtmannsstíg um nokkurt skeið.
Hún var forstöðukona á vistheimilinu Vesturborg 1939
til 1940. Hún starfaði á ýmsum leikskólum Sumargjafar í
Reykjavík 1942 til 1950 og var forstöðukona Drafnarborgar
1950 til 1992 að hún lét af störfum vegna aldurs.
Talaði aldrei niður til barna
Auður Laxness minntist vinkonu sinnar við fráfall
hennar og sagði þá meðal annars í minningargrein að
lífsstarf Bryndísar hafi verið að sinna börnum þar sem hún
hafi átt fáa ef nokkra líka. Hún hafi aldrei talað niður til
barna, talaði mikið við þau, mikið meira en við foreldrana
og alltaf sem jafningja. Hún sagði Bryndísi hafa verið
mannþekkjara meiri en aðra og það stóð allt þegar börnin
uxu úr grasi. Alltaf hafi þeir eiginleikar komið fram sem
Bryndís hafði sagt fyrir.
Fann upp á nýju á hverjum degi
Valgerður Þóra Benediktsson bókasafnsfræðingur
og vinkona Bryndísar minntist hennar einnig. Hún
staldraði meðal annars við Drafnarborg og eftirminnileg
stjórnunarstörf hennar. Hún sagði Drafnarborg hafa verið
skemmtilegan og tilbreytingarríkan vinnustað. Bryndís hafi
alltaf fundið upp á einhverju nýju hvern einasta dag, að fara
út að ganga, fara inn og lesa, borða, lita, leira, vefa, leika sér,
út aftur. En ógleymanlegastar væru jólaskemmtanirnar á
Drafnarborg. Þá skúruðum við og skreyttum gamla, góða
húsið við Drafnarstíg.
Valdi úrvalsfólk til starfa
Bergur Felixson er lengi hélt utan um leikskóla
Reykjavíkurborgar sagði um Bryndísi að hún hafi verið
mjög eftirminnileg manneskja og átti sér þá hugsjón eina,
að börnunum, sem hún hafði fóstrað, vegnaði vel. Hún
mundi eftir sínu fólki og einn sterkur eiginleiki hennar hafi
verið að hún valdi úrvalsfólk til starfa, sem átti sinn þátt í
velgengni hennar.
Mannblendin og félagslynd
Bryndís var sterk og sjálfstæð kona og lifði lífinu eftir
sínu eigin lagi. Hún fór eigin leiðir, hjólaði um bæinn þótt
fáir sæjust þá á hjóli. Bryndís naut þess að vera frjáls og
fara víða. Hún ferðaðist mikið allt sitt líf bæði hér á landi
og erlendis. Hún var fróðleiksfús um framandi staði og
menningu og vildi upplifa hlutina af eigin raun. Hún var
mannblendin og félagslynd. Sem leikskólakennari og
forstöðukona barnaheimilis um áratuga skeið þekkti hún
marga og fylgdist vel með þeim börnum sem höfðu verið
undir hennar verndarvæng. Hvers kyns hindranir voru ekki
að hennar skapi og hún lét þær ekki hafa áhrif á fyrirætlanir
sínar. Hún mætti í heimsóknir og fór eftir sinni eigin klukku
og hafði alltaf ákveðnar skoðanir á mönnum og málefnum.
Ævistarfið var helgað börnum
Eldri og miðaldra Vesturbæingar muna margir
eftir Bryndísi. Margir fleiri en þeir sem hún gætti
í leikskólastarfnu. Hún bjó lengi í Skjólunum og ýmist
gekk eða hjólaði upp eða niður Kaplaskjólsveginn til og
frá vinnu. Bryndís tók bílpróf á efri fullorðinsárum. Kom
framtak hennar mörgum í opna skjöldu en sýndi vel hvað
var í hana spunnið. En börnin áttu hug hennar allan. Hún
hafði ætíð mikinn áhuga á því sem börin voru að gera og
spurði margs um leiki þeirra og nám. Enda má segja að
ævistarf hennar hafi verið helgað börnum. Bryndís átti ekki
börn sjálf en með sanni má segja að ótrúlegur fjöldi barna
hafi átt Bryndísi. Stundum var því vellt fyrir sér hvort hún
væri forspá. Hún taldi sig geta séð fyrir framtíð barnanna.
Hvort hún las í persónur þeirra og hegðun eða haft kynni
af foreldrum þeirra til viðmiðunar er ekki auðvelt að segja
til um. Því hélt hún fyrir sig. Um forspárleika hennar verður
ekki dæmt hér en þó munu vera ýmis dæmi um það sem
hún lagði fyrir hafi gengið eftir. Hún fylgdist vel með sínum
börum eftir að leikskólagöngu þeirra lauk og oft hafði
hún á orði að eiginleikar mannanna kæmu fram strax í
frumbernsku. Bryndís Zoëga var einn af eftirminnilegustu
einstaklingum í Vesturbænum á síðari hluta liðinnar aldar.
