Bæjarblaðið Jökull - 30.05.2013, Side 8
Sumarfrí
Stofan verður lokuð
frá 4. júlí - 15. ágúst.
Óska ykkur gleðilegs sumars.
Með sumarkveðju.
LEIKJANÁMSKEIÐ
3-14 JÚNÍ 2013
Boðið verður upp á leikjanámskeið fyrir börn á aldrinum 5-12 ára.
Námskeiðið stendur yfir í tvær vikur en ekki er kennt um helgar.
Milli klukkan 8-9 geta foreldrar komið með börnin í gæslu í íþróttahús
Snæfellsbæjar og stundvíslega klukkan 9 hefst námskeiðið og stendur
það til klukkan 12.
Markmið leikjanámskeiðsins er að veita krökkunum holla og góða
hreyfingu auk þess sem brotið er út af vananum og farið í allskyns
ferðir - Dagskrá má sjá hér:
VIKA MÁNUDAGUR ÞRIÐJUDAGUR MIÐVIKUDAGUR FIMMTUDAGUR FÖSTUDAGUR
1 SKRÁNING OG LEIKIR FOSSAFERÐ FJÖRUFERÐ SUNDFERÐ LEIKIR OG
FRJÁLSAR ÍÞRÓTTIR
2 FYRIRTÆKJAHEIMSÓKN HESTAFERÐ VEIÐIFERÐ RATLEIKUR LOKAHÓF
Minnum foreldrar á að krakkar þurfa að klæða sig eftir bæði
veðri og ferðum. Ennfremur eiga krakkarnir að hafa með sér
hollt og gott nesti á hverjum degi fyrir utan lokahófið.
VERÐSKRÁ
1. BARN.....................................................................................8000
2. BÖRN..................................................................................12.000
3. BÖRN..................................................................................14.000
GREIÐSLA FER FRAM Í UPPHAFI NÁMSKEIÐS HJÁ STJÓRNANDA.
FYRIRSPURNIR Á VIKINGUROL@GMAIL.COM
Frystiklefinn undirbýr um
þessar mundir leikssýningu
sem byggir á geimveru heim
sókninni á Snæfellsjökul þann
5. nóvember 1993. Að því
tilefni er bæjarbúum boðið á
leiklestur þar sem fluttir verða
kaflar úr hinu nýja verki. Til
gangur lestursins er meðal
annars heyra skoðun við
staddra á verkinu, en einnig fá
gestir tækifæri til að rifja at
burðinn upp með okkur og
jafnvel gefa okkur góð ráð
varð andi áframhaldandi þróun
á sýningunni. Leikarar sýningar
innar eru Kári Viðars son og
Víkingur Kristjánsson. Leik
lesturinn fer fram í Pakkhúsinu,
fimmtudaginn 30. maí klukkan
20:00. Aðgangur ókeypis.
Leiklestur í
Pakkhúsinu
Krían lét aðeins bíða eftir sér
þetta árið en við stöllurnar í
Gamla Rifi kaffistofu létum það
engin áhrif hafa á okkur og
opnum við að venju 1. júní.
Á laugardaginn verðum við
með okkar árlega vöffluhlað
borð og mun Helga Páley Frið
þjófs dóttir, okkar gamli starfs
maður, opna sýningu á teikn
ingum sínum.
Helga Páley lauk námi frá
Lista háskóla Íslands 2011 og er
spennandi að sjá hvað hún
ætlar að sýna okkur sveitungum
sínum.
Við erum mjög spenntar fyrir
sumrinu sem er okkar sjöunda.
Þrjár nýjar starfstúlkur hafa
verið ráðnar og sýndu þær
snildar takta á kaffinámskeiðinu
svo það er um að gera að láta
þær sýna listirnar.
Svo munum við að venju
baka þessar gömlu og góðu
sortir og svo lumum við líka á
nýjum og spennandi.
Hlökkum til að sjá ykkur
Stöllurnar í Gamla Rifi
Gamla Rif opnar