Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 30.05.2013, Blaðsíða 10

Bæjarblaðið Jökull - 30.05.2013, Blaðsíða 10
Víkingur Ólafsvík fékk sín fyrstu stig í Pepsídeildinni síðast liðinn sunnudag þegar þeir mættu ÍBV á Ólafsvíkurvelli í fyrsta markalausa jafntefli sumarsins. Víkingar sem höfðu tapað fyrstu fjórum leikjunum mættu einbeittir til leiks. Að ­ stæður voru erfiðar á Ólafs­ víkurvelli í hávaðaroki og bar meira á baráttu en gæðum í spili beggja liða. Guðmundur Steinn komst næst því að skora fyrir heimamenn á 70 mínútu þegar hann slapp einn á móti Guðjóni Orra í marki ÍBV en Guðjón Orri kom hendi á boltann. ÍBV átti gott færi þegar Gunnar Már Guðmundsson náði góðu skoti á 85 mínútu. Færin urðu ekki fleiri og sangjarnt jafntefli því niður­ staða leiksins. þa Fyrsta stigið í hús 21. maí opnaði ný sýning í Átthagastofu en það er sýning­ in Íslenskar ofurkonur. Þar er á ferð listakonan María Guð­ brands dóttir eða Maja sem sýnir acrylmyndir á striga og er þema sýningarinnar Íslenskar ofurkonur. María ætti að vera íbúum Snæfellsbæjar vel kunn en hún kenndi myndmennt við Grunnskóla Snæfellsbæjar í nokkur ár. Helsta viðfangsefni hennar í handverki og mynd­ um í mörg ár hefur verið konan og þjóðbúningar. Þykir henni ekki verra að blanda dálitlum húmor í verk sín og segir að lífið sé leiðinlegra án húmorsins og að allar konur séu auðvitað ofurkonur. Undan farin tvö ár hefur hún verið með sýningar í Mel­ rakkasetri Íslands, Veitinga­ staðnum Jóni Indíafara og í Hamraborg á Ísafirði. Vonandi hafa sem flestir gefið sér tíma til að líta á þessa skemmtilegu sýningu sem lýkur um mánaðarmótin. þa Íslenskar ofurkonur Auglýsingaverð í Jökli Heilsíða í svarthv. 23.700 Hálfsíða í svarthv. 15.200 1/4 í svarthv. 9.900 1/8 í svarthv. 7.200 1/16 í svarthv. 4.400 Heilsíða í lit 46.000 Hálfsíða í lit 31.000 1/4 í lit 22.000 1/8 í lit 14.200 1/16 í lit 9.500 Verðin eru með 25,5% vsk Til leigu 131 m2 íbúð að Grundargötu 16, miðhæð í Grundarfirði, fjögur svefnherbergi, laus frá 1 júní 2013. Leiga kr 90.000 + rafmagn. Upplýsingar gefur Kristján í síma 8963867. Smáauglýsing

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.