Bryndís Zoëga
Vesturhlíð 2 | Fossvogi | s. 551 1266 | utfor@utfor.is | utfor.is
VIÐ ÞJÓNUM ALLAN SÓLARHRINGINN
Útfararþjónusta
í yfir 70 ár
Eftirminnilegur
einstaklingur
í Vesturbænum
Bryndís Zoëga innan við hliðið í leikskólanum
Drafnaborg. Börnin voru aldrei langt undan.
Í Vesturbæ Reykjavíkur býr
Nordjobbari sem vinnur sem
þjónn á Grand Hótel. Rikke kom
til Íslands stuttu eftir að hún lauk
Menntaskóla í bænum Virklund
sem er í nágrenni við Silkeborg í
Danmörku. Danir taka sér gjarnan
árs frí frá skóla eftir Menntaskóla
til að njóta lífsins, Danir kalla það
„Sabbatår.“ Á sabbatárunum taka
þau sér vinnu (oft á leikskóla), fara
í lýðháskóla og ferðast. Sumir fara
í Nordjobb þar sem þau slá tvær
flugur í einu höggi, upplifa annað
land og hafa tekjur.
Á Grand Hótel þjónar Rikke fólki
frá öllum hornum heimsins. Hún
hefur áhuga á íþróttum og hefur
fengið tækifæri til að þjóna og hitta
landslið Íslands og Portúgal þegar
löndin kepptu í undankeppni EM
2024. Dagarnir eru krefjandi og
íþróttaúrið telur 15.000-20.000
skref yfir daginn sem gerir það að
verkum að vinnudagarnir líða hratt
og hún fær betra tækifæri til að
njóta dagsins. Rikke hefur meðal
annars fengið að kynnast þeirri
íslensku hefð að þegar að sumar-
veðrið er frábært er allt í lagi að
taka auka pásu til að njóta þessarar
fágætu hamingju.
Hefur eignast vini og
dafnað félagslega
Veturinn 2022 flutti Rikke til
Íslands, hún hefur eignast vini hér
og dafnað félagslega. Hún segir
að við það að flytja og hefja störf í
veitinga bransanum hefur hún
fengið tækifæri til að vera opnari
félagslega og opin á annan hátt. Á
vinnustaðnum er sterkur liðsandi,
hún vinnur með sama hópnum á
hverri vakt undir leiðsögn reynslu-
mikils hópstjóra. Hún fer í ræktina
með samstarfskonu sinni frá Hvera-
gerði og utan vinnutíma hefur hún
kynnst nokkrum dönskum jafn-
öldrum sínum. Þær halda alþjóð-
legan sauma klúbb einu sinni í
viku og hafa meira að segja boðið
í danska veislu þar sem dönskum
siðum var fagnað.
Á meðan að Íslandsdvölinni
stóð hefur Rikke nýtt hvert einasta
tækifæri til að kanna og upplifa
þessa undurfögru eyju. Ferða lögin
eru of mörg til að telja en Vest-
manna eyjar hafa fangað hug hennar
og hjarta. Hún ætlaði að ganga
Fimmvörðu háls með kærastanum
sínum en það varð ekkert úr þeirri
ferð vegna þess að íslensk demba
neyddi þau til að hætta við.
Ómetanleg starfsreynsla
Starfstímabilið fer núna að
líða undir lok, ferðalög og önnur
ævintýri bíða Rikke. Sambandið við
vinnustaðinn eru góð þannig að hún
er alltaf velkomin til að taka auka-
vaktir, það kostar víst að vera til. Hún
telur það ekki líklegt að hún muni
halda áfram í veitingageiranum en
þessi starfsreynsla hefur verið henni
ómetanleg þar sem að hún mun
taka með sér bætta enskukunnáttu,
skipu lagshæfileika og jafnvægi
vinnu og einkalífs.
Frá Himmelbjerget
að Fimmvörðuhálsi
Nordjobbarinn Rikke frá Danmörku nýtur sín í íslenskri náttúru.
Einn elsti leikskóli borgarinnar Drafnarborg við
Drafnarstíg fagnaði 70 ára afmæli í október 2020.
Leikskólinn Drafnarborg tók til starfa 13. október
1950 og var fyrsti leikskóli borgarinnar sem
teiknaður var sem barnaheimili og byggður með
þarfir ungra barna í huga. Arkitekt hússins var Þór
Sandholt. Leikskólinn var rekinn af Barnavinafélaginu
Sumargjöf fram til ársins 1987 þegar Reykjavíkurborg
tók við rekstr inum. Þá var Bryndís Zoëga
leikskólastjóri og hafði gegnt því starfi frá upphafi.
Alls starfaði hún í 41 ár á Drafnarborg.