Fréttir - Eyjafréttir - 05.04.2023, Side 12
12 | | 5. apríl 2023
Þann 21. mars stóð Íslands-
stofa fyrir hönd Bacalhau
da Islandia fyrir kokkaskóla-
keppninni CECBI þar sem nem-
endur frá sjö skólum kepptu
um hver eldar besta fiskréttinn
úr íslenskum saltfiski. Keppnin
fór fram í bænum Portalegre
í austurhluta Portúgal, rétt
við landmæri Spánar. Salt-
fiskurinn í keppninni kom
frá Grupeixe, dótturfyrirtæki
Vinnslustöðvarinnar í Portú-
gal. Vinnslustöðin var með
sína menn á staðnum, Jose
Manuel, sölustjóra Grupeixe
sem sat í dómnefnd, Pau-
lo Moreira sölustjóra VSV í
Portúgal auk Eyjólfs Halldórs-
sonar sem hefur unnið lengi í
gæðamálum fyrir Vinnslustöð-
ina í Portúgal. Nemendurnir
lögðu sig alla fram og hver
rétturinn öðrum betri. Sigur-
vegari keppninnar var Gonçalo
Gaspar frá Escola de Hotelaria
e Turismo í Lissabon og hlaut
hann í vinning ferð til Íslands
ásamt kennara sínum næsta
haust.
„Þetta er það sem við höfum verið
að gera undanfarin ár og viljum
halda áfram. Að fræða unga mat-
reiðslumenn um saltfiskinn okkar
sem unga fólkið þekkir síður. Að
þekkingin tapist ekki í matmenn-
ingu þessara þjóða. Við erum
ákaflega ánægð með samstarfið
við framleiðendur og Vinnslustöð-
ina sem er eitt fyrirtækjanna sem
tekur þátt í verkefninu sem tókst
ótrúlega vel,“ segir Björgvin Þór
Björgvinsson hjá Íslandsstofu og
það sama eigi við keppni sem þeir
voru með á Spáni.
Ánægður með saltfiskinn
frá Eyjum
„Þetta hefur gengið ótrúlega vel.
Í Portúgal var rosalega vel tekið
á móti okkur og kokkaskólinn
sá alveg um þetta og gerði vel.
Gulrótin er að sigurvegarinn
fer til Íslands og þó við köllum
þetta keppni er tilgangurinn að
nemendur kynnist hver öðrum og
miðli áfram reynslunni og þekk-
ingu á þeirri frábæru vöru sem
saltfiskurinn er.
Sjálfur er ég svo ánægður með
Eyjamenn og saltfiskinn sem þið
framleiðið. Ég var svo heppinn að
fara með Einari Birni Árnasyni,
Einsa Kalda til Portúgal fyrir
þremur árum þar sem hann kynnt-
ist ástríðu Portúgala fyrir saltfiski.
Kom hann heim með hugmyndir
að réttum sem hann er með á
Keppni ungkokka í Portúgal Saltfiskur frá Vinnslustöðinni:
Að miðla hefðinni til komandi kynslóða
ÓMAR GARÐARSSON
omar@eyjafrett ir. is
Björgvin Björgvinsson Íslandsstofu, verðlaunahafinn Goncalo Gaspar og
Kristinn Björnsson hjá Íslandsstofu.
Þau kepptu um besta saltfisksréttinn.