Morgunblaðið - 01.07.2005, Page 2
2 C FÖSTUDAGUR 1. JÚLÍ 2005
MORGUNBLAÐIÐ
bílar
Morgunblaðid/RAX
Sportleqri, ávalari og laglegri en fyrrí gerd.
Mercedes Benz
veðjar á dísilbfla
MERCEDES Benz hyggst herja
meira á Bandaríkjamarkað með dís-
ilbíla sína en fram til þessa. Stefnir
fyrirtækið að því að ná fyrri stöðu
sinni sem dísilbílaframleiðandi núm-
er eitt á þessum markaði sem það
hafði á árunum milli 1960 og 1980.
Á síðasta ári seldust um fjögur
þúsund dísilbílar frá Mercedes Benz
í Bandaríkjunum en um 25 þúsund
frá Volkswagen. Fram að þessu
hafa aðeins fimm gerðir verið fáan-
legar með dísilvélum en ráðgert er
að bjóða nú dísilvélar í E-línu stall-
baknum, M-línunni og jafnvel fleiri
gerðum og hugsanlegt er að tvær
gerðir frá Chrysler verði einnig dís-
ilvæddar, þ.e. Chrysler 300 og
Grand Cherokee.
Innan við 1% seldra bíla í Banda-
ríkjunum eru með dísilvél. Eru
þessar áætlanir Mercedes Benz
merki um ákveðna sókn á þessum
hluta markaðarins enda horfa fleiri
framleiðendur meira til dísilvéla eft-
ir því sem bensínverðið stígur og
eldsneytið er talist nýtast 30% betur
í dísilvél en bensínvél. Þá ráðgerir
fyrirtækið einnig að uppfylla um leið
strangar kröfur um mengunarvarn-
ir sem taka eiga gildi árin 2007 og
2008.
Tveir
nýir frá
Volkswagen
HEKLA kynnir um þessar mundir
tvo nýja bíla frá Volkswagen; ann-
ars vegar nýja kynslóð af Polo og
hins vegar nýja gerð, Fox sem er
sá minnsti í Volkswagen-fjölskyld-
unni. Báðir eru þeir fáanlegir með
bensín- eða dísilvélum.
Polo kom fyrst fram í dagsljósið
fyrir þremur áratugum. Hann hef-
ur farið örlítið stækkandi gegnum
árin og nú er hann með V-laga
framenda og vatnskassahlíf sem
svipar til Passat ef draga má fram
einhvern skyldleika innan
Volkswagen-línunnar. Talsmenn
Heklu segja verðið haldast óbreytt
þrátt fyrir ýmsan meiri búnað í
nýju gerðinni en þeim eldri. Ódýr-
asta gerðin kostar handskipt 1.395
þúsund krónur og er með 1,2 lítra
vél sem er 55 hestöfl en sú dýrasta
er með 1,4 lítra og 70 hestafla dís-
ilvél og kostar í Comfortline-út-
gáfu 1.695 þúsund krónur. Fox er
nýr og fínlegur tveggja dyra bfll og
fjögurra manna. Bíllinn er boðinn
með 1,2 lítra og 55 hestafla bens-
ínvél með handskiptingu og kostar
þannig búinn 1.150 þúsund krónur.
Með 1,4 lítra dísilvélinni kostar
hann 1.380 þúsund krónur og er
Fox aðeins boðinn með fimm gíra
handskiptingu.
Morgunblaðid/Eyþór
Nýr Volkswagen Polo er kominn á markað, en 30 ár
eru nú liðin frá því sá fyrsti kom á markað.
Fox er nýr meðlimur Volkswagen-fjölskyldunnar og
er hann hugsaður sem fyrirferðarlítill götubíll.
Fjölskylduhelgí í Þjórsárveri
FJÖLSKYLDUHELGI verður á veg-
um Islandrover, félagi Land Rover
eigenda hér á landi, í Þjórsárveri
helgina 8. til 10. júlí nk.
Þrauta- og ófærubraut verður á
staðnum, sem og sýning af Land Rov-
er-bílum á öllum aldri og af öllum
gerðum, auk þess sem grill, kvöldvök-
ur og myndasýning eru meðal þess
sem verður á dagskrá þessa helgi.
Jafnframt verður fallegasti Land Rov-
erinn kosinn, best uppgerði Land
Roverinn og athyglisverðasti Land
Roverinn, auk þess sem verðlaun
verða veitt fyrir bestu tilþrifin á
þrautabrautinni.
