Bæjarblaðið Jökull - 04.04.2013, Blaðsíða 1
Alþjóðaforseti Lions Wayne
Madden og Linda kona hans
hafa um páskana verið í heim
sókn á Íslandi, á páskadag
heim sóttiu Wayne og Linda
ásamt 12 manna föruneyti Snæ
fellsnes. Wayne hafði sérstakann
áhuga á að koma á Snæfellsnes
og skoða Snæfellsjökul þar sem
að ein af hans uppáhalds bók
um var „Leyndardómar Snæ
fells jökuls“ eftir Jules Verne,
einnig þótti honum mikið til
um fjölda lionsfélaga á Snæ
fellsnesi og hafði hann á orði að
Snæfellsbær væri það sveitar
félag í heiminum sem státaði af
hæsta hlutfalli lionsfélaga, tæp
lega 7% íbúa Snæfellsbæjar er í
Lions.
Wayne og Linda byrjuðu á að
heimsækja Gestastofuna á Hell
num, þar sem lionsklúbbarnir í
Snæfellsbæ tóku á móti þeim
með léttum morgunverði áður
ern Gestastofan var skoðuð, því
næst var ekið að Vatnshelli og
hann skoðaður. Ekið var um
sveitar félagið og skoðuðu gest
irnir verkefni sem lions klúbb
arnir hafa komið að, auk þess
sem dáðst var að náttúrunni.
Heimsókninni í Snæfellsbæ
lauk svo í Klifi þar sem boðið
var uppá fiskisúpu, Wayne
Madden hafði óskað eftir að
sem flestir lionsfélagar kæmu
að hitta hann, þrátt fyrir að
mjög margir hafi verið á far
aldsfæti um páskana þá sáu
lions félagar sér fært að mæta í
Klif og hitta alþjóðaforsetann
áður en gestirnir héldu áfram
för sinni um norðanvert Snæ
fellsnes.
Á myndinni er Wayne Madden
alþjóðaforseti Lions í miðjunni
ásamt fulltrúum lionsklúbba í
Snæfellsbæ, frá vinstri er Svan
hvít Ásmundsdóttir formaður
Lkl. Þernunni, Einar Magnús
Gunnlaugsson formaður Lkl.
Ólafsvíkur, Björg Bára Hall dórs
dóttir formaður Lkl. Ránar og
Friðþjófur Sævarsson gjaldkeri
Lkl. Nesþinga.
jó
Ólafsbraut 21, Snæfellsbæ
Sími: 410 4190
Netfang: 0190@landsbankinn.is
Snæfellsnesi
www.landsbankinn.is
Alþjóðaforseti Lions í heimsókn
596. tbl - 13. árg. 4. apríl 2013
SUMARSTÖRF
Óskum eftir áhugasömu fólki til starfa við leiðsögn í Vatnshelli í sumar.
Góð íslensku- og enskukunnátta og jákvæðni í samskiptum skilyrði.
Nánari upplýsingar gefur Þór í síma 862 7000,
umsóknir með ferilsskrá sendist á vatnshellir@gmail.com
Þór og Ægir.