Börn og menning - 2022, Page 15
15
Arndís Þórarinsdóttir
Stundum þurfum við öll að velta okkur upp úr óhamingjunni. Ljóshærðar
leikskólastúlkur á níunda áratug síðustu aldar mættu að mínu viti ekki nægri
samkennd þegar svo áraði. Þeim var sagt að þær hefðu undan engu að kvarta,
sem var í sjálfu sér rétt, en alls ekki það sem þær vildu heyra.
Þess vegna small eitthvað í mínu smáa höfði þegar sagan um Gunnhildi og
Glóa var lesin fyrir mig. Sagan gerði ekki lítið úr hversdagslegu óyndi – þvert
á móti. Í ofanálag leyfði höfundurinn upp úr því að spretta ævintýri fullt af
göldrum og geislasteinum. Mamma las hana fyrir mig aftur og aftur.
Bestu bækurnar hjálpa okkur að skilja heiminn án þess að útskýra hann. Í
því lá galdur Guðrúnar Helgadóttur.
Gerður Kristný
Í afahúsi, uppáhaldsbókin mín eftir Guðrúnu Helgadóttur, segir frá
Tótu sem á skáld að föður. Fjölskyldan er svo blönk að Tótu þykir sjálf-
sagt að vinda sér að ókunnugum manni í bókabúð og selja honum bók
pabba síns. „Heldurðu að það væri munur ef þrettán skáld gætu haft
fulla vinnu allt árið við að framleiða bækur handa Íslendingum? Ha?“
spyr hún manninn og útskýrir síðan: „Eins og Pólverjarnir þrettán sem
eru allt árið að framleiða prinspóló handa okkur í Póllandi.“
Þetta grín er dæmigert fyrir Guðrúnu; óvænt og þrungið skilaboðum.
Að venju bregður hún upp öruggum heimi því vandamálin sem persón-
urnar glíma við eru raunsæ og lausnirnar þar með líka. Allur hátíðleiki er
víðs fjarri. Hér má mylja ljóð og þylja kex.
Að hugsa sér að jafn fámenn þjóð skyldi geta af sér rithöfund eins og
Guðrúnu Helgadóttur!
Gerður Kristný.
Mynd: Sigtryggur Ari Jóhannsson.
Ævar Þór Benediktsson
Leikritið Óvitar er í uppáhaldi hjá mér. Svo einföld hugmynd. Svo
listilega framkvæmd. Hér snýr Guðrún öllu á haus og leyfir börnun-
um endanlega að taka yfir. Það er ekki að ástæðulausu sem þetta verk
er reglulega sett upp; sagan er falleg og uppsetningin gefur leikurum
framtíðarinnar tækifæri til að láta ljós sín skína. Talandi um að setja sig
í spor lesenda sinna!
Ævar Þór Benediktsson.
Mynd: Saga Sig.
Arndís Þórarinsdóttir.
Mynd: Gassi.