Fréttir - Eyjafréttir - 23.03.2023, Page 10
10 | | 23. mars 2023
„Ég er mjög þakklátur þeim sem
hafa staðið í stafni í þessu stóra
verkefni, Rafeyri á Akureyri,
Vélsmiðjan Þór, Skipalyftan
og Miðstöðin, allt fyrirtæki
sem stóðu sig alveg gríðarlega
vel í þessu stóra verkefni sem
hrognahúsið er. Frá upphafi voru
menn tilbúnir að taka tillit hver
til annars. Þetta varð að gerast á
milli vertíða og allir stilltu sig inn
á það. Ákvörðun um að byggja
nýtt hrognahús var tekin fyrir 28
mánuðum. Fyrra árið var gert það
sem hægt var án þess að trufla
vinnsluna,“ Stefán Friðriksson,
framkvæmdastjóri um nýja
hrognastöð sem félagið tók í
notkun í upphafi hrognavertíðar á
loðnunni.
Allt varð að ganga upp til að
tímasetning stæðist og með því
að stilla saman strengi tókst það.
Strax eftir vertíðina í fyrra var
öllu rutt út úr gamla húsinu á
einni helgi og allir tilbúnir að
vinna saman. „Það var alveg ljóst
að þetta varð að vera tilbúið á
réttum tíma. Við undirbjuggum
okkur og gerðum það sem hægt
var á fyrra árinu og svo var keyrt
á það. Allir meðvitaðir um að allt
yrði að vera klárt, annað var ekki
í stöðunni,“ segir Stefán og nefnir
þá sem höfðu yfirumsjón með
verkinu.
Öflugur hópur
Björn Brimar framleiðslustjóra,
Eyþór Harðarson útgerðarstjóra,
Jónas Þorsteinsson rafvirkja og
Pál Scheving verksmiðjustjóra.
„Sérstaklega vil ég nefna Guðlaug
Friðþórsson, Lauga vélstjóra.
Hefði hann ekki lagst á þetta
verkefni af öllum sínum þunga
værum við ekki að framleiða
hrogn í dag. Hann á fálkaorðuna
skilið fyrir sitt framlag. Það er
ómetanlegt að hafa menn sem
brenna fyrir það sem við erum að
gera. Þetta hefði aldrei verið hægt
öðruvísi.
Það á við alla, líka þá sem
sköffuðu búnaðinn. Menn voru
meðvitaðir um hvað var í húfi og
við erum að uppskera eins og þeir
sáðu. Er ég mjög þakklátur fyrir
það því það er ekkert þægilegt að
rífa heilt hús og raða upp aftur.
Verkinu þarf að ljúka á ákveðnum
degi og það hafðist með góðu
fólki og góðu skipulagi. Þar voru
Laugi,Jónas og Eyþór í stafni.
Laugi sá um að tryggja að allur
búnaður og efni skilaði sér á
réttum tíma fyrir iðnaðarmenn.
Þetta tókst þrátt fyrir áhrif Covid
og stríðsins í Úkraínu,“ sagði
Stefán.
Ekki um annað að ræða
Stefán segir að gamla hrognahúsið
hafi bæði verið of lítið og úr
sér gengið og ekki um annað
að ræða en að ráðast í miklar
framkvæmdir. „Það fyrsta sem
við gerðum var að reisa tankana
sem landað er í og taka samtals
um 2000 rúmmetra. Þeir hafa
reynst vel og flýtt fyrir. Sem dæmi
þá fór Sigurður út í gær og hann
var byrjaður að veiða áður en
við kláruðum að vinna aflann úr
honum. Þessir tankar geta alveg
jafnast á við eitt i skip vegna
styttri inniveru skipanna,“ segir
Stefán.
„Í verksmiðjunni sjálfri er frábær
aðstaða, hátt til lofts og vítt til
veggja, bjart og góð aðstaða
fyrir starfsfólkið og fullkominn
búnaður til að kútta loðnuna
og vinna hrognin. Áhersla er
lögð á góða yfirsýn og þægilega
vinnuaðstöðu. Við nýtum svo
leiðslurnar sem við lögðum
frá Fesinu, kílómetra leið, að
frystihúsinu í Friðarhöfn og
dælum hrognunum yfir sem við
höfum gert í mörg ár með góðum
árangri. Umferð um Strandveginn
minnkaði og hreinlæti er eins
og best verður,“ segir Stefán
og leggur áherslu á mikilvægi
hreinlætis.
Miklar kröfur
„Varan sem við skilum er ekkert
meðhöndluð af kaupendum og
gerðar miklar kröfur um hreinlæti
sem við þurfum að uppfylla.
Hrognin eru m.a. notuð í sushi,
þau eru lituð og notuð sem skraut
á ýmsa rétti. Líka í salat og
smyrjur. Hrein hrogn sem er gott
að lita og vinna með.“
Stefán segir í raun furðulegt
hvað markaður fyrir loðnuhrogn
er stór. „Við erum að keppa við
síldarhrogn og flugfiskahrogn en
Stefán og framvarðarsveitin, Jónas, Guðlaugur og Björn Brimar.
Nýtt hrognahús Ísfélagsins Höfðu 28 mánuði til að ljúka verkinu:
Hafðist með öflugu og góðu
fólki og skipulagi
ÓMAR GARÐARSSON
omar@eyjafrett ir. is