Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 09.01.2014, Blaðsíða 3

Bæjarblaðið Jökull - 09.01.2014, Blaðsíða 3
er óskiljanleg og hefði ég haldið á meðan þröngt er í búi hjá þeim eins og öðrum þá hefðu menn ekki efni á að eyðileggja þessa miklu uppbyggingu á Gufuskálum, hafi þeir skömm fyrir þessa skammsýni sína. Það kæmi mér ekki á óvart að fljótlega förum við að heyra frá viðkomandi aðilum að nú þurfi að setja fé í nýjan björgunarskóla og nýtt rústabjörgunarsvæði og þá á suð­vesturhorninu. En aftur að jákvæðninni. Nú í haust þá varð ég þeirrar ánægju aðnjótandi ásamt góðum hópi héðan úr Snæfellsbæ að fara til Þýskalands til að vera viðstaddur opnun málverkasýningar lista­ mannsins Peters Lang í borginni Regensburg en hann hafði verið hér hjá okkur í ár við að mála myndir og afraksturinn varð yfir 100 myndir og hluti þeirra var á þessari sýningu. Gaman er frá því að segja að þetta var mikil upplifun að vera viðstaddur opnun þessarar sýningar, sem haldin var í gamalli kornhlöðu sem byggð var árið 1605 en gegnir nú hlutverki listasafns á vegum borgarinnar. Við opnun sýningarinnar sem borgarstjórinn í Regensburg opnaði var boðið upp á íslenskan mat og drykk. Heiðurinn af matargerðinni átti Sigfús Almars­ son matráður í Grunnskóla Snæ­ fells bæjar og vinur Peters en hann kom með matinn með sér frá Íslandi. En ekki nóg með það heldur var einnig boðið upp á íslenska tónlist og flutti Sigurður Höskuldsson tónlistamaður úr Ólafsvík frumsamin lög ásamt systur sinni Erlu Höskuldsdóttur og Sigurði Gíslasyni. Góður rómur var gerður af tónlistarflutningnum og matnum. Við opnun sýningarinnar mættu hátt í 400 gestir og voru þeir afar hrifnir af öllu saman. Í mínum huga var þessi sýning afar góð landkynning fyrir Ísland og ekki síst Snæfellsnes og var mikið að gera í því að ræða við fólkið á sýningunni sem vildi fræðast um ferð Peters hingað og nú þegar veit ég um töluverðan fjölda sem ætlar að koma til Hellissands 2014 til að sjá hvar listamaðurinn dvaldi og upplifa náttúru svæðisins. Ég vil að lokum óska ykkur öllum gleðilegs árs og þakka samstarfið á liðnum árum, megi árið 2014 verða ykkur öllum hagsælt. Kristinn Jónasson, bæjarstjóri. SKYGGNILÝSINGAFUNDUR MEÐ ÞÓRHALLI Soroptimistaklúbbur Snæfellsness stendur fyrir skyggnilýsingafundi með Þórhalli Guðmundssyni miðli þriðjudaginn 14. janúar kl. 20.00 í félagsheimilinu Kli, aðgangseyrir kr. 2.000,- Þetta verður á skemmtilegu nótunum eins og Þórhalli einum er lagið. Allur ágóði rennur til málefnis fatlaðra í Snæfellsbæ ÚTSALA Útsalan hefst í dag! Rýmingarsala á íþróttafatnaði og íþróttaskóm -40% Dömu- og herrafatnaður 30-50 % afsláttur Allir barnaskór -40% Ungbarnafatnaður -30% Úlpur og kuldagallar 25-40% afsláttur CULT -30%

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.