Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 09.01.2014, Blaðsíða 5

Bæjarblaðið Jökull - 09.01.2014, Blaðsíða 5
Fundir um nýgerðan kjarasamning Kynningarfundir um nýgerðan kjarasamning milli SGS og samtaka atvinnulífsins verða sem hér segir. Ólafsvík: Ólafsbraut 19. mánudaginn 13. jan. kl 17,00 Grundafirði: Borgarbraut 2 mánudaginn 13. jan kl 20,00 Stykkishólmi: Þvervegi 2 þriðjudaginn 14. jan kl 17,00 Stjórnin. Smáskipanám kemur í stað þess sem áður var nefnt 30rl réttindanám (pungapróf ) og miðast atvinnuskírteinin nú við lengd skipa í stað brúttórúmlestatölu áður. Réttindin miðast skv. því við skip 12 metrar og styttri að skráningar- lengd, m.v. að hafa lokið 12 mánaða siglingatíma skv. reglugerð nr. 393/2008. Námið er samstarfsverkefni Símenntunarmiðstöðvarinnar á Vesturlandi og Fræðslumiðstöðvar Vestarða og kennt með faglegri ábyrgð Skipstjórnarskóla Tækniskólans. Hverjum námsþætti lýkur með skriegu pró. Námsmat: Nemendur þurfa að lágmarki 5 í einkunn í stöðugleika og siglingafræði og að lágmarki 6 í siglingareglum til þess að ljúka náminu. Grunnskólinn í Stykkishólmi Leiðbeinandi: Magnús Jónsson Lengd: 115 kennslustundir (40 mínútur) Kennslutími: Námskeiðið hefst mánudaginn 27. janúar. Kennt verður í 4 lotum, ein vika í senn. Á virkum dögum er reiknað með að kenna kl.17:30 – 21:30 og kl. 9:00 – 13:00 á laugardögum og sunnudögum. Kennslutími verður þó endanlega ákveðinn í samráði við þátttakendur. Nánari upplýsingar veitir Magnús Jónsson á netfangið magnusjon@simnet.is eða í síma 892 7139 Verð: 150.000 kr. Innifalið í verði er sjókort, allar námsbækur og próf. SMÁSKIPANÁM

x

Bæjarblaðið Jökull

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.