Bæjarblaðið Jökull


Bæjarblaðið Jökull - 09.01.2014, Page 4

Bæjarblaðið Jökull - 09.01.2014, Page 4
Nú er rétti tíminn til framkvæmda þar sem að átakið ALLIR VINNA hefur verið framlengt. Hjá okkur starfa smiðir, múrarar (flísar), píparar og aðrir iðnaðarmenn. Við erum með tæki og tól til allra verka. HÚSEIGENDUR! 100% endurgreiðsla á vsk af vinnu Enn er talsvert af ósóttum vinn ingum í leikfangahapp­ drætti Lionsklúbbs Ólafsvíkur, meðal ósóttra vinninga er bátur fyrir Baby Born, og stór slökkviliðsbíll. Vinninganna er hægt að vitja í Steinprent og númerin á ósóttum vinningum eru: 222, 445, 456, 500, 561, 720, 983, 1037, 1060, 1088, 1335, 1474, 1714, 2308. Ósóttir vinningar Karokíkeppni fyrirtækjanna fór af stað þann 28. desember síðastliðinn með fyrsta kvöldinu. Haldin verða alls þrjú kvöld og komast þrír keppendur áfram á hverju kvöldi. Dómarar munu svo velja einn keppanda sem ekki komst áfram til að keppa með þeim á úrslitakvöldinu. Það er Lionsklúbburinn Þernan í samstarfi við Hótel Hellissand sem standa að keppninni og ætla Lionskonur að láta hluta ágóðans renna til kaupa á spjaldtölvum í Grunnskóla Snæfellsbæjar. Þarna fer því saman góð skemmtun og styrkur við gott málefni. Á þessu fyrsta kvöldi kepptu sex fyrirtæki: Breiðavík ehf, Egill SH, Hraðbúðin Hellissandi, Lionsklúbburinn Þernan, Verslunin Blómsturvellir og Þrif og þjónusta. Stóðu allir keppendur sig með miklum sóma og hljómuðu lög eins og “Sandy” úr Grease myndinni frægu, Abba lagið “Honey honey” og “Fight the Moonlight” með LeAnn Rimes. Fjöldi gesta fór fram úr björtustu vonum Lionskvenna og var frábær stemming á kvöldinu. Af þessu fyrsta kvöldi komust áfram í þriðja sæti Kristjón Grétarsson sem söng fyrir Þrif og þjónustu, í öðru sæti Olga Guðrún Gunnarsdóttir sem söng fyrir Egil SH og vinningshafi kvöldsins var Alda Dís Arnardóttir sem söng fyrir Hraðbúðina Hellissandi. Næsta kvöld verður laugardaginn 18. janúar, vonandi verður jafn góð mæting og stemming það kvöld og spennandi að fylgjast með hverjir keppa þá. þa Í Sandafjöruna vestan Hellis­ sands rak um ára mótin há hyrn­ ing. Auð velt er að komast að honum frá Útnes veginum og svo um veginum í Krossavík. Meðan brimið er mikið við ströndina má gera ráð fyrir því að hvalur inn verði á hreyfingu um fjöru na og staðsetning breytleg eftir sjávar­ fjöllum. Óvíst er um dánarorsök en nokkuð algengt er orðið að dauða háhyrninga reki á fjörur á Snæfellsnesi Karókí í Röst Háhyrning rak á Sandafjöru Hamborgarar, pizzur og margt eira

x

Bæjarblaðið Jökull

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Bæjarblaðið Jökull
https://timarit.is/publication/1894

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.