Börn og menning - 2022, Blaðsíða 29
29Göldróttur þríleikur Kristínar Rögnu
aldrei dampinn frá fyrri bókum. Bókin er frábær loka-
hnykkur á bókaflokknum, þar sem Katla hefur þroskast
í fullgerða norn, gert upp uppruna sinn og horfst í augu
við umdeildan föður sinn.
Kynngimagnaðar myndir
Myndlýsingar Kristínar Rögnu eru í sérflokki, en hún
er menntuð í grafískri hönnun. Í Nornasögu fá mynd-
irnar að njóta sín í lit en flestallar bækur fyrir þennan
aldurshóp eru svarthvítar. Myndirnar eru spennandi
fyrir augað, fjölbreyttar og mjög vandaðar. Þær styðja
við atburðarrásina, en bæta einnig við einhverju nýju.
Stundum eru þær þarna aðeins til að virkja ímyndunar-
afl lesandans enn meir, þar sem oft má ekki sjá öll smá-
atriði heldur skugga eða einföld form fyrirbæranna sem
þær sýna. Reglulega koma myndir af persónunum inn í
textann þegar þær eru fyrst kynntar til leiks en einnig
má sjá andlit persónanna skreyta bæði fyrstu og síðustu
síður bókanna. Mikið er notast við uppbrot á textanum
þar sem feitletranir, litir og myndrænar sprengjur birt-
ast á síðunum til að halda athygli lesandans og styðja
við textann. Höfundareinkenni Kristínar Rögnu má
þekkja langar leiðir og mikill metnaður er lagður í að
gera bækurnar að litlum listaverkum.
Gáskafull ævintýri og
tilfinningaríkar persónur
Að lokum verður að minnast á að það sem hrífur
lesendur við bækurnar er ekki aðeins hraður og
æsispennadi söguþráðurinn, heldur einnig litríkur
orðaforði og stíll Kristínar Rögnu. Textinn er lifandi
og uppfullur af frásagnargleði. Það er erfitt að finna
dauðann punkt í frásögninni.
Sterkar barnabækur eru ekkert án sögupersóna sem
halda lesendum við efnið. Hugrekki og staðfesta Kötlu
er aðdáunarverð og hafa börn í henni sterka fyrirmynd
sem þau geta speglað sig í. Hún er hvorki vinsælasta
stelpan í skólanum né sú klárasta eða sætasta, en hún
stendur með sjálfri sér og dembir sér út í hættulegar
aðstæður, allt til að bjarga þeim sem hún elskar. Hún er
réttsýn og svolítið fljótfær en allir hennar brestir gera
hana svo viðkunnanlega.
Nornasaga er virkilega vel heppnaður þríleikur sem
ber með sér ástríðu höfundar á norrænum goðsögnum
og nútímalega miðlun þeirra til barna. Í bókunum má
bæði finna gáskafull ævintýri og tilfinningaríkar
persónur sem lesendur á öllum aldri geta tengt við. Og
er það ekki allt sem ungir lesendur vilja?
Höfundur er skáld og bókmenntafræðingur