Lagt verður af stað föstudagskvöld-
ið 8. júlí. Aðgangseyrir er 1.500 kr. á
þátttakanda. Nánari upplýsingar er að
finna á: www.islandrover.is.
Ýmsar Land Rover-tengdar skemmtanir verða í boði á hátíðinni.
Fornbílar
FORNBÍLAR verða sýndir á Árbæj-
arsafni á sunnudag þegar félagar úr
Fornbílaklúbbi íslands koma með
nokkra bíla sína og stilla þeim upp.
í frétt frá klúbbnum segir að fé-
lagar hafi allt frá árínu 1991 sýnt bíla í
Árbæjarsafni og gestir hafi getað
rætt við þá. Bílarnir verða um allan
garðinn en gamla verkstæðið verður
miðstöð klúbbsins þennan dag. Elstu
bílarnir eru frá árunum kríngum 1930
og síðan allt til ársins 1979. Bílarnir
verða sýndir milli kl. 13 og 17.
Einn af glæsilegri fornbílum landsins
er án efa Buick Super árgerð 1958
sem er í eigu Höskuldar Sæmunds-
sonar, bifvélavirkja hjá B&L
í Árbæjarsafni
Morgunblaðið/Ámi Torfason
Nálægðin við
Rússa kostur
eða galli?
ÞEIR fáu framleiðendur bílahluta
sem reka verksmiðjur sínar í
Eystrasaltslöndunum velta nú fyrir
sér hvort nálægðin við Rússland sé
þeim kostur eða galli. Pétursborg í
Rússlandi er að verða mikil bíla-
framleiðsluborg og ekki er ýkja
langt milli hennar og Eistlands,
Lettlands eða Litháen. Þetta kemur
fram í Evrópuútgáfu tímaritsins
Automotive News.
Partaframleiðendurnir vona að
lægri laun í Eystrasaltslöndunum
muni gefa þeim góða stöðu til að
fóðra verksmiðjurnar í Pétursborg
og að innganga landanna í Evrópu-
sambandið styrki stöðu þeirra. Þeir
óttast þó að aðrir framleiðendur sjái
sér hag í því að vera í Rússlandi,
mun nær en þeir eru, og við bæj-
ardyr verksmiðja sem þegar eru
teknar til starfa og þeirra sem ráð-
gert er að setja þar niður. Þannig er
Toyota að íhuga að koma af stað
framleiðslu í Pétursborg eins og
Ford hefur þegar gert en þessir
framleiðendur stefna að sameigin-
legri framleiðslu á um 100 þúsund
bílum á ári. Þá hefur Mercedes Benz
lýst áhuga á að nema þar land og
mun ákveða sig í haust.
Eystrasaltslöndin eru talin standa
sæmilega sterkt að vigi og að efna-
hagur og atvinnulíf fari þar batnandi
sem laðað geti þangað æ meiri fjár-
festingu.
Til þessa hafa partaframleiðendur
horft mikið til suðurhluta Evrópu en
nú virðist sem norðursvæðið eigi
næsta leik.
r
v*
&GORMH GHNITf
RATAÐU A
RÉTTA TÆKIÐ
Garmin
StreetPilot c320
og c330 leiðsögu-
tæki fyrir bifreiðar
Nýtt GPS kort fyrir Garmin-tæki með götum og heimilisföngum
GPS kort er vektor-kort af íslandi fyrir Garmin GPS-tæki með leiðsöguhæfum vegagögnum um
allt fand, ásamt götukorti af höfuðborgarsvæðinu með heimilisföngum, 40.000 örnefnum og
áhugaverðum stöðum, vatnafari, þjóðvegum, fjallaslóðum og skálaskrá. í fyrsta sinn á íslandi
er saman komið vegakort með teiðsöguhæfum
gögnum fyrir PC-tölvur, Windows Mobife hand-
tölvur og Garmin GPS-tæki.
Láttu ekki afvegateiða þig - vefdu Garmin.
3 R.SIGMUNDSSON
FISKISLÓÐ 16 I 101 REYKJAVÍK I SÍMI 520 0000 I www.rs.is
Umboðsmenn Akureyri: Haftækni • Egilsstaðir: Bílanaust • Grundarfjörður. Mareind • ísafjörður: Bensínstöðin • Keflavík: Tæknivík • Reyðarfjörður: Veiðiflugan
Selfoss: Hársnyrtistofa Leifs • Vestmannaeyjar: Geisli • Reykjavik: Arctic Trucks, Everest, Hlað, Intersport, RSH, Útilíf, Vesturröst • Fríhöfnin