Fréttir - Eyjafréttir - 05.04.2023, Blaðsíða 11
5. apríl 2023 | | 11
Það er ýmislegt óvænt sem getur
komið upp í fermingarathöfnum
og veislum sem í flestum
tilfellum verður að skemmtilegum
minningum af fermingardeginum.
Snjólaug Árnadóttir, kennari
sendi okkur skemmtilega sögu
af viðburðarríkum fermingardegi
bróður síns sem varð í meira
lagi eftirminnilegur þó svo að
Snjólaug sjálf muni lítið eftir því
sem þar fór fram.
„Ég er yngst af sex systkinum.
Á hvítasunnudag 21. maí 1972
var verið að ferma elsta bróður
minn sem hét Björn Þór. Klukkan
10:30 var fermingarmessan í
Dalvíkurkirkju og var henni
lokið um 12:30. Mamma var þá
ófrísk af sínu sjötta barni (mér)
sem átti að fæðast í byrjun júní.
Að sjálfsögðu fór mamma í
fermingarmessuna. Þegar hún
kemur heim að fermingu lokinni
þá fer að finna fyrir einhverju og
fer út í glugga á svefnherberginu,“
segir Snjólaug.
„Þá sá hún ljósmóðurina sem átti
þá heima í næstu götu. Mamma
kallar í hana og Ella ljósa kom
yfir með töskuna. Klukkan 13.45
var ég fædd en fermingarveisla
bróður míns átti að hefjast heima
klukkan 14.00. Einhverjir gestir
ætluðu að snúa við þegar þeir
vissu af nýfædda barninu en ekki
kom til greina að blása veisluna
af.
Pabbi heyrði svo í prestinum og
bauð honum í fermingarveisluna
og spurði svo hvort hann gæti
skírt í leiðinni. Presturinn varð nú
eitthvað hissa þar sem mamma
var í fermingarmessunni um
morguninn. Um klukkan 17:00
var ég skírð heima og hélt systir
ömmu á mér af því mamma
átti bara að liggja í rúminu.
Bróðir minn erfði þetta aldrei
við mig, held að honum hafi nú
bara fundist þetta skemmtilegt,
allavega í minningunni.“
Fermingarbörn 2023.
Fædd og skírð á fermingardegi bróður síns
Fjölskylda Snjólaugar sem situr í fangi móður sinnar en Björn Þór stendur fyrir aftan þær. Úrklippa úr Tímanum 26. maí 1972.