Bæjarblaðið Jökull - 04.04.2013, Blaðsíða 4
Í byrjun marsmánaðar ósk
aði Orkusalan eftir tilboðum í
breytingar á stíflu og í stöðvar
húsi Rjúkandavirkjunnar, að
eins barst eitt tilboð í verkið og
þessa dagana er verið að fara
yfir tilboðið og af því loknu
verður framhaldið ákveðið. Í
síðustu viku var svo auglýst
eftir tilboðum í rif á gömlu
þrýstipípunni sem flytur vatn
að stöðvarhúsinu og lagningu
nýrrar pípu, tilboð í það verk
verða opnuð 19. apríl.
Rjúkandavirkjun er 970 kW
að stærð og var byggð á
árunum 1951 – 1954 eftir að
Alþingi veitti leyfi til virkjunar
Fossár árið 1947. Orkusalan
áformar nú að stækka virkjun
ina með því að endurnýja
vélbúnað og þrýstipípu og
endurbæta inntaksstíflu. Virk
jað rennsli verður aukið, nýtni
bætt og falltap minnkað.
Búið er að semja við austur
ríska fyritækið Gugler um
smíði nýrrar vélasamstæðu
sem verður 1.700 kW. Stefnt er
að því að uppsetning véla sam
stæðu hefjist í júlí og er reiknað
með gangsetningu endur
nýjað rar virkjunar í haust.
Áætlað er að þessi fram
kvæmd kosti um 400 milljónir
kr og raforkuvinnsla virkjunar
innar aukist um 70%
Orkuvinnsla Rjúkanda virk
jun ar er öll nýtt á Snæfellsnesi
og þannig styrkir stærri virkjun
eigin orkuvinnslu á svæðinu
þó nauðsynlegt sé áfram að
keyra dísilvélar líka ef stofn
línur bila.
jó
Stækkun
Rjúkandavirkjunnar
Það vantar ekki að nægur
fiskur er í sjónum, en þrátt fyrir
það þá er frekar lítið róið.
Ræður þar mestu um að verð á
mörkuðum hefur hríðfallið
vegna mikils fisks. Þeir drag
nóta bátar sem hafa róið hafa
fiskað vel og í það minnsta þrír
SH bátar hafa komið drekk
hlaðnir til hafnar. Sandvík SH
kom með 19,3 tonn að landí í
einum róðri. Margrét ÍS kom
með 22,4 tonn og Esjar SH sem
er stysturbátra Margrétar ÍS
kom með 27,3 tonn. Þessi ris
afli Esjars SH er mesti afli sem
báturinn hefur komið með að
landi í einum. Aflaskipið Stein
unn SH byrjaði að róa um
miðjan mars en hefur einungis
landað 163 tonnum í 6 róðrum.
Hjá smábátunum þá verður
þessi marsmánuður seint talin
til metmánaða varðandi afla því
línubátarnir hafa fiskað ansi
dræmt, og ræður þar mestu að
loðna er búinn að vera útum
allt. t.d hefur Vilborg ÍS landað
69 tonnum í 14 róðrum, en
báturinn hefur verið við veiðar
útaf Suðurnesjunum. Kristinn
II SH hefur verið á heimamiðum
og landað 74 tonnum í 11 róðr
um.
Við skulum ekkert vera að
dóla mikið við þenna mars
mán uð heldur velja af handa
hófi eitthvað ár og kíkja á mars
mánuð. Árið sem verður fyrir
valinu er árið 1990. árið þar á
undan þá var mokvertíð við
sunnanvert landið sem og í
Breiðafirðinum. Þessi mars
mán uður árið 1990 var þá
heldur verri. Mikill fjöldi báta
var að veiðum en afli þeirra var
frekar tregur, og t.d voru
skoðaðir 14 bátar sem voru á
netum frá Rifi. 22 bátar frá
Ólafsvík þar sem mest allir voru
á netum nema tveir og fimm
bátar í Grundarfirði. Allir bátar
nir að neðan voru á netum.
Á Rifi þá var Rifsnes SH
hæstur með 217 tn í 19 róðrum,
mest 67 tonn á viku. Hamar SH
var með 179 tn í 19 róðrum
mest 84 tn á viku í 6 rórðum.,
Saxhamar SH var með 177 tn í
18, mest 84 tn á viku í 6
róðrum. Tjaldur SH var með
144 tní 17, Hamrasvanur SH
135 tn í 16. Kópanes SH 127 tn
í 19. Esjar SH 56 tn í 20. Bára
SH 83 tn í 23. Jói á Nesi SH 77
tn í 21 og Þorsteinn SH 97 tn í
17.
Í Ólafsvík þá var Steinunn SH
hæst með 168 tn í 23. Svein
björn Jakobsson SH 150 tn í 20.
Jökull SH 139 tn í 23, Lómur
SH 128 tn í 15. Ólafur Bjarnason
SH 121 tn í 9, Tindfell SH 114
tn í 20, Garðar II SH 103 tn í
18, Matthildur SH 98 tn í 20,
Friðrik Bergmann SH 98 tn í 24,
Gunnar Bjarnason SH 88 tn í
16 og Hringur SH 77 tn í 14.
Eins og sést að ofan þá réru
bátarnir ansi oft enn aflinn
frekar lítill. Nokkrir smábátar
voru skoðaðir. Elís Bjarnarsson
SH var með 33 tn í 18, Pétur
Jakop II SH 37 t ní 20, Sverrir
SH 34 tn í 15 og Ármann SH 41
tn í 17.
Í Grundarfirði þá var Grund
firðingur SH hæstur með 128
tn í 22. Farsæll SH var með 116
t ní 22, Haukaberg SH 98 tn í
21, Sólberg SH 94 tn í 21 og
Fanney SH 74 tn í 17.
Svo í lokin má nefna að drag
nótabáturinn Auðbjörg II SH
var með 69 tn í 13 róðrum og
Hugborg SH var með 57 tn í 10
en báðir þessir bátar lönduðu í
Ólafsvík.
Gísli Reynisson
www.aflafrettir.com
Aflafréttir
Íbúð til leigu
Til leigu 70 m2 íbúð að Sæbóli 33 í Grundarfirði,
tvö svefnherbergi, leiga 79.000 hiti innifalinn.
Laus strax.
Upplýsingar gefur Kristján í síma 8963867.
Íbúð óskast
Óska eftir íbúð til leigu frá 1. maí til 1. sept. 2013,
ekki verra ef hún væri með einhverjum húsgögnum.
Öruggum greiðslum heitið og góðri umgengni.
Upplýsingar í síma 6984645 eða hpeyjar@gmail.com Hulda Pétursdóttir
Smáauglýsing