Bæjarblaðið Jökull - 04.04.2013, Page 8
Dögun – stjórnmálasamtök
um réttlæti, sanngirni og lýð
ræði bjóða fram í öllum
kjördæmum í alþingis kosn
ingum í vor. Aðaláhersla okkar
er á lýðræðisleg vinnubrögð og
fyrir komandi kosningar setjum
við þrjú mál á oddinn: Afnám
verðtryggingar, nýja stjórnar
skrá og uppstokkun á stjórn
fiskveiða. Einnig viljum við
lögfesta lágmarks framfærslu
viðmið, afnema verðtryggingu
og almenna leiðréttingu hús
næðis lána.
Dögun hefur mótað sér
Íslands byggðarstefnu þar sem
áhersla er lögð á að „á Íslandi
búi þjóð sem um ókomin ár
verður samábyrg gagnvart um
hverfi á landi, í lofti og legi með
áherslu á jöfn tækifæri og lífs
gæði allra.“
Í stefnunni er lögð áhersla á
að landið haldist í blómlegri
byggð og spornað verði við
þeirri þróun að fólk og fyrirtæki
safnist á eitt horn landsins.
Þessari þróun hefur fylgt aukin
miðstýring frá höfuðborgar
svæðinu sem við viljum sporna
við.
Hugmyndafræði um sjálf
bærni byggir m.a. á því að fólk
lifi af landinu sem næst sér en
ekki sé verið að flytja matvörur
og annan varning fram og til
baka með meðfylgjandi kost
naði og umhverfisáhrifum. Með
fullvinnslu afurða þar sem þær
verða til og auknu frelsi til að
nýtingu afurða heima á bæjum
er hægt að skapa atvinnu út um
sveitir. Þessi þróun er þegar
farin af stað en það þarf að
styðja við hana til að slík starf
semi nái fótfestu.
Við í Dögun viljum skapa
aukna möguleika á heima
slátrun, vinnslu og sölu á af
urðum beint frá býli. Einnig
viljum við vinna gegn þeirri
þróun að afurðastöðvum sé
lokað víða um landið. Slátur
húsum og mjólkurbúum fækkar
enn, t.d. var mjólkurbúinu á
Ísafirði lokað fyrir tveimur
árum til að keyra alla mjólk
suður á bóginn. Á stórum
svæðum á landsbyggðinni eru
engin sláturhús og varla er það
í samræmi við hugmyndir um
velferð dýra að flytja sláturdýr
mörg hundruð kílómetra um
slæma vegi, og oft yfir sauðfjár
veikivarnargirðingar.
Við hvetjum kjósendur til að
skoða stefnumál okkar á
heimasíðunni XT.is fyrir kom
andi kosningar en Dögun hefur
mótað stefnu í öllum helstu
málaflokkum.
Guðrún Dadda Ásmundardóttir, 1.
sæti Dögunar í Norðvesturkjördæmi
Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 4. sæti
Dögunar í Norðvesturkjördæmi
Byggð og atvinna um landið allt
Eins og menn vita þá ber
einn hópurinn dísarnafn, en
ekki hefur fengist uppgefið
hver þessi dís er. Nú hefur frést
að kona með sama nafni býr í
nærliggjandi sveitarfélagi og
spurningin er hvort Sverrir sé
nokkuð í Reykjavík þegar hann
segist vera þar, heldur í þessu
sveitarfélagi? (það er mun
ódýrara að keyra þangað)
Annars var skorið nokkuð gott
aldrei þessu vant hjá sumum
hópunum. S.G. Hópurinn er
eitthvað farinn að derra sig því
hann sækir fast að 1. sætinu
ásamt Litla ljóninu og er það
allt sem áður var. Nú N1
færðist upp um 3 sæti, enda
Silla svo glöð yfir því að vera að
fá Gunna aftur heim að hún
náði 13 stigum. VÁ Air hrapaði
heldur betur eftir að flug
stjórinn vék sér frá. Gaurarnir í
brettunum eru heldur betur að
ná sér á strik og skilja sína
helstu keppinauta eftir. Up the
irons sem fram eftir tímabilinu
vermdi botnsætið er nú komið
í 15. sætið eftir mannaskipti í
hópnum. Hrikd mætti á svæðið
og náði 12 stigum sem er gott
miðað við að mæta. Jæja um
næstu helgi mun hópurinn
Leyndo mæta á svæðið, en
hópurinn er núna í 21 sæti.
Sæstjarnan sækir fast að dísinni
og munar ekki nema 2 stigum.
Frænkan dalar aðeins enda
ekki nema von þar sem annar
hlutinn er annars hugar.
Annars er ekkert fleira að segja
nema það að Kaffi 59 heldur
enn 1. sætinu og Púkarnir eru
sáttir við sitt sæti og Grobbelar
færðist upp. Síðasta umferðin í
Hópleiknum á þessu keppnis
tímabili verður þann 27. apríl
þ.e. á kosningardaginn, spurn
ing hvort ekki eigi að nota
kosningaseðilinn í stað enska
seðilsins. En svona í framhjá
hlaupi þá var hið nýstofnaða
Pílufélag Grundarfjarðar með
mót s.l. laugardag og voru
kepp endur 20 þ.e. 4 frá Pílu
kast félagi Reykjavíkur. Okkar
fólk náði góðum árangri í
þessu móti og varð Tryggvi
Hafsteinsson í öðru sæti eftir
að hafa tapað keppni við mjög
reyndan landsliðsmann. Þann
ig að þetta lofar góðu.
Annars minni ég á get
raunasöluna hjá UMFG á
laugar dagsmorgnum kl. 11:00
á Kaffi 59. Sjá má stöðutöfluna
á heimasíðu Grundar fjarðar
bæjar.
Gummi Gísla
Er dísin fundin?
Björgunarsveitin Lífsbjörg
hélt aðalfund sinn 24. mars
síðast liðinn. Fundurinn var vel
sóttur og málefnanlegur, mörg
mál afgreidd samkvæmt boð
aðri dagskrá og einhugur er hjá
félögunum um að gera góða
sveit betri. Aðalmál fundarins
voru lagabreytingar og fækkun
stjórnarmanna úr sjö í fimm.
Það er fyrst og fremst gert
vegna minni álags á stjórnar
menn eftir að hafa lokið við
byggingu Björgunar stöðvar
innar Von á Rifi. Í stjórn voru
kosnir Davíð Óli Axelsson for
maður, Guðjón H. Björnsson
vara formaður, Þórarinn Stein
grímsson ritari, Guðbjartur
Þor varðarson gjaldkeri og Páll
Stefánsson meðstjórnandi. Úr
stjórn fóru: Orri F. Magússon
og Halldór Sigurjónsson.
Þökkum við þeim kærlega
fyrir góð stjórnarstörf á liðnum
árum en við eigum vonandi
eftir að njóta krafta þeirra áfram
í þágu Bjsv. Lífsbjargar um
ókomin ár.
Björgunarsveitin Lífsbjörg
Snæfellsbæ
Aðalfundur
Lífsbjargar