Fréttir - Eyjafréttir


Fréttir - Eyjafréttir - 23.03.2023, Qupperneq 20

Fréttir - Eyjafréttir - 23.03.2023, Qupperneq 20
20 | | 23. mars 2023 Þann 28. apríl nk. verður haldin tónlistarhátíðin Hljómey í Vestmannaeyjum. Hátíðin fer fram á 11 heimilum víðs vegar um miðbæ Vestmannaeyja og 14 atriði koma fram. Þau eru Júníus Meyvant, Magnús Þór Sigmundsson, Una Torfa, Emmsjé Gauti, Valdimar Guðmundsson, Foreign Monkeys, ELÓ, Molda, Karlakór Vestmannaeyja, Merkúr og Helga & Arnór, Tríó Þóris, Hrossasauðir og Blítt og Létt. Verkefnið sjálft er óhagnaðardrifið samfélagsverkefni sem unnið er í samvinnu við Ferðamálasamtök Vestmannaeyja, Vestmannaeyjabæ, Herjólf, The Brothers Brewery, Hótel Vestmannaeyjar, Höllina og Westman Islands Inn. Tilgangurinn er að búa til skemmtilegan og einlægan viðburð í lok vetrar, til að efla ferðamannatímabilið í Vestmannaeyjum og um leið efla tónlistarlíf og tónlistarmenningu Vestmanneyinga. Keflvíkingur með Eyjarætur Svona framtak verður ekki til af sjálfu sér en það er hann Guðmundur Jóhann Árnason sem er forsprakki þessa verkefnis í Vestmannaeyjum. Hann fékk Birgi Níelsen í lið með sér og saman hafa þeir kumpánar staðið í ströngu síðustu vikur og mánuði. Birgi þarf ekki að kynna fyrir Eyjamönnum en mér fannst Gummi eins hann er kallaður þarfnast frekari kynningar við. Því settist ég niður með honum á Haukabergi og ræddi við hann um þetta skemmtilega uppátæki og því lá beinast við að spyrja hver er maðurinn? „Ég er uppalinn í Keflavík en móðurfólkið mitt er ættað úr Eyjum. Foreldrar mínir eru Árni Björgvinsson og Friðbjörg Helgadóttir. Foreldrar hennar eru Helgi Unnar Egilsson og Guðríður Steinþóra Magnúsdóttir sem bjuggu á Fjólugötu 7 fyrir gos. Annars hefur reynst mér best að kynna mig í Vestmannaeyjum sem besta tengdason Sibba Nínon.“ En Gummi er kvæntur Sædísi Sigurbjörnsdóttur og eiga þau tvö börn. Byrjaði sem brandari Aðspurður um það hvað hafi dregið þau til Eyja sagði hann það hafa byrjað sem hálfgerðan brandara. „Við eigum mikið af vinafólki í Eyjum og vorum að koma reglulega til Vestmannaeyja og ég hef alltaf kunnað vel við mig hérna og orkuna á staðnum. Við höfðum oft rætt það í hálfkæringi að flytja til Eyja. Ég sá síðan að Ísfélagið auglýsti starf hérna sem ég sótti um meira í gamni en alvöru. Það endaði svo með því að mér var boðið starfið og við ákváðum að stökkva til að prófa þetta og sjáum ekki eftir því enda samfélagið frábært og Ísfélagið frábær vinnustaður.“ Heillaðist í Hafnarfirði Hvað er það sem rekur mann af stað í svona óhagnaðardrifið verkefni hafandi engra hagsmuna að gæta? „Ég hef alltaf verið félagsmálamaður og alltaf endað í nemendafélaginu og leikfélaginu og öllu svona í kringum mig. Þegar ég hef mætt á nýjan vinnustaði hef ég venjulega verið kominn í stjórn starfsmannafélagsins eftir hádegi, þannig að ég kann vel við mig í svona brölti.“ Hann segist hafa fallið fyrir þessu tónleikafyrirkomulagi þegar hann tók þátt í hátíðinni „Heima í Hafnarfirði“ sem upphaflega kemur frá Götu í Færeyjum og hefur einnig verið staðfært á Akranesi. „Þetta var alveg magnað þar voru haldnir tónleikar í blokk á þriðju hæð með Mugison og allri hljómsveitinni hans. Þar bjó bara venjuleg kona sem var búin að tæma stofuna. Þetta var stuttu eftir að Mugison gaf út Haglél og íbúðin var troðfull og fólk niður allan stigaganginn og út á bílastæði. Mér fannst þetta svo geðveikt og það var ekki síður gaman að fara inn hjá fólki þar sem var einhver minna þekktur listamaður og 20 manns sátu í rólegheitum og nutu saman, þetta var bara einstök upplifun.“ Með jákvæðnina að vopni Hann segist þó ekki hafa flutt til Eyja til að standa fyrir stofutónleikum. „Ég hafði heyrt það frá ferðamálasamtökunum að það vantaði viðburð í vetrarlok í Vestmannaeyjum. Ég var á sama tíma búinn að vera í sambandi við Frosta Gíslason í tengslum við vinnuna. Ég nefndi þessa pælingu við hann í samtali. Hann spenntist allur upp og sagðist ætla að koma mér í samband við mann sem gæti látið þetta gerast með mér. Hann kom mér svo í samband við Bigga sem þekkti mig ekkert en það varð úr að við hittumst í kaffi í október og þá fór boltinn að rúlla. Enda Birgir stórkostleg manneskja og mig grunar að þetta verði ekki eina bröltið okkar saman.“ Hann segir þá félaga hafa lagst yfir þetta og svo ýtt þessu af stað í rólegheitum. „Við fengum strax mjög jákvætt viðmót við þessu öllu sérstaklega frá ferðamálasamtökunum sem komu strax að borðinu. Þannig höfum við unnið þetta með jákvæðnina að vopni það er ekkert stress og það verður enginn ríkur og ekkert gjaldþrot. Við ætlum bara að búa til eitthvað einlægt og fallegt.“ Setning hátíðarinnar verður fimmtudaginn 27. apríl og fara stofutónleikar Hljómeyjar fram á föstudagskvöldinu 28. apríl. Þar hefur fólk kost á því að labba á milli heimila og sjá þá tónlistarmenn sem þau vilja. Framandi fyrirkomulag Gummi viðurkennir fúslega að þetta fyrirkomulag hafi komið mörgum spánskt fyrir sjónir og ekki allir átti sig á því hvað hér fer fram. „Já, ég er reglulega spurður og hef reynt að gera mitt besta til að útskýra þetta. Við erum að tala um litla tónlistarhátíð þar sem tónleikar eru haldnir heima í stofu hjá fólki. Fyrirkomulagið og hver verður hvar og hvenær verður Hljómey Guðmundur Jóhann á hugmyndina: Búa til eitthvað einlægt og fallegt SINDRI ÓLAFSSON sindri@eyjafrett ir. is Guðmundur Jóhann Árnason. ” Við fengum strax mjög jákvætt viðmót við þessu öllu sérstaklega frá ferðamálasamtökunum sem komu strax að borðinu. Þannig höfum við unnið þetta með jákvæðnina að vopni það er ekkert stress og það verður enginn ríkur og ekkert gjaldþrot. Við ætlum bara að búa til eitthvað einlægt og fallegt.

x

Fréttir - Eyjafréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttir - Eyjafréttir
https://timarit.is/publication/977

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.