Fréttir - Eyjafréttir - 05.04.2023, Qupperneq 16
16 | | 5. apríl 2023
Helgi Valdimarsson verður
75 ára á árinu hætti til sjós
2018 en sló til þegar kall kom
frá Ísfélaginu, það vantaði
vanan mann í brúna á Suðurey
VE á loðnuvertíðinni. Helgi
var til og sér ekki eftir því,
skipið gott, áhöfnin hress og
skemmtileg og kunni til verka.
Punkturinn yfir i-ið var svo
einstaklega góð og gjöful ver-
tíð og afraksturinn var góður.
„Þá má heldur ekki gleyma því
að mér við hlið var hinn rétti skip-
stjóri Suðureyjar, Pétur Andersen,
frábær samstarfsmaður í einu
og öllu,“ segir Helgi sem ekki
fer fram með látum, það kemur
í ljós þegar rætt er við hann. Er
á heimavelli í brúnni á Suðurey
að lokinni vertíð. „Ég kem frá
Neskaupstað og byrjaði sem
skipstjóri á skipum Síldarvinnsl-
unnar, Beiti og Berki og Blæng
sem þá var rækjutogari og frystum
við aflann um borð. Kom til Eyja
árið 2000 til Vinnslustöðvarinnar.
Byrjaði á litlu Kap og var nokkur
ár með Sighvat Bjarnason sem
var mjög góður bátur. Skilaði sínu
vel, og endaði svo með Ísleif,“
segir Helgi sem unni hag sínum
vel í Eyjum og hjá Vinnslustöð-
inni.
Fyrst á loðnu 1969
Ekki veit hann hvar í röðinni
loðnuvertíðin í ár er en fyrst fór
hann á loðnu 1969. „Ég var þá
annar stýrimaður á Bjarti gamla
en tímarnir eru breyttir og skipin
stærri og öflugri. Við vorum ekki
einu sinni komnir með dælu þá,
aflinn háfaður um borð eins og var
á mörgum bátum á þessum tíma.“
Síðan hefur hann verið á sjó og
kunnað vel við sjómennskuna.
„Það datt þó í kollinn á mér í
byrjun níunda áratugarins hvort
ekki væri rétt að fara að smíða eða
eitthvað. Það var ekki lengi,“ segir
Helgi og hlær. „Sama var árið
2000. Þá var ég farinn að huga að
einhverri vinnu í landi en var bent
á að það vantaði skipstjóra hjá
Vinnslustöðinni og byrjaði þar um
áramótin á litlu Kap.“
Helgi hætti á sjó 2018, árið sem
hann varð sjötugur. „Er búinn
að vera í landi síðan, þangað til
í vetur. Þetta hefur bara verið
frábært. Ég hef ekki oft tekið þátt
í skemmtilegra verkefni. Kom
skemmtilega á óvart því það var
ekki reiknað með miklu. Suðurey
var skipið sem átti að grípa til en
við vorum á fullu allan tímann.
Fínn mannskapur og ef ég ætti að
gefa vertíðinni einkunn, er það
tíu. Veiði og veður allan tímann.
Það hittist líka vel á að það var
búið að gera vel við veiðarfæri
hjá Ísfélaginu og nótin því í fínu
standi þannig að hún skilaði öllum
aflanum okkar.“
Ætlarðu að halda áfram? „Nei.
Ég held ekki. Nú eru það bara
rólegheit.“
En ef kallið kemur? Nú hlær
Helgi. „Það er spurning um hvern-
ig standi maður verður í, 75 ára.
Ef maður hefur heilsu til að synda
og ganga heldur maður sér í nokk-
uð góðu lagi. Hreyfingin er besta
meðalið,“ segir Helgi og bætir
við. „Ég var með lögheimili mitt
hér í Eyjum þar til í fyrra haust.
Flutti strax heimilisfangið þegar
ég fór að vinna hérna. Finnst
alveg sjálfsagt að borga skatta þar
sem maður hefur atvinnu.“
Helgi á loðnuvertíð eftir fimm ára hlé:
Vantaði vanan mann í brúna
á Suðurey VE
ÓMAR GARÐARSSON
omar@eyjafrett ir. is