Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 04.04.2013, Side 5

Bæjarblaðið Jökull - 04.04.2013, Side 5
Til foreldra barna í Tónlistarskóla Snæfellsbæjar 1) Tónlistarskólinn er fyrir alla. Hins vegar hafa ekki allir sömu væntingar til skólans. Fyrir suma er nóg að læra nóturnar og geta spilað sér til ánægju. Fyrir aðra eru væntingarnar þær að taka stigpróf og verða jafnvel menntaðir tónlistarmenn. Foreldrar verða að gera sér grein fyrir því að metnaður foreldris og metnaður barns til tónlistarnáms er ekki alltaf sá sami. Í mörgum tilvikum eru börn, sem ekki er kennt skv. námsskrá, ágætis tónlistarmenn og geta orðið mjög góð, þrátt fyrir það hafa ekki tekið nein stigpróf. 2) Tónlistarskólinn starfar skv. aðalnámskrá, hins vegar er ekki víst að það nám henti öllum börnum. Þar af leiðandi þurfa foreldrar að taka ákvörðun um það hvort þeir vilja að börnum þeirra sé kennt skv. aðalnámsskrá tónlistarskóla, þ.e. að barnið taki grunnstig, miðstig, framhaldsstig, o.s.frv., eða hvort þeir vilja að börnum þeirra sé kennt skv. sérstöku námsplani sem tónlistarkennarar útbúa fyrir börnin. 3) Ef foreldrar óska eftir því að barninu sé kennt skv. aðalnámskrá tónlistarskóla, þá þurfa þeir jafnframt að taka á sig ákveðna ábyrgð á tónlistarnáminu. Foreldrar þurfa að sjá um að barnið æfi sig heima og vinni þau verkefni, t.d. tónfræði, sem sett eru fyrir í „bláu bókinni“. Þegar stigpróf eru tekin, þá eru þau ekki eingöngu verkleg, heldur eru líka tekin stigpróf í tónfræði. Ekki er hægt að taka t.d. miðstig nema búið sé að taka bæði verklegt grunnstig og grunnstig í tónfræði. 4) Ef þú vilt ekki að barninu verði kennt skv. aðalnámskrá, þá getur kennari útbúið sérstakt námsplan fyrir þitt barn. Foreldri þarf að gera sér grein fyrir því að ef ekki er óskað eftir að barninu verði kennt skv. aðalnámskrá, þá eru eingöngu tekin vorpróf og barnið tekur þátt í tónleikum og tónfundum á vegum tónlistarskólans, en það eru EKKI tekin stigpróf. 5) Foreldrum er velkomið, og þeir hvattir til, að koma til viðtals við tónlistarskólastjóra og tónlistarkennara til að ræða þær væntingar sem þeir hafa til tónlistarnáms barns síns. Oft er gott að hafa barnið með, svo það sé alltaf á hreinu á milli allra aðila hvers sé vænst. Skólastjóri

x

Bæjarblaðið Jökull

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.