Börn og menning - 2022, Síða 26
Nornasaga, þríleikur:
Hrekkjavakan (2019)
Nýársnótt (2020)
Þrettándinn (2021)
Höfundur: Kristín Ragna Gunnarsdóttir
Útgefandi: Bókabeitan
Fyrir síðustu jól kom út þriðja og síðasta bókin í þrí-
leiknum Nornasaga eftir Kristínu Rögnu Gunnars-
dóttur. Bækurnar þrjár eru kenndar við hrekkjavöku,
nýársnótt og þrettándann, kynngimagnaðar tímasetn-
ingar á árinu.
Kristín Ragna er þekkt fyrir að færa Íslendinga-
sögurnar nær börnum líkt og í bókunum Hávamál og
Völuspá þar sem hún myndlýsir ljóð Þórarins Eldjárns
sem enduryrkir þessa gömlu speki á nútímamáli svo
fjölskyldur eigi greiðari aðgang að sagnaarfinum. Krist-
ín Ragna hefur áður skrifað þríleik sem snertir á nor-
rænum goðsögnum en það eru bækurnar um Úlf og
Eddu. Hún er því ekki á nýjum slóðum í Nornasögu en
þar eru nornir norrænnar goðafræði teknar sérstaklega
fyrir og hin ógurlega Gullveig er í aðalhlutverki.
Galdranornir á samfélagsmiðlum
Fyrir þremur árum, þegar ég las fyrstu bók þríleiksins,
varð ég heilluð af söguheimi Kristínar Rögnu. Hún
umbreytir miðbæ Reykjavíkur í galdraveröld og fyllir
frásögnina lifandi persónum. Söguhetja bókanna er hin
seinheppna Katla Þórdísar- og Ugludóttir sem er í raun
Göldróttur þríleikur
Kristínar Rögnu
Rebekka Sif Stefánsdóttir
Bækur
ósköp venjuleg tíu ára stúlka, hún er bara svolítið
klaufsk og ævintýrin virðast elta hana. Í fyrstu bókinni,
Nornasaga – Hrekkjavakan, opnar Katla galdragátt
þegar hún snertir fornt Íslandskort á Listasafni Íslands.
Upp úr kortinu gýs hin hégómafulla og valdaþyrsta
Gullveig í miklum hefndarhug og veldur í kjölfarið alls
konar óskunda í Reykjavík. Hallgrímskirkja verður að
höll hennar, Gullveigargarði, Sólfarið breytist í tívolí-
skip og nánast allir landsmenn eru hnepptir í álög sem
valda brjáluðu kaupæði. Með henni kemur einnig hala-
laus rottuher sem getur breytt sér í starra á svipstundu.
Það fellur í hlut Kötlu að koma Gullveigu aftur til síns
heima og stöðva ráðabrugg hennar, sem er að verða
voldugasta norn allra níu heimanna.
Hversdagsleg vandamál Kötlu koma einnig við sögu.
Hún er nýbyrjuð í Austurbæjarskóla og virðist alls ekki
falla inn í hópinn. Stelpuklíka, sem leidd er af hinni
óviðkunnanlegu Emblu, gerir grín að Kötlu og vilja
þær alls ekki vera með henni. Katla kynnist þó Mána,
þöglum og hógværum dreng, sem kemst í hann krapp-
an þegar Gullveig hneppir hann í álög. Gullveig er
snjöll og beislar samfélagsmiðla til að koma fólki undir
sitt vald. Hún gerist áhrifavaldur og verður dýrkuð og
dáð af þjóðinni sem blindast af gylliboðum hennar.
Kristín Ragna er flink í að flétta fyrirbærum nútímans
inn í söguna, líkt og neysluhyggju, kapítalisma og
óhóflegri snjalltækjanotkun. Þá er trú almennings á
öllu því sem svokallaðir áhrifavaldar boða tekin sérstak-
lega fyrir.
Það má segja að í hverri bók þríleiksins sé að finna