Fréttir - Eyjafréttir - 05.04.2023, Blaðsíða 8
8 | | 5. apríl 2023
Það sem
fermingarbörn
2023 hafa að
segja DÍANA ÓLAFSDÓTTIR
diana@eyjafrett ir. is
Fjölskylda: Arna Hrund og
Bjarni Rúnar eru foreldrar
mínir og systur mínar heita
Myrra og Björt.
Hvað fær þig til að brosa?
Þega ég spila fótbolta með
vinum mínum og fjölskyldan
mín.
Hver eru áhugamál þín?
Fótbolti og handbolti.
Tekur þú þátt í
fermingarundirbúningi? Fæ
að ráða matnum og fötunum,
annars redda mamma og
pabbi þessu.
Hvað finnst þér skemmtilegast
við fermingarferlið? Mjög
lítið skemmtilegt við
fermingarferlið.
Verður litaþema? Já það
verður svart og gyllt þema.
Hvað er á óskalistanum?
Langar í fullt. Síma, takkaskó,
pening, fótboltaskóla, ferð á
Manchester United leik.
Fjölskylda: Við erum fimm
í fjölskyldunni. Pabbi minn
heitir Svanur Gunnsteinsson,
mamma mín heitir Ingunn
Arnórsdóttir, svo á ég tvær
eldri systur sem heita Helga
Sigrún og Anna Margrét.
Hvað fær þig til að brosa?
Fjölskyldan, vinir minir og
þegar ég er í fótbolta og
handbolta.
Hver eru áhugamál þín?
Handbolti, fótbolti og að
ferðast.
Tekur þú þátt í
fermingarundirbúningi? Já
ég tek þátt í því, ég valdi
litaþemað, skraut og við
veljum veitingarnar saman og
ég er bara með í öllu.
Hvað finnst þér skemmtilegast
við fermingarferlið? Mér
finnst skemmtilegast að
finna myndirnar fyrir
myndasýninguna, kaupa
skrautið og svo var
fermingamótið í kirkjunni
líka mjög skemmtileg.
Verður litaþema? Já, það
verður rosegold, silfur og
hvitur.
Hvað er á óskalistanum? Ég
veit það eiginlega ekki, það er
alltaf gaman að fá pakka og
pening. En Handboltaskólinn
í Kiel / Magdeburg er efst
á óskalistanum eða fara á
Liverpool leik að sjá/hitta
Jordan Henderson og svo
væri ég líka til í að fara á
landsliðsleik í handboltanum
að sjá/hitta Viktor Gísla. En
ég er auðvitað þakklát fyrir
allt sem ég fæ.
Fjölskylda: Mamma mín
heitir Kristín Hartmannsdóttir,
pabbi minn heitir Guðni
Grímsson og yngri systir mín
heitir Hólmfríður Eldey.
Hvað fær þig til að brosa?
Föstudagar og móðir mín
(Hún neyddi mig í að segja
það).
Hver eru áhugamál þín?
Fimleikar.
Tekur þú þátt í
fermingarundirbúningi?
Mamma gerir flest en ég
valdi liti á skraut og svona en
annars erum við ekki komnar
lengra.
Hvað finnst þér skemmtilegast
við fermingarferlið? Get
ekki sagt messur því þær
eru ekki mitt uppáhald,
þannig örugglega bara
fermingarfræðsla.
Verður litaþema? Já.
Hvað er á óskalistanum?
Peningur og ferð til útlanda.
Fjölskylda: Mamma mín
heitir Andrea, pabbi minn
heitir Eyþór og systkini mín
heita Fannar Ingi og Ísalind.
Hvað fær þig til að brosa?
Eitthvað fyndið.
Hver eru áhugamál þín?
Handbolti og vinir.
Tekur þú þátt í
fermingarundirbúningi? Ég
segi til hvað mér finnst um
hugmyndirnar og ætla að
hjálpa til að skreyta salinn.
Hvað finnst þér skemmtilegast
við fermingarferlið? Mér
finnst gjafirnar og veislan
vera mjög spennandi.
Verður litaþema? Það er
dökkblár og gull.
Hvað er á óskalistanum?
Peningar og ferð til útlanda.
Einar Bent
Bjarnason
Lilja Kristín
Svansdóttir
Kjartan Freyr
Andreuson
Edda Björk
Guðnadóttir