Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 30.05.2013, Page 4

Bæjarblaðið Jökull - 30.05.2013, Page 4
Allir verða einhvern tíman að taka sér frí og þar sem pistla­ höfundur er erlendis þá mun þessi pistill skoða hvað var um að vera í maí árið 1980. Þá eins og í maí árið 2013 voru ansi margir handfærabátar að koma sér til veiða. Arnarstapi: Lilla SH 70 með 2,1 tn í 8, Hlíf SH 55 3,8 tn í 8, Bliki SH 84 3,9 tn í 6, Víkurröst SH 207 7,3 tn í 11, Lundi KE 45 13, 1 tn í 15, Hafrenningur SH 7,7 tn í 13, Kneifarnes SH 62 8,6 tn í 6, Straumur SH 26 14,4 tn í 18, Sæfari SH 85, 9,8 tn í 15, Sölvahamar SH 189 14 tn í 16. Rif: Þar var t.d Bára SH 146 sem var með 7 tn í 10 róðrum, Sigrún SH 53 2,7 tn í 7, Már SH 58 1,2 tn í 5, Kári SH 119 12,4 tn í 12, Herdís SH 31 10,4 tn í 10, Vöggur SH 232 3,6 tn í 3, Hamar SH 170 12,8 tn í 11, Mjaldur RE 148 18,1 tn í 10 Ólafsvík: Högni BA 78 á með 4,5 tn í 5, Örvar SH 210 2,7 tn í 7, Sædís SH 138 2,3 tn í 5, Svala SH 141 4,7 tn í 8. Ekki eru allir smábátarnir taldir upp hérna að ofan sem lönduðu handfæraafla í þessum höfnum og hugsanlega munu einhverjir lesendur pistlanna kannast við einhverja bátanna. Kíkjum á hvað aðrir bátar voru að veiða í maí á þessu herrans ári 1980. Þá voru nokkuð margir bátar að klára vetrarvetíðina á netunum og nokkrir bátanna voru komnir yfir á troll, og rækjutroll t.d Fanney SH og Grundfirðingur II SH. Rif: Esjar SH á línu og með 43 tonn í 20 róðrum. Hafnartindur SH á línu með 39 tonn í 20 róðrum, Guðrún Ágústsdóttir SH líka á línu með 16 tn í 5. Brimnes SH var á netum og með 75 tn í 8. Léttir SH var á færum með 30 tonn í 12. Andey SH 100 var á línu með 36 tn í 9 og Hamrasvanur SH á línu með 113 tonn í 15. Ólafsvík: Garðar II SH sem var með 68 tonn í einungis 2 löndunum á trolli. Eyrún SH var á netum og með 37 tn í 6, Ólafur Bjarnason SH á netum og með 97 tonn í 9 róðrum, Steinunn SH var á netum og með 118 tn í 10, Sigurvík SH á netum með 78 tn í 9. Hringur SH á netum með 93 tonn í 9. Halldór Jónsson SH á netum með 133 tonn í 12, Jói á Nesi SH á netum með 45 tn í 6. Sveinbjörn Jakobsson SH á netum með 88 tonn í 9. Matthildur SH á trolli með 38 tonn í 2 og Jón Jónsson SH á trolli með 68 tn í 3 Grundarfjörður: Haukaberg SH sem var með 35 tn í 2 á trolli. Siglunes SH á netum með 78 tn í 8, Lýður Valgeir SH á netum með 35 tn í 9 og Haffari SH á netum með 87 tn í 6. Gísli Reynisson www.aflafrettir.com Aflafréttir Kirkjan okkar Ingjaldshólskirkja Sjómannadagurinn 2. júní Hátíðarguðsþjónusta kl. 10. Sjómenn lesa ritningarlestra og lagður verður blómsveigur að minnisvarða um sjómenn sem hvíla arri. Ólafsvíkurkirkja Sjómannadagurinn 2. júní Hátíðarguðsþjónusta kl. 14:30. (eftir athöfn í sjómannagarðinum). Sjómenn lesa ritningarlestra og karlakórinn Rjúkandi sér um sönginn. Námskeið fyrir svæðis leið­ sögumenn verður í Grundarfirði 3. ­ 8. júní n.k. og er á kvöldin frá 20 ­ 22 alla dagana nema laugardaginn 8. þá er það allan daginn. Útskrift af námskeiðinu gefur möguleika á t.d. leiðsögn með farþega frá skemmtiferða skip­ unum sem koma til Grundar­ fjarðar í sumar en hingað til hafa komið leiðsögumenn frá Reykjavík til að sinna þessu starfi. Einnig möguleika á leið­ sögn með rútum kring um Jökul sem áætlað er að verði daglega í sumar. Námskeiðið er því hluti af þvi verkefni að færa vinnuna heim í hérað. Ferðaskrifstofan Þemaferðir í Grundarfirði heldur nám skeið­ ið og er verð á námskeiðinu talsvert minni en laun fyrir eina leiðsöguferð í kring um Jökul. Auk kennslunnar fylgja öll náms gögn og prófferð um allt Snæ fellsnes. Skráning er hjá Ferða skrif­ stofunni Þemaferðir ehf. Nesveg 5 í síma 864 2419. Svæðisleið­ sögumenn Verslunin Nína verður með fatasölu í samkomuhúsinu í Grundarfirði fimmtudaginn 30. maí frá kl 14-20. Fullt af flottum nýjum sumarfatnaði

x

Bæjarblaðið Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.